NT - 26.06.1984, Blaðsíða 12

NT - 26.06.1984, Blaðsíða 12
■ Tony Curtis lýsti því yfir í sjónvarpi að hann og Andria Savio hefðu látið pússa sig saman. Síðar hélt hann því fram, að hann hefði bara verið að plata, og reyndar hefðu það verið blaðamenn, sem hefðu komið sögunni á kreik! Fjórða hjóna- band Tonys Curtis bara gabb ■ Tony Curtis, sem í eina tíð þótti góður lcikari og hlaut margs konar viðurkenningu sem slíkur, hefur síðustu árin aðallcga komist í fréttir vegna hneykslismála af ýmsu tagi. Hjónabandsmál hans hafa löngum verið vinsælt frétta- efni, en hann hefur þegar verið giftur þrisvar og skilið jafnoft. Eða er það fjórum sinnum? í þriðja hjónabandi Tonys keyrði um þverbak. Þegar loks slitnaði endanlega upp úr því, hafði kona hans stór orð um hvaða voðamaöur Tony væri. Hann væri aldeilis óútreiknan- legur og vílaði ekkert fyrir sér að brjóta allt og brantla á heimilinu, hvað þá leggja hendur á hana og annað heint- ilisfólk. Eftir þann skilnað fór að bera mcira og meira á því, að Tony ætti í meira en litlum erfiðleikum með sjálfan sig. Hann drakk ótæpilega og gleypti í sig eiturlyí. Fyrir tveim árum rak svo á fjörur hans bráðunga stúlku, Andria Savio, sem virtist tilleiðanleg til að eyða með honum nokkrum ævidögum. En að því kom, aö hún sá, að Tonys biöi ekkert annað en alger aumingjaskapur eða jafnvel dauði, ef hann leitaði sér ekki lækninga. Fyrir orð Andriu gekkst Tony svo undir læknismeðferð í vor, þá sömu og Elizabeth Taylor, Peter Lawford, Johnny Cash og nú síðast Ro- bert Mitchum, auk annarra hafa hlotið með góðum árang- ri. Er hann útskrifaðist af sjúkrahúsinu, hafði hann ntörg orð um þaö, að nú væri hann svo sannarlega orðinn nýr og betri maður, og allt væri það Andriu hans að þakka. Og til að styrkja enn betur þetta nýja og fullkomna líf, sem liann- hefði nú hafið, hefði hann gengið að eiga Andriu. Pessti lýsti liann ófeiminn yfir í sjón- varpsþætti. Yfirlýsingin vakti mikla at- hygli og faðir Andriu fann sig knúinn til að lýsa yfir því, að hann hefði alltaf verið mótfall- inn þessum ráðahag. Þegarallt kænti til alls væri Tony á aldur við hann sjálfan og gæti því verið faðir Andriu hvað það snerti. Andriasagðiekki neitt. En skjótt skipast veður í lofti. Tony yfirgaf Hollywood og Andriu í snarhasti og hélt til Þýskalands á fund konu sinnar nr. 2, þýsku leikkon- unnar Christine Kaufmann, og tveggja dætra þeirra, enda seg- ist hann aldrei hafa hætt að elska Christine. Þaðan hélt hann til Cannes í Frakklandi og þar neyddist hann til að lýsa yfir því, að það hefði bara verið plat, að liann hefði geng- ið að eiga Andriu. Reyndar hefðu blaðamenn logið þeirri sögu upp! Nú situr Andria alein eftir með sárt ennið og veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Reyndar segja sumir, að hún megi þakka fyrir hvað hún hafi sloppið vel, því að augljóst sé, að ekki sé nokkurt vit að reiða sig á Tony Curtis frekar en fyrri daginn. Hann sé alveg óútreiknanlegur sent fyrr og deila megi um, hvort hann sé með öllum mjalla. ■ Christine Kaufmann og dætur þeirra Tonys, Allegra (í miðju) og Alexandra (t.h.) búa í Þyskalandi og þangað dreif Tony sig, þegar hann sá, að hann hafði gengið of langt með „gabbið“ sitt. Þriðjudagur 26. júní 1984 12 ■ Afmælistertan var stór og vegleg, enda þurftu margir að fá hlutdcild í henni. Fyrstu sneiðarnar skáru afmælisbarnið og kona hans, eins vera ber. ■ úr öðrum iandsfjórð- ungum tii að gleðjast *neð afmælisbarninu og heiðra það. Þar á meðal var Ragnar Arnalds, sem tók við Jormennsku í Alþýðu- bandalaginu, þegar Luðvik Jósepsson lét af henni. er fólk ■ haö var mikill og almennur söngur ' samkvæminu hafa gesíir tlllu u sætum og em senni mga a hau tónunum „Hann á afmæli da§ ’ a.m.k greinilegt að leggur Sál sönginn.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.