Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.2000, Side 14
Búningar 19. aldar. Kona f prjónaðri peysu
með klút um hátsinn, með djúpa skotthúfu, í
sauðskinnsskóm. Maður með skotthúfu, í
treyju, vesti, hnébuxum, prjónuðum sokkum,
með sokkabönd og á sauðskinnsskóm.
einkennum mismunandi tímabila.
Búningar Sigurðar Guðmundssonar
málara - skautbúningur og kyrtill
Árið 1858 kom Sigurður Guðmundsson mál-
ari heim frá Danmörku. Aðstoðaði hann ís-
lenskar konur við gerð skautbúnings, sem varð
aðalspariklæðnaður kvenna um hálfrar aldar
skeið. Höfðu eldri búningar og notkun þeirra
farið mjög úr skorðum við þær breytingar, sem
urðu á lífsháttum fólks og vegna erlendra
áhrifa. Skautbúningur og kyrtill Sigurðar mál-
ara hafa haldist óbreyttir, en skautbúningur-
inn er endurgerð Sigurðar af gömlu faldbún-
ingunum. Skautbúningurinn er alltaf svartur
úr klæði eða silki. Neðri hlutinn (pilsið) kallast
samfella eins og á faldbúningunum. Skreyting
á eldri pilsum og svuntum var oftast íslenskur
blómstursaumur, en á samfellu skautbúnings-
ins er algengust ullar- eða silkiskattering.
Skauttreyjan nær niður í mitti og gengur ofan í
samfelluna. Hún er krækt saman að framan og
lögð flaueli með baldýringu og samskonar
skreyting framan á ermunum. Plauelsbönd
með vírkniplingum eru á baki og um handveg. í
hálsmálinu og á ermunum er blúndaog undir
treyjunni að framan er samskonar stífað
brjóst, eins og við peysufötin. í barminn er not-
uð bijóstnæla. Sigurður hvatti til að tekin yrði
upp notkun stokkabeltis með sprota við skaut-
búninginn, en notkun sprotabelta við faldbún-
ingana hafði lagst af á 18. öld. Mesta breyting-
in á þessari endurgerð gömlu faldbúninganna
var höfuðbúnaðurinn. I stað spaðafaldsins lét
hann gera lágan, úttroðinn krókfald úr hvítu
efni og yfir faldinn kemur þunn slæða eða
blæja, sem nefnist blæja úr hvítu netefni. Utan
um faldinn að neðan kemur koffur eða spöng.
Sigurður teiknaði fjölda munstra á skautbún-
inginn og urðu þau, sem höfðu íslensku flóruna
að fyrirmynd, vinsælust. Sigurður átti hug-
myndina að öðrum léttari búningi, sem kallast
kyrtill. Ætlaði hann kyrtlinum að nýtast sem
dansbúningur, brúðarbúningur og fermingar-
búningur. Kyrtillinn er oftast hvítur eða svart-
ur, en stundum dökkblár eða dökkgrænn. Við
hann er notaður skautafaldur, blæja og spöng
eða koffur. Einnig er notuð næla í hálsmálið,
stokkabelti eða sprotabelti. Kyrtillinn er ýmist
útsaumaður eða lagður leggingum. Sigurður
málari ætlaði einnig að huga að búningum
karla, en honum entist ekki aldur til þess, hann
dó 1874. Samhugur karla reyndist ekki sá sami
og hjá konum um notkun hefðbundinna bún-
inga. Karlmannabúningar og notkun þeirra
dóu að mestu út með 19. öldinni.
Nú má ljóst vera að þessir búningar, hafa
augljós íslensk einkenni og má flokka þá eftir
tímabilum, sem þeir voru í notkun. Kallast allir
því með réttu þjóðbúningar.
Ekki er hægt að búa til nýja þjóðbúninga.
Fatnaður, sem er í samfelldri notkun um lengri
tíma verður þjóðbúningur. Sama gildir þar um,
sem um þjóðlög og þjóðsögur, almenn notkun í
langan tíma gerir þetta þjóðlegt og tryggir það
í sessi.
Að þekkja og varðveita eigin þjóðbúninga er
hverri þjóð þýðingarmikið. Þjóðir hafa á mis-
jafnan hátt varðveitt þennan menningararf.
Eftir því sem menn og málefni verða nær-
tengdari í hraða nútímans, verður meiri
ástæða til fyrir þjóðina að huga að eigin mál-
' efnum og missa ekki tengsl við uppruna sinn.
Ásdís er textílhönnuður og verslunarstjóri.
Dóra er gullsmiður. Greinin og myndirnar eru sam-
starf Heimilisiðnaðarskólans og Þjóðdansafélags
Reykjavíkur.
Tvenns konar friðarhugtök - fyrri hluti
GUÐ OG MANNRÉTTINDIN
EFTIR GUNNAR HERSVEIN
Friðarhugtak kristinna manna og friðarhugtak Sam-
einuðu þjóðanna eru andstæð. Geta menn sl capað
frið eða i er hann aðeins á valdi Guðs? Höfundur ber
saman þessi tvö friðarhugtök á ári friðarmenningar
og Kristnihátíðar og kemst meðal annars að þeirri
niðurstöðu í fyrri grein sinni að þjóðir heims hafi
hafnað friðarhugtaki eingyðistrúarbragð ia.
✓
g ætla að gera tilraun til að greina og
túlka annarsvegar friðarhugtakið í Bibl-
íunni, og hinsvegar friðarhugtakið í
mannréttindayfiriýsingu Sameinuðu
þjóðanna. Ég byggi á friðarhugtakinu í Nýja
testamentinu og vitna í staði sem styðja það í því
gamla. Önnur aðferð væri að greina það jafnvel
eftir hverri bók í testamentunum. Einnig að
fjalla sérstaklega um annarsvegar sálarfrið og
hinsvegar frið á jörð. Síðamefndi friðurinn mun
hinsvegar vera hér í aðalhlutverki.
Boðað guðsríki í Biblíunni er ljóslega ríki frið-
armenningar. Þar sem „Öll harkmikil
hermannastígvél og allar blóðstokknar skikkjui-
[hafa verið] brenndar og [orðnar] eldsmatur.
Því að bam er oss fætt, sonur er oss gefinn" eins
og stendur í Jesaja og „Nafn hans skal kallað
[...] Friðarhöfðingi" (Jes. 9.5-6). En áður hafði
fólk gætt „að fíkjutrénu og öðrum trjám. Þegar
þér sjáið þau farin að bruma, þá vitið þér af
sjálfum yður, að sumarið er í nánd. Eins skuluð
þér vita, þegar þér sjáið þetta verða, að Guðs
rfld er í nánd“ (Lúk. 21.29-30).
Vegurinn í friðarríkið er aðeins einn og „Mik-
ill skal höfðingjadómurinn verða og friðurinn
engan endi taka“ (Jes. 9.7). „Úlfur og lamb
munu vera saman á beit, og ljónið mun hey eta
sem naut, en moldin skal vera fæða höggorms-
ins“ (Jes. 65.25).
Ný Jerúsalem verður friðarborgin. „Og hlið-
um hennar verður aldrei lokað um daga - því að
nótt verður þar ekki. Og alls ekkert óhreint skal
inn í hana ganga né sá sem fremur viðurstyggð
eða iðkar lygi, engir nema þeir einir, sem ritaðir
eru í lífsins bók lambsins“ (Op. 21.25-27).
Friðurinn sem hér má greina er háður einum
guði, einu nafni og er það undirstrikað með orð-
um Jesú: „Hvar sem þér komið í hús, þá segið
fyrst: „Friður sé með þessu húsi.“ Óg sé þar
friðar sonur, mun friður yðar hvfla yfir honum,
ella hverfa aftur til yðar“ (Lúk. 10.5-6). „Þetta
hef ég talað við yður, svo þér eigið frið í mér“
(Jóh. 16.33). „Frið læt ég yður eftir, minn frið
gef ég yður“ (Jóh. 14.27). „Friður sé með yður“
(Lúk. 24, Jóh. 20.19-26).
Friðarhugtakið er bundið við eina kenningu
og íriður fæst ekki nema með því að gera hana
að sinni. Einnig sýna orð eins og „minn frið gef
ég yður“ að friðurinn kemur frá guði, lögð er
áhersla á að maðurinn skapar ekki frið, heldur
gefur guð hann.
Leiðin er ein og aðeins ein. Það er ekki undr-
unarefni, því hér er um eingyðistrú að ræða,
einn veg. Það er heldur ekki auðveld ákvörðun
að velja hann. „Ég er kominn að varpa eldi á
jörðu“ (Lúk. 12.49) er haft eftir Jesú og: „Ætlið
þér, að ég sé kominn að færa frið á jörðu? Nei,
segi ég yður, heldur sundurþykki. Upp frá
þessu verða fimm í sama húsi sundurþykkir,
þrír við tvo og tveir við þrjá, faðir við son og son-
ur við föður, móðir við dóttur og dóttir við móð-
ur, tengdamóðir við tengdadóttur sína og
tengdadóttir við tengdamóður" (Lúk. 12.51-53),
(Matt. 10.34-36).
Ekki blásið í herlúður
Mig langar til að gæta sérstaklega að þessum
orðum. Vegurinn í (friðar)rfldð er vissulega einn
í huga Jesú en hann er þó tæplega að leggja tfl
flokkadrætti eða ófrið milli lærisveina og ann-
arra hópa. Jesú talar oft með svipuðum hætti en
er þá klárlega að vísa til innri baráttu mannsins.
Dæmi: „Ef hægri hönd þín tælir þig til falls, þá
sníð hana af og kasta frá þér.“ Hér er hann aug-
ljóslega að myndgera tilfinningar líkt og gert er
í Ijóðum. Jesús er að lýsa innri baráttu manns
gagnvart því að velja þennan áðurnefnda veg.
Hann er ekki að blása í herlúður milli fylkinga,
því hann leggur ávaUt áherslu á orðin: „Misk-
unnsemi vil ég, ekki fómir“ (Matt 9.13,12.7).
Hann virðist þó vilja að það sé öllum ljóst að
hann er ekki óendanlega umburðarlyndur frið-
arpostuli, sem lítur t.d. framhjá ólíkum skoðun-
um manna, vilja og trúarsiðum. Gjöf hans fólst
ekki í því af breiða eina friðarsæng yfir alla
menn óháð trúarbrögðum, hugsun og hegðun.
Friður hans felst augljóslega í ákveðinni leið:
„Ég er vegurinn [...] Enginn kemur til föðurins,
nema fyrir mig“ (Jóh. 14.6). Friðurinn sem hann
boðar er ekki ofinn úr marglitri menningu, þar
sem t.d. hindúar, búddistar, múslimar og kristn-
ir menn fallast í faðma. Ég get a.m.k. ekki komið
auga á það.
InntökuskUyrðið í friðarrfldð er að þiggja
friðinn af guði og vantrúuðum verður hegnt, því
„Drottinn gengur út frá aðseturstað sínum til
þess að hegna íbúum jarðarinnar fyrir mis-
gjörðir þeirra“ (Jes. 26.21).
Friðarhugtakið í Biblíunni er afar skýrt. Það
er víngarður, en finni guð þyma og þistla ræðst
hann á þá og brennir þá til ösku - nema menn
leiti hælls hjá honum og gjöri frið við hann, gjöri
frið við hann (Jes. 27.5).
Skilyrði friðar er m.ö.o. að játa guð Biblíunn-
ar. „Enginn Guð er tU nema ég. Fyrir utan mig
er enginn sannur Guð og hjálpari tU. Snúið yður
tU mín og látið frelsast" (Jes. 45.21-22). SkUa-
boðin eru: Ef þið viljið frið, leitið þá hælis hjá
mér og þiggið hann. Mér sýnist þetta vera að-
ferðin hvort sem átt er við sálarfrið eða frið á
jörðu. Megineinkenni hugtaksins er að vegurinn
tU friðar er ein skýrt afmörkuð braut og friður-
inn kemur frá guði.
Umburðarlyndi er höfuðatriði
Friðarhugtak SÞ er allt annars eðlis. Það er
óháð öUum guðum og friðurinn búinn tU af
mönnum. í mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu
þjóðanna frá árinu 1948 er lögð áhersla á um-
burðarlyndi gagnvart öðrum, skoðunum þeirra
og trú, og að bera virðingu fyrir trúarbrögðum
annarra. Umburðarlyndi er lykilorðið en það
fæðist af skUningi og sýn til allra átta, andstæð-
an er einstrengingur sem brýst út í hörku og
strangleika í viðbrögðum. Eða að þola aðeins
fólk sömu skoðana, sömu þjóðar, litarháttar og
menningar. Umburðarlyndið á að skapa frið. I
umburðarlyndi felst viðurkenning á fijálsu sam-
félagi manna með skoðana- og trúfelsi og óskor-
uðu frelsi til allra gerða sem varða einstakling-
inn einan. Niðurstaða umburðarlyndis er m.a.:
Líf í sátt og samlyndi óháð trúarbrögðum.
SÞ hafa helgað árið 2000 friði og nefnt það Al-
þjóðaár friðarmenningar. Menn eru hvattir tU
að hugsa um frið og glíma við friðarhugtakið.
Fyrsti áratugurinn hefur einnig verið helgaður
friði til handa bömum í heiminum. En hvaða að-
ferð er mælt með til að vinna að friði í heimin-
um? Svarið er að menn reyni að vinna gegn for-
dómum sínum gagnvart fólki af ólíkum
uppruna, úr annarri menningu, og sem iðkar
aðra trú. Að það elski óháð kynþætti, Utarhætti,
búsetu, kyni, menntun og fyrri störfum. Að fólk
reyni að kynnast hvert öðru með því að starfa
saman að sameiginlegum verkefnum. Virði nátt-
úruna, sigrist á græðgi sinni, hroka og ofmetn-
aði. Reyni að koma böndum á sjálfselskuna og
læri að finna til með öðrum, sem er sennilega
ekki meðfædd tilfinning.
Umburðarlyndi einstaklinga hinna óMku
menningarheima er sögð forsenda friðarins á
milli þeirra - án þess að traðkað sé á öðrum, en
frið þrá allir, frið til að vera það sem þeir vilja.
Umburðarlyndið er svo nauðsynlegt vegna þess
að mannheimurinn er samansettur úr ólíkum
heimsmyndum, trúarbrögðum, viðhorfúm og at-
höfnum.
Friður og frelsi
350 ungmenni frá 175 löndum þinguðu á veg-
um Sameinuðu þjóðanna í París á síðasta ári og
sömdu yfirlýsingu um frið. Þar stendur m.a.:
„Ungt fólk þráir frið á meðal þjóða á 21. öldinni.
Friður og mannúð er markmið allra, óháð borg-
arastétt, menningu og trúarbrögðum, það er
forsenda sem allar þjóðir geta sameinast um.
Nöfn okkar, kenninöfn, þjóðemi, tungumál, trú
og litur eru ef til vill ólík en innsti kjami okkar
allra er sá sami, öll erum við menn“ (Yfirlýsing
ungmenna til 21. aldarinnar).
REUTERS
Börn eru ævinlega nefnd sem gild
ástæða til að rækta friðinn.
Sýn þeirra á friðarríld framtíðarinnar er að
öll böm kristinna manna, gyðinga, múslima,
hindúa, búddista og annarra trúarsiða lifi í sátt
og samlyndi á jörðinni, virði hana og aðra eins
ogsjálfsig.
Friðarboðskap eingyðistrúar er m.ö.o. hafnað
og það er bókstaflega sagt rangt að gera grein-
armim á mönnum, t.d. eftir trú, í ljósi 1. liðar 2.
gr. mannréttindayfírlýsingarinnar: „Hver mað-
ur skal eiga kröfu á réttindum þeim og því
ftjálsræði, sem fólgin eru í yfírlýsingu þessari,
og skal þar engan greinarmun gera vegna kyn-
þáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúar,
stjómmálaskoðana eða á annan hátt háð tak-
mörkunum á íúllveldi sínu.“
En hver er þá friðarvegurinn? „Það ber að
viðurkenna, að hver maður sé jafnborinn til
virðingar og réttinda, er eigi verði af honum tek-
in, og er þetta undirstaða frelsis, réttlætis og
friðar í heiminum,“ segir í inngangi mannrétt-
indayfirlýsingar SÞ og jafnframt að „æðsta
markmið almennings um heim allan sé að skapa
veröld, þar sem menn fái notið málfrelsis, trú-
frelsis og óttaleysis um einkalíf og afkomu.“
Vegur friðarins er því að „Allir menn skulu
ftjálsir hugsana sinna, sannfæringar og trúar. í
þessu felst fijálsræði til að skipta um trú eða
játningu og enn fremur til að láta í ljós trú sína
eða játningu, einir sér eða í félagi við aðra, opin-
berlega eða einslega, með kennslu, tilbeiðslu,
guðsþjónustum og helgihaldi“ (18. gr.).
Vonin er bundin við framúrskarandi umburð-
arlyndi með það að markmiði að beina menntun
„í þá átt að þroska persónuleika einstaklinganna
og innræta þeim virðingu fyrir mannréttindum
og mannhelgi." Menntunin „skal miða að því að
efla skilning, umburðarlyndi og vináttu meðal
allra þjóða, kynþátta og trúarflokka og að efla
starf Sameinuðu þjóðanna í þágu friðarins“ (26.
gr.).
Sumar í nánd?
Friðarhugtakið, sem markmiðið er að allar
þjóðir heims læri, felur í sér umburðarlyndi og
virðingu allra óháð kynþætti, litarhætti, kyn-
ferði, tungu, trú og stjómmálaskoðunum.
Markmiðið er að skapa friðarmenningu þeirra
og afleiðingin á að vera mildi gagnvart lífinu,
rósemd og öryggi, jafnvel gleði. Þessi friðarveg-
ur SÞ er skýr og sagður breiður, en þó eru frið-
arpostular SÞ ekki óendanlega umburðarlyndir
fremur en Jesús. Jesús hafnar fjölhyggju og
býðst til af gefa mönnum sinn frið. SÞ velja hins-
vegar fjölhyggju og hafna eingyðistrúarbrögð-
um og reyndar öllum trúarbrögðum sem leið til
friðar. Þjóðimar vilja gefa sinn frið.
Niðurstaða mín er að friðarhugtakinu í Bibl-
íunni haíi verið hafnað af þjóðum heims, og að á
næstu öld verði unnið að friðarmenningu þjóða
undir merkjum hugtaka eins og frelsis, virðing-
ar og umburðarlyndis. „Sumarið" sem SÞ vona
að sé í nánd verður til án hjálpar guða (eða lykil-
hugtaka trúarbragða eins og búddisma eða
hindúisma). Megineinkenni þessa friðarhugtaks
er hinn breiði vegur með mörgum akreinum.
Það er óháð öllum trúarsetningum. Friðurinn er
óháður guðum.
Meginmunur hugtakanna tveggja er eftirfar-
andi: Annað er háð einum guði og friðurinn er
gefinn af honum vilji menn þiggja. Aðrir guðir
em útilokaðir. Hitt er óháð öllum guðum og frið-
urinn er skapaður af mönnum. Allir guðir em
útilokaðir.
Hugtökin em bæði göfug. Þau era skýr en
ströng. í þeim endurspeglast leið guðs og leið
heimsins, og einstaklingamir standa á milli
þeirra.
Til umhugsunar má spyija að lokum: Em þau
bæði gölluð fyrst þau útiloka bæði ákveðin sjón-
armið og skoðanir? Er hægt að ve]ja þau bæði
eða verður að velja á milli þeirra?
íslendingar játa bæði hugtökin og lifa í mót-
sögninni.
Höfundurinn er heimspekingur.
1 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 15. APRÍL 2000