Tíminn - 25.07.1978, Page 24
Sýrð eik er
sígild eign
TRÉSMIDJAN MEIDUR
SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822
Gagnkvæmt
tryggingafélag
ÍfojíJUtJ. Þriðjudagur 25. júli 1978 - 158. tölublað - 62. árgangur
simi 29800, (5'linur)
Verzlið
í sérverzlun með
litasjónvörp
og hljómtæki
Útflutningsbanniö:
Engin
áhrif
á freðfisk-
framleiðsluna i
Bandaríkjunum
MóL — „Útflutningsbannið
hefur ekki haft áhrif á fram-
leiðslu verksmiðju okkar fs-
lendinga I Bandarikjunum,
alla vega ekki ennþá, þótt það
gæti gert þaö i komandi fram-
tið”, sagði Sigurður Markús-
son, framkvæmdastjóri
sjávarafurðadeildar S.f.S. er
Timinn ræddi við hann i gær
um áhrif útflutningsbannsins
á freöfiskframleiðsluna i
Bandarikjunum.
„Eins og menn hafa ef til
vill tekið eftir, þá hafa skip
okkar siglt nokkuð reglulega
vestur um haf, þannig aö þeir
fá nægilegt hráefni. Þetta er
mögulegt vegna þess að út-
flutningsbannið nær ekki til
allra hafna á landinu og þar
sem framleiöslan hefur aukist
mikiö, þá geta þessir staðir
sem banniö nær ekki til, séð
verksmiðjunum fyrir hráefni.
Bannið bitnar þannig ekki á
okkur enn sem komið
er”,sagði Sigurður.
Samkvæmt heimildum, sem
Timinn hefur aflað sér, þá
mun það ekki vera rétt, að
verksmiðjurnar hafi fariö út i
að kaupa hráefni frá öðrum
löndum i meira mæli en áöur.
Hráefnið frá tslandi nægir
verksmiðjunum þrátt fyrir út-
flutningsbannið, eins og fram
kemur i viðtalinu við Sigurð
Markússon. Hins vegar hafa
verksmiöjurnar alltaf keypt
eitthvaö af fiski frá öðrum
þjóðum, en hann mun vera
greiddur lægra verði en fyrir
islenska fiskinn auk þess sem
hann er ekki framleiddur
undir sama vörumerki.
Albert
Guömundsson:
Tek ekkert
mark á
Morgunblaðinu
Sjá. bls. 3
Það var tignarleg sjón að sjá, þegar Hilmanninn hans Þorvaldar Karlssonar tókst á loft, valt heil-
hring og lenti siðan á hjólin aftur. Þetta skeði I fyrsta „rally crossinu”, sem haldið var um helgina.
Nánar verður sagt frá keppninni á morgun. Myndina tók Ftagnar J. Ragnarsson.
Vinna, vinna, vinna:
Neyðarkall frá Utgerð-
arfélagi Akureyrar
GEK „Vegna sumarleyfa
hefur okkur vantað tilfinnanlega
fólk til að vinna úr þessum mikla
afla, en úr þessu virðist ætla aö
rætast eitthvað eftir aö viö
sendum frá okkur neyðarkalliö,”
sagði Gisli Konráösson, fram-
kvæmdastjóri Útgeröarfélags
Akureyrar i samtali viö Tlmann i
gær, en um helgina auglýsti Ct-
gerðarfélagið mjög eindregið
eftir fólki til að bjarga verömæt-
an of
GEK ..Það hefur alltaf veriö
min skoöun, aö, .svarta skýrslan”
svonefnda hafi verið allt of svört
og ég er að vona að það sé aö
koma i ljós núna að þorskstofninn
sé ekki eins illa farinn og fiski-
fræöingarnir héldu,” sagöi Gisli
Konráðsson frkvstj. Útgerðarfé-
lags Akureyringa i samtali við
um fiski frá skemmdum.
Að sögn Gisla voru I gær til alls
um 1000 tonn af þorski i togurum
útgerðarinnar sem ýmsir voru
enn á veiðum, á leið til hafnar eða
sem verið var að landa úr. Þaö
kom fram hjá Gísla að sú ákvörð-
un verkalýðsfélagsins Einingar
að banna alla helgarvinnu yfir
sumarmánuðina hefur komið sér
illa fyrir Útgerðarfélag Akur-
eyrar eins og nú er ástatt.
Timann i gær.
Sagði Gisli það vera almenna
skoðun manna, að sú friöun sem
fólst i brotthvarfi erlendra fiski-
skipa úr landhelginni, eigi mjög
stóran þátt i þeirri aflahrotusem
gætt hefur upp á siðkastið hjá
þorskveiðiflotanum.
„Það hlýtur aö hafa veriö stór-
„Við erum sifellt að sækja um
undanþágur, en án árangurs. Við
erum þó að vona að þeir sjái að
næsti 'augardagur er okkur afar
nauðsynlegur,” sagði hann.
Aðspurður um rými i frysti-
geymslum félagsins, sagöi Gisli
að það væri fyrir löngu á þrotum.
„Það sem heldur okkur gangandi
eru frystigeymslur sem við
tókum á leigu hjá Kristjáni
Jónssyni og Co. en þær eru ekki
alveg fullar ennþá.”
kostlegfriðun fólgin iþviaðlosna
við erlendu togarana og maður
skyldi ætla að þaö ætti að duga
okkur og óþarfi sé þvi að stöðva
þorskveiðarnar eins og nú hefur
verið ákveðið,” sagði Gisli enn-
fremur.
Stórinn-
brot á
ísafirði
2 millj. stolið
GEK —-Stórinnbrot var framiö á
lsafirði aðfaranótt sunnudagsins.
Þar var brotist inn i fjárhirslur
Kaupfélags Isfirðinga og stoliö
um 2 miiljónum króna i ávisunum
og reiðufé.
Talið er að innbrotsþjófurinn
eöa þjófarnir hafi komist inn i
húsið með þvi að brjóta glugga i
útidyrahurð og opna þannig hurð-
ina. Eftir aö innbrotsþjófurinn
(þjófarnir?) voru komnir inn I
húsið munu þeir hafa farið i skáp
sem tæknideild Isafjaröarkaup-
staðar hefur til umráða og tekið
þaðan slaghamar sem þeir siöan
notuðu til aö brjóta upp skrif-
borðsskúffu gjaldkera kaup-
félagsins, en þar mun lykill að
fjárhirslu kaupfélagsins hafa leg-
ið.
Sem fyrr segir var stoliö um 2
milljónum króna úr fjárhirslu
kaupfélagsins, en auk þess mun
hafa verið farið inn á skrifstofur
Rikisskips og bæjarins sem eru i
sama húsi, en ekki mun hafa ver-
ið stolið frá þessum aöilum og
engar skemmdir unnar.
Innbrotafaraldur um
helgina
GEK —Talsvert var um innbrot i
Reykjavik um siöustu helgi. A
laugardaginn var brotist inn I
ör-tækni I Sigtúni en ekki virðist
neinu hafa verið stolið þaöan. Þá
var brotist inn i erlenda bifreið
sem stóð á gatnamótum Garöa-
strætis og Ránargötu. Úr henni
var stolið Bell and Howell súper 8
kvikmyndatökuvél. Ennfremur
var brotist inn i Hraðfrystistööina
við Mýragötu. Þar varð verk-
stjórinn var við tvo pilta. Piltarn-
ir sluppu eftir að annar þeirra
haföi bitið verkstjórann I hand-
legginn og hinn ógnað honum með
spýtu. Ekki var i gær vitað-með
vissu hvort þeir náöu að stela ein-
hverju.
A sunnudag var brotist inn I
Blaðsöluna I Austurstræti 18, þar
var stolið einhverju af peningum,
en ekki þó miklu. A Lindargötu
61, var brotist inn á sunnudag og
stoliö þaðan sjónvarpstæki af
Nordmende gerð, með 12 tommu
skermi, svart hvitt. A Leifsgötu 6,
var brotist inn og stolið segul-
bandstæki og á Smáragötu 3, var
stoliö tveimur feröaútvarpstækj-
um af Philips og Grundig gerð.
Ekki er upptalningunni enn lok-
ið, þvi úr herbergi á Hótel Esju
var stolið kventösku með 10
ferðatékkum útgefnum af Euro-
bank auk 130 þýskra marka og 12
þúsund islenskra króna. 1 gærdag
var siöan tilkynnt um innbrot i
Kjöris sem er i Miðbæ við Háa-
leitisbraut, en þaöan var stoliö
um 150 þúsund krónum i pening-
um.
Var svarta skýrsl-
svört?
Aflahrotan breytir ekki hugmyndum
okkar um stofnstærð þorsksins
Segir Jón Jónsson forstöðumaður Hafrannsóknarstofnunar
GEK— „Ég hef ekki enn fengið
aldursgreiningu á þessum
þorski, en ég hygg að þetta muni
aö miklu leyti vera árgangurinn
frá 1973, sem við vissum fyrir að
er sterkur. Svo viröist sem hann
hafi þjappaö sér óvenju mikið
saman núna.” Svo fórust Jóni
Jónssyni forstöðumanni Haf-
rannsóknastofnunar orð i sam-
tali við Timann i gær um hina
miklu þorskveiði sem verið
hefur við landiö siöustu daga.
Er Jón var inntur eftir þvi
hvort þessi mikla þorskgengd
benti ef til vill til þess að svarta
skýrslan svonefnda hafi verið of
svört, taldi hann svo ekki vera.
,,Ég held, sagði Jón”, að það
sé varla hægt að segja að þessi
aflahrota breyti hugmyndum
okkar um stærö þorskstofnsins.
A þessu stigi get ég ekki séð að
neitt bendi til þess að við höfum
vanmetið stofnstæröina, þvi
miöur. Eins og ég sagði, þá tel
ég langliklegast að hér sé um
árganginn frá ’73 að ræða, sem
við höfum verið að reyna að
verja undanfarin ár. Til allrar
hamingju er talsvert eftir af
honum ennþá, en framtiö hans
er náttúrulega óráðin og greini-
lega ekki mjög björt ef haldið er
áfram aö veiða hann jafnungan
og hann nú er.” .