NT - 26.06.1984, Blaðsíða 3

NT - 26.06.1984, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 26. júní 1984 3 Flokkur mannsins: nýr stjórnmálaflokkur stofnaður: Stefnir að meirihluta ftOKKUR í næstu þingkosningum Nýr stjórnmálaflokkur var stofnaður á íslandi í gær. Flokkur mannsins nefnist fyrirbrigðið og forsvarsmenn hans segjast ekki ætla að láta sér nægja einn eða tvo þingmenn í næstu kosningum heldur stefna að meirihluta strax. >80 ríkti glaðvær stemmning í húsakynnum Samhygðar á Grundarstíg 2 í gær þegar verið var að kynna blaðamönnum stofnun nýja flokksins. Parna varfjöldi fólks saman- kominn og óspart klappað fyrir nýkjörnum stjórnarmönnum Flokks mannsins þegar eitthvert hnyttiyrðið datt upp úr þeim. Flokkur mannsins á sér enn sem komið er enga stefnuská en stefnt er að því að halda landsþing í haust og mun landsþingið setja flokknum stefnuskrá. Forystumenn flokks- ins sögðu í gær, að þótt stefnuskrá væri enn ekki fyrir hendi byggði Flokkur mannsins á ákveðnum hornsteinum þar sem væri hug- myndafræði Samhygðar. Flokkur mannsins er sagður félags- hyggju- og samvinnuflokkur og höfðu menn við orð í gær að ákveðinn stjórnmálaflokk- ur, sem hingað til hefði talið sig málsvara samvinnustefnu, mætti nú fara að athuga gaumgæfilega hvort hans væri nokkur þörf lengur, nema þá sem deildar í Flokki mannsins. í undirbúningi er stofnun málgagns fyrir Flokk mannsins, og hefur því verið valið nafnið „Rödd mannsins". Ritstjóri Raddar mannsins verður Jón frá Pálmholti. Bráðabirgðastjórn flokksins skipa Júlíus Valdimarsson, formaður, Áshildur Jóns- dóttir, varaformaður, Hrannar Jónsson, ritari og Sigrún Þorstseinsdóttir, gjaldkeri, auk fjögurra meðstjórnenda. Flokkur mannsins hyggst bjóða fram í öllum kjördæmum í næstu kosningum. ■ Það voru hressir og glaðbeittir Samhygðarfélagar sem í gær tilkynntu stofnun nýs stjórnmálaflokks sem á að vinna hreinan meirihluta í næstu kosningum. Kannski Flokkur mannsins verði einhvern tíma afl í íslenskum stjórnmálum. Hver veit? NT-mynd Ari Bíl stolið ■ Brotist var inn í Bílasölu Egg- erts og fjögurra ára gömlum Colt bíl stolið. Bíllinn var settur inn seint á föstudagskvöld og stóð fremst við dyrnar. Þjófurinn braust inn og fann lyklana að bílnum. Málið er í rannsókn.Bíllinn var í eigu bílaleigu. Athug' Fresturinn rennur í þessari viku! ruR Gegn atvinnuleysi unglinga: Taka að sér ýmsa þjónustu - skipulagt af æskulýðsráði ■ Á næstunni mun taka til starfa í Reykja- vík hópur 15 unglinga ásamt tveimur verk- stjórum sem taka að sér ýmis konar þjónustu- verk fyrir borgarbúa. Verkefna verður aflað með tilboðum í til dæmis garðhreinsun, gluggaþvott, hreingerningar, snyrtingu og annars konar umhirðu um hús og fyrirtæki. Starfsemi þessi er árangur af mikilli umræðu um atvinnumál ungs fólks hjá Æskulýðsráði borgarinnar nú í sumar. Borgarráð og Atvinnumálanefnd hafa lagt blessun sína yfir tilraunina. Hópurinn mun hafa aðsetur í Tónabæ. Háskólinn: Samstarf við lowa háskóla ■ Guðmundur Magnússon háskólarektor er nú staddur vestur í Iowa í Bandaríkjun - um til að undirrita samstarfssamning milli Háskóla íslands og the University of Iowa. Samningur þessi gerir ráð fyrir, að skipst verði á kennurum á ári hverju og einnig munu koma til styrkir handa íslenskum námsmönnum. Samningur af svipuðu tæi gekk nýlega í gildi milli HÍ og háskóla í Minnesota í Bandaríkjunum. AF S KATTSKYLDUM TEKJUM AF AIVINNUREKSTRI Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40% frá skatt- skyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóð. Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm- ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund- inn 6 mánaða reikning fyrir 1. júlí n.k. vegna tekna árs- ins 1983. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum reikningsárs. Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar samkvæmt lánskjaravísitölu. Auk þess býður Lands- bankinn 1,54% stigum hærri vexti en gilda um aðra 6 mánaða reikninga. Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6 mánaða binditíma, en innan 6 ára. Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts á árinu 1984 vegna tekna ársins 1983. Fresturinn að þessu sinni er til 1. júlí n.k. FÓLKÁFERÐ! Þegar fjölskyldan ferðast er mikilvægt að hver sé á sínum stað — með beltið spennt. ||UMFERÐAR Iráð Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga eru veittar í sparisjóðsdeildum Landsbankans. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.