Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.2000, Blaðsíða 4
LÓAN ER
KOMIN
HEIÐLÓAN í ÍSLENSKRIOG ERLENDRI ÞJÓÐTRÚ
EFTIR SIGURÐ ÆGISSON
Að öllum líkindum er heiðlóan kærasti fugl okkar fs-
lendi nga. Vinsældir hennar eru auðvitað f/rst og síð-
ast til komnar vegna þeirrar næstu almennu trúar, að
hún sé persónugervingur vors og sumars.
Lóan er komin, lóan er komin,“ kalla
bömin og hlaupa lafmóð inn í bæ að
segja tíðindin. Jafnvel gamalmenni
staulast út á hlað til að heyra
gamalkunnan söng bernskunnar.“
Þannig ritar Guðmundur L. Frið-
finnsson frá Egilsá i Skagafirði í
I bókinni Þjóðlíf og þjóðhættir sem
út kom árið 1991. Orðin lýsa vel þeim hug sem
íslendingar báru til hins gulllitaða vaðfugls
sem öðrum fremur boðaði þeim með komu
sinni hingað upp, að brátt myndi vetur kon-
ungur losa tök sín af móður jörð og gróandinn
halda innreið sína um fjöll og dali og tún.
Og nú, vorið 2000, er heiðlóunni enn fagnað i
sveitum landsins og bæjum og svo mun ugg-
laust verða áfram um ókomin ár, meðan þessi
eyja norður í Dumbshafi er byggð lifandi fólki.
Nafngiftin
í bókinni Nöfn íslendinga, frá árinu 1991,
kemur fram, að samkvæmt manntali árið 1910
báru tvær íslenskar konur nafnið Lóa; önnur í
Snæfellssýslu, en hin í Dalasýslu. í þjóðskrá
árið 1989 voru 76 konur skráðar með þessu
nafni sem einnefni, eða fyrra nafni af tveimur,
og 90 að síðara nafni. Hinn 1. desember 1999
voru þær 92, sem hétu þetta að aðalnafni. Ef-
laust er þetta dregið af vorboðanum ljúfa, en
fuglsheitið lóa er æði gamalt í málinu, kemur
þegar fyrir í Snorra-Eddu (13. öld). Orðmynd-
in heiðlóa er mun yngri, þekkist a.m.k. á 19.
öld, og er er af ýmsum talin merkja „heiða-
fuglinn sem barmar sér“. Einnig er sú hug-
mynd til, að viðliðurinn sé hljóðnefni, myndað
af kvakhljóði fuglsins: „lir-lir-lir-lo-la“ eða ein-
hverju þesslags og hafi með tímanum verið
dregin saman í „lo-la“ eða „ló-la“ og að end-
ingu bara í „ló“. Og enn önnur tilgáta er sú, að
lóan dragi nafn af orðinu ló (= ullarhnoðri,
loðna á klæði) og að baki sé „mergð fugla á
heiðum uppi“, er minni á ló á klæði. Þetta sé
m.ö.o. safnheiti og hafi upphaflega verið
„heiðaló".
í bókinni Nöfn íslendinga er hvergi að finna
kvenmannsnafnið Heiðlóa, en samt veit ég um
eina; það að hennar er ekki getið á sér eðlileg-
ar skýringar. Hún kom í þennan heim 28.
mars árið 1972 og var gefið nafnið Heiður Lóa.
Sjálf lét hún breyta því í Heiðlóa, árið 1992, og
er eina konan, sem vitað er til að hefur borið
það nafn. Hún býr núna í Reykjavík og er
hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum.
Önnur íslensk nöfn heiðlóunnar, flest ef
ekki öll eldri en núverandi heiti, eru t.d. brok-
fugl, heiða(r)lóa, heiðló(i), heiló(a), heyláfa,
heyló(a) lava, láfa, láva, ló(a), lóva og þeyló.
Einnig kölluðu sumir hana fyrrum lævirkja og
turtildúfu.
Leirfuglarnir
Eftir því sem íslensk þjóðtrú fullyrðir, var
heiðlóan ekki sköpuð með öðrum fuglum him-
insins á fimmta degi, heldur var uppruni henn-
ar á þessa leið:
Einu sinni var Kristur að mynda fugla af
leiri með öðrum börnum Gyðinga á sabbats-
degi. Þegar börnin höfðu verið að þessari iðju
um hríð, bar þar að einn af Sadúseum; hann
var aldraður og siðavandur mjög og átaldi
börnin fyrir þetta athæfi þeirra á sjálfum
sabbatsdeginum. Hann lét sér þó ekki nægja
ákúrurnar einar, heldurgekk hann að leirfugl-
unum og braut þá alla fyrir börnunum. Þegar
Kristur sá hvað verða vildi brá hann hendi
sinni fyrir allar fuglamyndirnar, sem hann
hafði búið til, og flugu þeir þegar upp lifandi.
En það eru lóurnar, og því er kvak þeirra
„dýrrin eða dýrrindi“ að þær syngja drottni
sínum dýrð og lof fyrir lausnina frá ómildri
hendi Sadúseans.
Að öllum líkindum er heiðlóan kærasti fugl
okkar íslendinga. Vinsældir hennar eru auð-
vitað fyrst og síðast til komnar vegna þeirrar
næstum almennu trúar, að hún sé persónu-
gervingur vors og sumars. Um hana og tvo
aðra vini þjóðarinnar segir í gamalli vísu:
Heyló syngur sumarið inn,
semur forlög gaukurinn,
áður en vetrar úti er þraut
aldrei spóinn vellir graut.
Fyrr á öldum var talið að heiðlóan (og raun-
ar aðrir smáfuglar líka, s.s. krían og steindep-
illinn) færi aldrei af landi burt, heldur lægi í
vetrardvala. Þetta var algeng trú með öðrum
þjóðum líka, var í Danmörku t.d. sagt um
vepjuna, gaukinn, landsvöluna og íleiri
tegundir. Oddur Einarsson Skálholtsbiskup
ritaði Islandslýsingu á latínu, að talið er árið
1588 eða 1589, þar sem hann m.a. segir:
Sumir fullyrða, að lóur og spörfuglar leiti í
hella og kúri í leynum eins og í dái til þess
tíma, sem guð hefur ákveðið, en fljúgi þá það-
an út hópum saman sem vaktirfrá dauðum.
Þessi trú átti eftir að verða langlíf. Gísli
Oddsson Skálholtsbiskup kannast við þessa
sögn, enda sonur áðurnefnds Odds Einarsson-
ar, og fer um hana nokkrum orðum, en Eggert
Ólafsson er með nánari fróðleik um málið, þar
sem hann er á ferð um Dalasýslu og Vestfirði á
seinni hluta 18. aldar. Hann segir:
Almennt álíta menn, að heylóan liggi í dvala
á vetrum. Sagnir herma, að þær hafí fundizt
sofandi í hellum ífjöllum uppi, en vaknað, þeg-
ar þær voru bornar inn í hlý hús. Sagt er, að
þær sofí með ungan birki- eða víðikvist í nef-
inu. Ef hann hefír verið tekinn afeinni þeirra,
en hinar látnar óáreittar, hefír sú lóa fundizt
dauð á sama stað á vorin, þegar hinar voru
flognar burt.
Jónas Jónasson frá Hrafnagili vitnar í Egg-
ert Ólafsson, en segir þetta jafnframt vera út-
breidda sögn. Úfærsla hans er þessi:
Lengi trúðu menn því, að lóan færi ekki af
landi burt á haustin, heldur tækihún laufblað í
nef sér eða birkiviðaranga, og svo svæfí hún í
klettasprungum veturinn af, þangað til vor-
hlýjan vekti hana. Eflaufblaðið er tekið burtu,
deyrhún, en ef hún er tekin og borin inn íhlýtt
hús, vaknar hún og vakir til vors.
Og hér með er ekki allt sagt. Menn gátu
nefnilega átt yfir höfði sér refsingu, ef þeir
deyddu lóu með því að taka laufblaðið eða
kvistinn úr nefi hennar, meðan hún lá í dá-
svefninum. Sigfús Sigfússon þjóðsagnasafnari
kann dæmi um það:
Maður fann 7 lóur í klettasprungu sofandi
með lauf ínefí eða undir tungu. Hann tók eitt
og fór með það. Um vorið kom hann þar, og lá
þá þar dauð eftir sú, er laufíð hafði misst. En
það var lagt til gjalds, að börn hans skyldu
fæðast með gráti, og svö öll börn síðan.
Jón Arnason þjóðsagnasafnari er með álíka
sögn, en minnist ekki á refsinguna.
Misjaf nar væntingar
Sumir trúðu því að ef farfuglar kæmu
snemma boðaði það gott vor; það var t.a.m. álit
bænda á miðhluta Fljótsdalshéraðs (í Fella-
hreppi og Vallahreppi). Gömul trú í Aðaldal og
Ljósavatnshreppi í S-Þingeyjarsýslu var að
Teikning: Jón Baldur HlíSberg.
Heiðlóa á vappi. í þéttbýlinu getur lóan orðið spök og virðist jafnvel vera forvitin. Inni á golfvell-
inum f Grafarholti í Reykjavík hafa margar kynslóðir af lóum vaxið upp og vanist manninum. Þær
horfa gjarnan á menn slá og vita að það er engin hætta þótt menn sveifli kylfum.
eftir komu sumra farfugla kæmu vorhret. Þau
voru nefnd eftir tegundinni. Þrjú voru oftast
nefnd: lóuhret, spóahret og kríuhret. Stund-
um brugðust hretin en stundum voru þau líka
miklu fleiri og voru þá kennd við eitthvað ann-
að.
Talsvert var þó breytilegt hvort menn fögn-
uðu lóunni, er hún kom til Islands eftir vetrar-
dvöl ytra, og virðist þetta nokkuð hafa farið
eftir landshlutum. A sunnan- og vestanyerðu
landinu töldu margir að hún væri lítill spámað-
ur, og ills viti ef hún kæmi mjög snemma, en
norðan- og austanlands var henni fagnað sem
vorboða. Arni Björnsson þjóðháttafræðingur
(Saga daganna, 1993) telur, að skýringarinnar
geti verið að leita í því, að heiðlóan „kemur yf-
irleitt fyrr til suðurlandsins, þegar enn má
búast við hretum, en færir sig norður yfir með
sunnanvindi sem oftast veldur góðviðri á því
svæði“. Virðist þetta speglast í alþekktum
sumarvísum. Austfirðingurinn Páll Ólafsson
yrki t.d. um lóuna meðan jörð er enn snævi
þakin:
Lóan er komin að kveða burt snjóinn...
En Breiðfirðingurinn Jón Thoroddsen fagni
lóunni hins vegar ekki fyrr en jörð er tekin að
grænka:
Vorið er komið og grundirnar gróa
gilin og lælámir fossa af brún.
Syngur í runni og senn kemur lóa...
Eflaust er þetta rétt hjá Árna, að verulegu
leyti a.m.k. Hitt er ljóst að undantekningar
má finna beggja vegna. Ég á t.a.m. heimild um
að í Mýrasýslu hafi lítið mark verið tekið á
komu lóunnar þótt hún væri alltaf kærkominn
gestur. Og í Helgafellssveit á Snæfellsnesi,
hér og þar í Árnessýslu, og reyndar einnig á
Jökuldal á Fljótsdalshéraði, þótti fremur ills
viti ef lóan kom hingað til lands snemma á vor-
in, t.d. í góulok (fyrir 20. mars eða svo) eða í
einmánuði (en hann tók við af góu); slíkt boð-
aði öruggt vorkast framundan, best þótti ef
hún kom ekki fyrr en um sumarmál (19.-25.
apríl). I A-Skaftafellssýslu, Borgarfirði syðri
(Hálsasveit, Reykholtsdal) og í Súgandafirði
tóku menn ekki eins djúpt í árinni, heldur
leyfðu sér að vona að hlýindi væru framundan
um leið og fuglinn birtist, þótt snemma væri.
En sums staðar ó landinu var lóan hinn eini
og sanni vorboði, m.a. í Strandasýslu (a.m.k.
áttu stærri hret þá að vera yfirstaðin), A-
Húnavatnssýslu, í Hörgárdal og í Breiðdal í S-
Múlasýslu. Við Isafjarðardjúp og í Skagafirði
töldu menn veturinn liðinn, þegar hún söng
„dírðidí“ (ísafjarðardjúp) eða „dýrðin, dýrðin“
(Skagafjörður). Enginn farfugl kom jafn
snemma í Borgarfjörð eysti og lóan. Er það
gerðist „var því almennt trúað og treyst að
vorið væri gengið í garð. Sérstaklega ef hún
söng „dirrindí". Efi leyndist þó ef lóan aðeins
kvakaði „bí, bí, bí.““ Jón Árnason nefnir álíka,
að kveði lóan fyrst á vorin „dýrrin, dýrrin",
viti það á gott, en heyri maður til hennar „óhú,
óhú“, sé verra framundan.
Stundum lásu menn önnur skilaboð og pers-
ónulegri af kvaki lóunnar, eins og t.d. áður-
nefndur Páll Ólafsson, sem yrkir:
Hún hefur sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefir sagt mér að vakna og vinna,
og vonglaður taka nú sumrinu mót.
Lóan sem veðurviti
Á íslandi var heiðlóan talin næstbestur
söngfugla og því trúað að hún gerðist þögul á
undan illviðrum á vorin, en syngi tveim rödd-
um vissi hún sólbráð á næstu grösum. Eitt-
hvað mun þessi trú samt hafa verið mismun-
andi eftir landshlutum, eins og annað
framannefnt. Á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð
sögðu menn t.d. upp úr aldamótunum 1900 að
lóur flygju hratt og með miklum vængjaþyt og
kvökuðu „bí, bí“ á undan illviðri, en syngju
„dýrðin, dýrðin" þegar nálgaðist veðurbata.
Og maður einn í Hörgárdal, fæddur 1888, seg-
ir, að þegar lóur hafi mjög látið til sín heyra að
morgni dags, hafi mátt búast við regni eða
þoku er á daginn leið. í Breiðdal í S-Múlasýslu
sögðu menn, að talið væri að lóan „með kvaki
sínu boðaði bæði góðviðri og rigningu. Þegar
hún söng „dýrðin, dýrðin“ boðaði það góðviðri.
En þegar hún söng „spítí, spítí“ boðaði það
rigningu." Og Sigurður Þrólfsson getur þess
loks í bók sinni Alþýðleg veðurfræði (1919), að
syngi lóan „dirrin, dirrin“, verði þurrt næsta
dag, en syngi hún „fú, fí“ boði það votviðri.
Ekki boðaði það alltaf gott, ef lóur hópuðu
sig. í lagi var ef það gerðist í móum eða aur-
um, slíkt merkti góða tíð framundan, en ef ló-
ur flykktust í slægju eða á tún yfirleitt, var
það fyrirboði um hið gagnstæða. Þórður Tóm-
asson ritar t.d. í einni bóka sinna, Veðurfræði
Eyfellings (1979):
Ég man, hve því var fagnað í rosatíð um
sláttinn, er lóan hópaðist að kvöldi dags í aur-
inn austan víð bæinn heima í Vallnatúni og
söng þar sitt fjölraddaða „dýrðin, dýrðin". Þá
var iangþráður þerrir á næsta leiti.
En frá Jökuldal á Fljótsdalshéraði, nánar
tiltekið Jökulsárhlíð, kemur um hitt eftirfar-
andi frásögn:
Það mátti mikið marka fuglana hvernig veð-
ur yrði þann og þann daginn á sumrin. Þá
miða ég nú helst við lóuna. Þó það væri til
dæmis glaða sólskin og heiðskírt veður að
morgni, ef hún kom heim á tún í stórum hóp-
um og settist á túnið og söng þá var svolítið
öðruvísi hljóð í henni, svona þunglamalegra og
vælulegra, þá mátti nú vara sig á því að breiða
mikið af heyi, þvíþað var hér um bil víst aðþað
yrði komin rigning um miðjan dag.
I Borgarhreppi í Suðursveit boðuðu margar
lóur saman í heyflekk á sólskinsdegi rigningu
næsta dag. Og þetta gekk eftir, er sagt. í
Lónssveit í A-Skaftafellssýslu boðuðu þær
einnig illviðri, kæmu þær í hópum á túnin, sér-
staklega ef í þeim heyrðist „sjoytí“. í V-
Skaftafellssýslu er haft fyrir satt, að flygju
þær „lágt, með háu, einstöku kvaki“, væri það
„órækur vottur um regn og jafnvel storm...“
Engin nákvæmari tímasetning fylgdi í tveim-
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 15. APRÍL 2000