Tíminn - 25.07.1978, Qupperneq 2
2
Þriðjudagur 25. júli 1978
utan ur heimi
Höfum fyrirliggjondi
Farangursgrindur
og bindingar ó
allar stœrðir
fólksbíla,
Bronco
og fleiri bíla.
Einnig skíðaboga
Bíiavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2, simi 82944.
Útflutningur íra
Reuter/London. Verð á kaffi er
nú mjög lágt á heimsmarkaðin-
um vegna offramleiðslu i
Brasiliu. Stafar hún af frost-
leysi, en gert var ráð fyrir minni
framleiðslu vegna þess aö menn
gerðu ráð fyrir kaldari veðráttu
á kaffiökrunum.
Offramboð er einnig á sykri
vegna offramleiðslu, en sykur-
birgðir hafa sjaldan eða aldrei
verið nieiri en nú.
Begin hélt velli
Reuter/Jerúsalem. Van-
trauststillaga á stjórn Beg-
ins var felld í Knesset,
þingi þeirra ísraelsmanna
í gær. Atkvæði féllu þann-
ig, að 37 greiddu atkvæði
gegn stjórninni, en 68 með.
Er þetta um leið stuðnings-
yfirlýsing við stefnu Beg-
ins í f riðarviðræðunum.
1 ræðu að atkvæðagreiðslu lok-
inni, hvatti Begin til samstöðu og
sagði að tsraelsmenn mundu ekki
ganga að neinum afarkostum i
samningaviðræðunum, vegna
utanaðkomandi þrýstings.
Þessi úrslit eru persónulegur
sigur fyrir Begin, en eins og
kunnugt er hafa leiðtogar Verka-
mannaflokksins haldið þvi fram
að hann væri ekki sjálfráður
gerða sinna i samningaumleitun-
um við Egypta.
Bylting í Bólivíu
Banzer tókst að vera við völd I sjö ár
Hugo Banzer Suares, fyrrum
forseti Bólivfu.
steypti af stóli, var þá I útlegð i
Argentinu. í Boliviu var i árs-
byrjun mikið um verkföll og
ólgu. Banzer sagði að um sam-
særi væri aö ræöa og ætti aö
steypa sér af stóli og stæði Torr-
es að baki atburöana. 1 júni var
Torres myrtur i Buenos Aires.
Þrátt fyrir aö Banzer væri nú
laus við sinn versta óvin, for-
dæmdi hann morðiö og bar það
upp á stuöningsmenn Che
Guevara. Þeir höfðu skömmu
áöur skotið til bana sendiherra
Bóliviu i Frakklandi, en hann
var maðurinn sem stjórnaði
sveitinni sem tók Guevara af lifi
árið 1967. En enginn vildi gang-
ast við morðinu á Torres og þær
raddir sem sögöu að Banzer
stæði að baki morðsins fengu
byr undir báöa vængi. Hann
reyndi að bæta stöðuna með þvi
að bjóða ekkjunni upp á útför á
kostnað rikisins með öllum til-
heyrandi heiðri. Hún sam-
þykkti, en vildi að útförin færi
fram i höfuöstöðvum verkalýðs-
samtakanna. A það gat Banzer
ekki fallist, þar sem ljóst var að
vinstri menn myndu nú fá sam-
einingartákn. Torres var
jarðaður I Mexikó og Banzer
var álitinn morðingi hans.
En nú er valdatima Banzers
lokið og nýr hershafðingi kom-
inn I hans stað. Sennilega verða
ekki miklar breytingar viö
þessa skiptingu, en þó er viðbúið
að Pereda reynist kommúnist-
um öllu erfiöari i viöskiptum en
Banzer var.
MÓL
Hermenn á veröi við forsetahöllina I La Paz s.l.föstudag.
Frá þvi að Bólivia fékk sjálf-
stæði fyrir 153 árum, hafa meir
en 180 rikisstjórnir.setiðvið völd
i landinu. Það hlýtur þvi að telj-
ast tíl meiriháttar tiðinda, þeg-
ar einn maður hefur setið i for-
setastólnum samfleytt i 7 ár,
eins og Hugo Banzer Suares
hefur gert. En s.l. föstudag lauk
valdatimabili hans, er herinn i
landinu gerði uppreisn, lét
Banzer segja af sér og setja
Juan Pereda Asbun, yfirmann
flughersins, i sinn stað.
Pereda hershöfðingi hafði
reyndar verið frambjóðandi
rikisstjórnarinnar i kosning-
unum 9. júli sl. sem voru fyrstu
frjálsu kosningarnar i Bóliviu i
12ár. Pereda vann mikinn sigur
i kosningunum og fékk meir en
50% greiddra atkvæða, en kosn-
ingin var hins vegar dæmd
ógild, þegar Iljóskom, að greidd
atkvæði voru mun fleiri en sá
fjöldi sem var á kjörskrá.
Pereda sjálfur sagði strax, að
hann myndi fara fram á aðrar
kosningar og þvi kom byltingin
s.l. föstudag nokkuð á óvart.
Það eina sem Pereda vildi láta
hafa eftir sér, var að hann sagði
að þetta væri vilji þjóðarinnar.
Svo framarlega sem vitað er,
kostaði byltingin aöeins eitt
mannslif.
Bylting, sem er svo til blóðsút-
hellingalaus, hlýtur að teljast
með merkilegri byltingum i
þessulandibyltinganna. Bólivia
er, eins og alþjóð veit, skírö i
höfuðið á hershöfðingjanum
fræga og frelsishetjunni Simon
Bólivar, sem hjálpaði mörgum
löndum S-Ameriku aö losna
undan oki Spánar á þriðja tug
siðustu aldar. Landið er þab
fimmta stærsta I S-Ameriku og
eitt það auðugasta hvað
náttúruauðlindir varðar, þrátt
fyrir að landið sé annað af tveim
sem ekki hafa aðgang að sjó.
Á árunum milli 1935 og 1952
var mikiö um byltingar, en
eftir byltinguna 1952 tók við
maður, sem stjórnaði i heil 12
ár. Það var hagfræðingurinn
Victor Paz Estenssoro. Hann lét
þjóðnýta námurnar, skipta stór-
jörðunum á milli Indiánanna,
byggja vegi, orkuver o.s.frv.
Honum var þó komið frá 1964 og
1966 voruhaldnar fyrstu frjálsu
kosningarnar i landinu i
marga áratugi. Rene
Barrientos, fyrrum byltíngar-
leiðtogi, tókvið völdum.enhann
lést i flugslysi þrem árum siðar.
Þá tók viö varaforsetinn og i 2
ár voru stjórnarskipti alltiö eöa
þangað til Hugo Banzer Suares
og tveir aðrir hershöfðingjar
steyptu Torres forseta af stóli.
Nokkrum dögum siðar losaði
Banzer sig viö félaga sina.
Banzer hefur að mörgu leyti
þótt ágætis forseti, þ.e. miðað
við marga fyrirrennara hans.
Efnahagur almennings hefur
stórbatnaö og hagkerfiö virkar,
sem er meira en hægt er aö
segja um mörg önnur riki i
S.-Ameriku. T.d. var verðbólg-
an I Bóliviu aðeins um 12% árið
1976, mun lægri en I mörgum
löndum Evrópu, svo ekki sé
minnst á S-Ameriku.
En valdaferill hans hefur alls
ekki verið vandalaus. Meðal
óþægilegri mála er sennilega
Torres-málið. Vinstri maöurinn
Juan Jose Torres, sem Banzer
Menachem Begin, forsætisráðherra Israels, vann mikinn persónu-
legan sigur i gær, þegar samþingmenn hans gáfu honum stuðnings-
yfirlýsingu. Þetta þótti mikill heiður fyrir Begin. Hann hefur þó áð-
ur verið heiöraður. Myndin sýnir hann taka á móti heiöursgráöu við
háskóla i tsrael.
jókst um 35%
Reuter/Dublin. Útflutningur Ira
jókst um 35% á s.l. ári að þvi er
fréttir frá Dublin herma.
Aukningin i ár er áætluð 27% og
sýnir þetta vel hina hröðu þróun á
írlandi frá akuryrkjuþjóðfélagi
til iðnaðarþjóðfélags.
Astæðan fyrir þessari miklu
aukningu á útflutningi er að sögn
tra, stöðugt vaxandi framleiösla
Fljótandi
Reuter/Ostend. Franskir og bel-
giskir tollverðir stöðvuðu i gær
jómfrúarferð fljótandi stór-
markaðar á Ermasundi.
Um 5Ö0 farþegar frá megin-
landinu höfðu stigið um borð i
þeim tilgangi að kaupa tollfrjáls-
an varning ættaðan frá Bretlandi.
Þegar ferðinni átti að ljúka i
frönsku borginni Dunkirk, voru
farþegarnir stöðvaðir og þeim
þeirra nýju iðngreina sem þar
hefur verið komið á laggirnar á
siðustu árum, fyrir erlent fé.
Langmest hefur aukningin orð-
ið á útflutningi til landa I Efna-
hagsbandalaginu — eða 45% á
siðasta ári. A siðustu tiu árum
hefur útflutningur Ira sjöfaldast
og ellefufaldast, sé miðað við
iðnaðarvöru eingöngu.
fríhöfn
synjaö um leyfi til aö fara á land.
Þeir urðu þvi að sigla á hinum
fljótandi stórmarkaði sinum til
Ostend i Belgiu, en þar biðu
þeirra belgiskir tollverðir, ólmir
að rifa allt góssið upp úr töskum
þeirra.
Aðgerðir þessar hafa vakið upp
miklar deilur innan Efnahags-
bandalagsins, og sýnist þar sitt
hverjum.
Vantrauststillaga á ísraelsþingi
Offramboð á
kaffi og sykri