NT - 26.06.1984, Blaðsíða 1

NT - 26.06.1984, Blaðsíða 1
Albert um hundadóminn: „Fíl má halda í fjölbýlishúsi en ekki hund“ ■ „Mér fínnst þetta al- veg fráleitt,“ sagdi Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra NT í gærkvold um dóm Sakadóms Reykjavíkur. Albert var í gær dæmdur til að greiða 6.500 krónur sekt eða sæta átta daga varðhaldi ella. Aðspurður hvort hann ætli áð greiða sektina eða sitja af sér í varðhaldi sagði Albert að liann hefði fjórar vikur til að ákveða það og hann vildi ekki gefa neinar yfirlýsingar að svo stöddu. Albert sagði að honum fyndist fáránlegt að dæma menn fyrir að halda dýr sem gerði engum neitt og engan angraði. Hann sagði að eina húsdýrið sem bannað er að hafa í Reykjavík cr hundurinn. „Það má halda fíl í fjölbýl- ishúsi en ekki hund.“ Kynferðisafbrot á Patreksfirði: Tveir játa að hafa leitað á 3 unga drengi að ræða rúmlega þrítugan mann, sem hefur viður- kennt að hafa leitað á tvo drengi. Það var sýslu- mannsembættið í Barða- strandarsýslu, sem annað- ist rannsókn málanna. Kærurnar bárust frá for- eldrum drengjanna. Þórður Björnsson ríkis- saksóknari sagði í samtali við NT í gærkvöldi, að mál þessi væru nýkomin til embættis hans og af- staða yrði tekin til þeirra fljótlega. ■ Ríkissaksóknari hefur fengið til meðferðar mál tveggja kynferðisafbrota- manna á Patreksfirði, sem hafa játað að hafa leitað á 3 unga drengi á aldrinum 5-9 ára. Mál mannanna tveggja eru alls óskyld. Annars vegar er um að ræða pilt um tvítugt, sem fyrir nokkrum vikum tældi ung- an dreng til lags við sig í húsi, sem er í byggingu á Patreksfirði. Hitt málið er nokkuð eldra og er þar um Sm liðir veikjast af eiti r- unl - Vinnu< í nýja útvarpshúsinu! iftirlitið með málið í athugun ■ Tveir smiðir veiktust af cýaníðeitrun, eftir að hafa unnið um ríflcga mánaðarskeið við að saga sundur einingar frá Berki hf. við byggingu nýja útvarpshússins. Meðal efna í einingum þessum er polyúretan og mun það hafa hitnað við sögunina og gefíð frá sér cýaníð sem mennirnir önduðu að sér. Annar smiðanna, Ingimund- ur Einarsson, sagðist í gær hafa unnið við þessar einingar síðan um miðjan maí. Hann kvað nokkuð síðan hann hefði verið farinn að finna til óþæginda af þessum sökum en lengi vel álitið að þetta væri bara venjulegt kvef þótt annað kæmi síðar á daginn. Ingimundur sagði að vinnan við þessar einingar lægi nú niðri og yrðu væntanlega notaðar grímur við þessa vinnu í fram- tíðinni. Mál þetta er nú í athugun hjá Vinnueftirlitinu og munu þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að fullnægjandi andlits- grímur verði notaðar við þessa vinnu framvegis en síðan mun einnig ætlunin að tala við fram- leiðanda eininganna, Börk hf. Cýaníðeitrun leggst á öndun- arfærin og áhrif hennar líkjast astma. Samkvæmt upplýsingum NT eru þó ekki taldar líkur á öðru en mennirnir muni ná sér að fullu. Hraðfrystistöð Eyrarbakka: Starfsfólk fór í setuverkfall - þar tii iaunin fengust greidd ■ Starfsfólk Hraðfrystistödv- ar Eyrarbakka ákvað er það mætti til vinnu í gærmorgun að hefja setuvcrkfall á staðnum þar til það hefði fengið í hendur laun þau er það átti að fá útborguð s.l. föstudag. Hrað- frystistöðin skiptir við Lands- bankann og tókst ekki að fá þaðan peninga til launa- greiðslnanna á réttum tíma. Málið leystist rétt fyrir hádegi í gær svo starfsfólkið tók til starfa á ný að afloknum hádeg- isverðatíma. Að sögn Eiríks Gíslasonar, vcrkstjóra var þetta crfiður morgun þar sem hann stóð frammi fyrir því að ákveða hvort landa ætti úr humarbát- unum sem komu inn í gær- morgun ellegar að senda þá til löndunar á Stokkseyri. Málió leystist hins vegar áður en til þess kom, svo bátarnir lönduðu heima. Eiríkur sagði búið að vcra miklu meira en nóg að gera hjá Hraðfrystistöðinni að undan- förnu. Mjög góður humarafli hafí hleypt vinnunni upp, þó heldur sé að draga úr honum síðustu dagana. Einnig hafi átt þar hlut að máli að sú ákvörðun hafi verið tekin í vor að ráða ekkert aðkomufólk til starfa í sumar, en undanfarin sumur hafi alltaf töluvert af krökk- unum frá Selfossi unnið á Eyrarbakka yfir sumarið. Af Eyrarbakkabátum sagði Eírík- ur tvo búna með kvóta sinn, þrír mundu líklega Ijúka við kvótann nú í vikunni, en tveir eigi nokkuð eftir enn. ■ Huldar Sigurðarson, verkamaður við byggingu nýja útvarpshússins brá söginní á eina Barkareiningu. Bæði blaðamaður og Ijósmyndari gátu borið vitni um að lyktin varekkigóð. ' NT.raynd: Ar ■ Edward Kennedy öldungar- deildarþingmaður tilkynnti á fundi Demókrata í Minnesóta í gær, að hann myndi styðja Walter Mondale til að ná útnefningu sem forsetaefni Demókrata í forsetakosningunum í haust. Myndin er tekin er Kennedy tilkynnti um stuðning sinn. Símamynd Polfoto Heimsliðið heldur sínu - en sovéska liðið stendur betur í biðskákum ■ Eftir aðra umfcrð er heimsliðið enn einu stigi ofar sovésku skáksnilling- unum og er staðan 7-6, en Sovétmenn eru taldir inun sigurstranglegri þegar bið- skákir verða tefídar, en það verður í dag. í annarri umferð vann gamla kempan Kortsnoi Polugajevsky en Beliavsky vann Seirawan frá Banda- ríkjunum. Heimsliðið hlaut 3'A vinning, og So- vétríkin 3Vi vinning 3 skákir fóru í biö og hafa Sovétmenn þar mun betri stöðu. Nánarábls. 21

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.