NT - 26.06.1984, Blaðsíða 14

NT - 26.06.1984, Blaðsíða 14
Hannibal Valdimarsson Vilhjálmur Hjálmarsson Sigurður Bjarnason Lúðvík Jósefsson Sjónvarp kl. 22.15: Útvarp kl. 20.30: Þá hugsjónir rættust Gamlar stjórnmálakempur ræða um lýðveldisstofnunina ■ í kvöld er í sjónvarpinu umræöuþáttur sem heitir því virðulega nafni t>á hugsjónir rættust. Pað eru þeir Hannibal Valdimarsson, Lúðvík Jóseps- son, Sigurður Bjarnason og Vilhjálmur Hjálmarsson sem minnast þeirra tímamóta þegar ísland varð lýðveldi fyrir 40 árum. Þeir ræða um aðdrag- anda lýðveldisstofnunarinnar og hvað þeim sé ríkast í minni sem sáu hugsjónir rætast 17. júní 1944. Umræðum stýrir Magnús Bjarnfreðsson. Með sínu lagi ■ Svavar Gests, hljómplötu- útgefandinn kunni, verður með þátt sinn Með sínu lagi í dagkl. 15.00á Rás2. Hann var spurður um efni þáttarins. „Það verða lög og textar sem tengjast sumrinu og sól- inni. Ég verð eingöngu með innlend lög, það var óskað eftir því þegar mér var falið að gera þáttinn. í síðasta þætti tók ég fyrir lög um eða eftir kvenfólk, og þar áður lög með textum eftir Ómar Ragnarsson sem aðrir liafa sungið. Það er ákveðið efni í hverjum þætti, þetta er ekki tónlistarsagan. Annarser þetta bara eins og andinn blæs hverju sinni.“ Segðu mér annað, hvað er að frétta af S.G. hljómplötum núna? „S.G. hljómplötur eiga 20 ára afmæli á næstunni, og það er töluverð plötuútgáfa hjá fyrirtækinu núna. Það er að koma út tvöföld plata með Fjórtán fóstbræðr- um, sem endurútgáfa á plötum nr. 1 og 3 hjá fyrirtækinu. Við erunt nýbúnir að gefa út eins konar Greatest Hits Ómars Ragnarssonar, og svo kemur eitt og annað, bæði gamalt og nýtt á næstu mánuðum." Horn unga fólksins Svavar Gests. ■ í kvöld er á dagskrá í útvarpinu stuttur þáttur sem ber nafnið Horn unga fólksins. Það er Sigurlaug M. Jónasdótt- ir sem sér um þáttinn, sem segir að hann sé fyrir ungt fólk á sínum aldri, í kringum tvítugt. „í fyrsta þætti kom Jón Gústafsson og talaði um Nor- rokk og Listahátíð, en í kvöld verður talað við Vilborgu Gunnlaugsdóttur, sem er 23 ára gömul og var að Ijúka stúdentsprófi. Þetta er ægilega stuttur þáttur, aðeins 10 mínútur, þannig að ekki er pláss fyrir mikið. Þátturinn kom þannig til að á þessurn tíma var alltaf eitthvert uppfyllingarefni, ensk þjóðlög eða slíkt, og Gunnvör Braga lagði til að þarna yrði í staðinn þáttur. Þátturinn fer kannski framhjá fólki af því að hann er svo stuttur." Fólk ætti að leggja eyrun við þessum stutta þætti í kvöld. Hann er einmitt á tímanum þegar auglýsingar eru í sjón- varpinu... ■ í kvöld kl. 20.00 er á dagskrá sagan „Niður renni- stigann" eftir Hans Georg Novak. Það er Hjalti Rögn- valdsson leikari sem les fyrsta lestur. Ingibjörg Berþórsdóttir hefur þýtt söguna. Samkvæmt upplýsingum Hjalta, sem nú er á Akureyri en flytur suður eftir nokkra daga, er höfundurinn þýskur. Sagan gerist fyrir nokkrum áratugum á heimili fyrir vand- ræðadrengi. Sagan fjallar um óknytti og samskipti drengj- anna innbyrðis og við fullorðið fólk. „Þetta er svona gamaldags strangur stíll á þessu heimili,“ sagði Hjalti. ■ Hjalti Rögnvaldsson. ■ Á járnbrautaleiðum er á dagskrá kl. 20.40 í sjónvarpinu í kvöld. í þetta sinn verður farið um fornfrægar slóðir Grikklands. Myndin er að sjálfsögðu frá Akropólis í Aþenu, frægustu fornleifum Grikkja ef ekki heimsins. Niður rennistigann Ný framhaldssaga Þriðjudagur 26. júní 1984 14 Þriðjudagur 26. júní 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. í bítið 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Marðar Arna- sonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Oddur Albertsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna. „Jerútti heimsækir Hunda- Hans“ eftir Cecil Bödker Stein- unn Bjarman les þýðingu sína (2) 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.10Veðurfregnir. For- ustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Ljáðu mér eyra“ Málmfriður Sigurðardóttir á Jaðri sér um þátt- inn (RÚVAK). 11.15Tónleikar Ólafur Þórðarson kynnir. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn- ingar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.20 Rokksaga -1. þáttur Umsjón: Þorsteinn Eggertsson. 14.00 Prestastefna 1984 sett á Laugarvatni Biskup íslands herra Pétur Sigurgeirsson, flytur yfirlits- skýrslu um starf kirkjunnar. 15.00 Upptaktur - Guðmundur Benediktsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Frettir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir. 16.20 íslensk tónlist Marteinn H. Friðriksson leikur „Orgelsónötu" ettir Þórarin Jónsson / Manuela Wiesler, Siguröur I. Snorrason og Nina G. Flyer leika „Klif", tónverk flyrir flautu, klarinettu og selló eftir Atla Heimi Sveinsson / Sinfóníu- hljómsveit islands leikur „Lítla strengjasvítu" eftir Árna Björnsson; Páll P. Pálsson stj. 17.00 Fréttir á ensku. 17.10 Síðdegisútvarp.Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds- ins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn Stjórnandi: Gunnvör Braga. 20.00 Sagan: „Niður rennistigann'* eftir Hans Georg Noack Þýðandi: Ingibjörg Bergþórsdóttir. Hjalti Rögnvaldsson byrjar lesturinn. 20.30 Horn unga fólksins i umsjá Sigurlaugar M. Jónasdóttur. 20.40 Kvöldvaka a. Vikið til Vest- fjarða Júlíus Einarsson les úr erindum séra Sigurðar Einarsson- ar I Holti. b. Karlakórinn Visir syngur Stjórnandi: Geirharður Valtýsson. c. „Áin“ Jóna I. Guð- mundsdóttir les hugleiðingu eftir Þórhildi Sveinsdóttur. 21.10 Frá ferðum Þorvaldar Thor- oddsen um Island 4. þáttur: Hornstrandir sumarið 1886 Umsjón: Tómas Einarsson. Lesari með honum: Valtýr Óskarsson. 21.45 Útvarpssagan: „Glötuð ásýnd" eftir Francoise Sagan Valgerður Þóra les þýðingu sína (5). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Kvöldtónleikar: „Treemonis- ha“ ópera eftir Scott Joplin. - Ýrr Bertelsdóttir kynnir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. Þriðjudagur 26. júní 10.00-12.00 Morgunþáttur. Síma- tími. Spjallað við hlustendur um ýmis mál líðandi stundar. Músík- getraun. Stjórnendur: Páll Þor- steinsson. Ásgeir Tómasson og Jón Ólafsson. 14.00-15.00 Vagg og velta. Létt lög af hljómplötum. Stjórnandi: Gísli Sveinn Loftsson. 15.00-16.00 Með sínu lagi Lög leikin af íslenskum hljómplötum. Stjórn- andi: Svavar Gests. 16.00-17.00 Þjóðlagaþáttur Komið við vítt og breitt i heimi þjóðlaga- tónlistarinnar. Stjórnandi: Kristján Sigurjónsson. 17.00-18.00 Fristund Unglingaþátt- ur. Stjórnandi: Eövarð Ingólfsson. sjónvarp Þriðjudagur 26.júní 19.35 Bogi og Logi Teiknimynda- flokkur frá Tékkóslóvakíu. 19.45 Fréttir á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.40 Á Járnbrautaleiðum 4. Frá Aþenu til Ólympíu Breskur heim- ildamyndaflokkur i sjö þáttum. I þessum þætti ber lestin ferðalanga um fornfrægar slóöir til Grikklands. Þýöandi Ingi Karl Jóhannesson. Þulur Sigvaldi Júliusson. 21.25 Verðir laganna Sjötti þáttur. Bandarískur framhaldsmynda- flokkur um lögreglustörf í stórborg. Þýðandi Bogi Arnar Finnbogason. 22.15 Þá hugsjónir rættust Fjörutíu ára afmælis íslenska lýðveldisins hefur verið minnst í Sjónvarpinu með myndaþættinum „Land míns föður...". En hver var aðdragandi lýðveldisstofnunarinnar og hvað er þeim ríkast í minni sem áttu þar hlut að máli og sáu hugsjónir rætast 17. júní 1944? I þessum umræðuþætti minnast fjórir fyrrum alþingismenn og stjórnmála- leiðtogar þessara timamóta, þeir Hannibal Valdimarsson, Lúðvik Jósepsson, Sigurður Bjarnason og Vilhjálmur Hjálmarsson. Um- ræðum stýrir Magnús Bjarnfreðs- son. 23.05 Fréttir í dagskrárlok

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.