Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.2000, Qupperneq 2
Þúsund ára
kristni
]
Það dimmdi ekki alveg í garðinum:
fölið féll.
----en í upphafí, sagði maðurinn
hefír einhver skapað heiminn.
Ég heyri yður þó að þér heyrið
mig ekki.
Nema heimurinn sé ekki til;
hugsanlega; ekki enn
eða aðeins sem bústaður dauðans?
- - ég lifði í formlegum huglægum
garði et nunc in pulvere dormio:
nú hvíli ég í duftinu, hugsun
mín ekkert annað en fáein svip-
brigði í þunnu veðri: kulið
sem vekur þau afleiðing mótspyrnu-
leysis og kemur að innan en kviknar
ekki við hark fyrir utan: heimurinn
er til en sannindamerki þess
ekki háreysti yðar heldur óumflýjan-
leg hæpni:
ekkert er alveg sem
sýnist hvorki orð mín hér né gjörðir
yðar sem lifið en dum vivimus vivamus:
lifum á meðan lifum: í ár halda
mótmælendur, bráðlát Guðs börn uppá
þúshundrað ára upphaf katólskrar
kristni í landinu en í upphafí,
sagði maðurinn án þess að láta sér
fipast: í upphafí skapaði Drottinn
himin og jörð.
VIÐKVÆÐI
Ef þú frátengir líf þitt
tímanum: minnist einskis
þráir ekkert og heppnast
það, sérðu lífið í fullri
dýrð þ.e. lifandi brotum
Hann
sem reisti yður kirkju sína
á orðaleik skildi, vafalaust,
brotagerð lífsins en Marta,
Marta, eitt er nauðsynlegt.
A.
Kristján Karlsson
MÁLVERK: KRISTJÁN DAVÍÐSSON
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 15. APRÍL 2000