Lesbók Morgunblaðsins - 31.08.1991, Blaðsíða 13
Iiai £ £ ii i í H S i CS 3 kBSN .» iiiiC*5ðiI'2ð92
BSUKl pgMW|rw»—ii.«.'i»iii-nigMMMMMMMMBBnKaB3smiiaH«i«Hm»»^ffTPrmTJTiTI1 I I l'lll11 rrf^fínTfTfl^f
:i__H íf I 1 f T i f j ... T 1 - : '-S'IK . -«
FERB4BIAD
lesbókar
Friðsælt að kasta færi út við
hafnargarðinn í Vilamoura þar
sem lystisnekkjur og seglskút-
ur streyma út og inn.
Séð yfir höfnina í Vilamoura Marinotel.
Skyggnst um á Algarve
A söguslóðum friðsælla fiskiþorpa og í nýjum ferðamannabæjum
Stefnan er tekin á Faro, höfuðborg Algarve, syðsta hluta Portúgals og flogið í suðaustur frá
Lissabon. Mjúk, ávöl Monchique-fjöllin blasa við í sólarbreiskju. Sá hluti Algarve sem ferðamenn
þekkja lítið, en þykir mjög fagur, einkum á vorin, þegar hundruð litskrúðugra villiblóma breiða úr
sér í fjalladölunum. Monchique-fjöll eru „listigarður Algarve" og heilsubrunnur. Þar leynast heilsu-
iindir með lækningamætti sem gefa frá sér 20 milljónir lítra af vatni árlega. En ferðamenn lialda
sig við ströndina, enda einstaklega fögur strandlengja, sem teygir sig 150 km frá höfða heilags
Vincents að Iandamærum Spánar, en æði mótuð af ferðamönnum!
Ferðamenn og fiskimið!
Mikil er ábyrgð okkar sem
flökkum milli þjóðlanda og heimt-
um þjónustu og húsaskjól! Við
komum og förum eins og fiskur-
inn. Erum á „einum miðum“ í
nokkur ár, en skiptum svo yfir á
önnur, án nokkurs fyriivara. Þessi
orð fljúga um hugann þegar ekið
er frá Faro til Vilamoura (25 km)
um hálfgerða draugabæi, byggða
fyrir ferðamenn sem sýna sig svo
ekki! Margir hafa veðjað hér á
ferðamanninn - um 70% nýrra
hótelbygginga standa hálfgerðar
eða auðar á svæðinu! Hálfgerðan
hroll setur að mér í miðri eyði-
byggð í Vilamoura sem er hluti
af 4.000 ekra ferðamannabyggð.
Gapandi gluggatóftir eru jafn
draugalegar hvort sem húsin eru
ný eða gömul.
Eitt eru hótelbyggingar. Annað
eru hálftóm ferðamannaþorp þar
sem hús og íbúðir eru boðin til
sölu - víða á hagstæðu verði (ath-
ugið að þorpin eru stjörnumerkt
eftir afþreyingarmöguleikum).
Margir vilja breyta um lífsstíl og
eiga góða daga í hlýju loftslagi.
En sorglegt er að sjá hve lítil
stjórnun virðist vera á uppbygg-
ingu. Vonandi á Algarve ekki eft-
ir að lúta sömu örlögum og Costa
del Sol, að verða yfirbyggt ferða-
mannasvæði. Portúgal er eitt
skemmtilegasta ferðamannaland
í heimi og ætti sem slíkt að vera
undir strangri umhverfisvernd í
uppbyggingu.
Mosku-kirkjur og
fiskibátar með augu
Ef horft er framhjá öllum ný-
byggingum meðfram veginum má
víða finna ósnortin fiskiþorp með
hvítkölkuðum húsum þar sem allt
snýst um fiskveiðar. A ströndinni
er gaman að ganga innan um
glaðlega máluðu fiskibátana með
stóru „augunum" til verndar illum
öndum samkvæmt þjóðtrúnni. í
myrkrinu blakta ljósker bátanna
úti fyrir ströndinni - og kannski
stafar Ijósi frá „augunum“!
Og víðfeðma menningarsögu
má lesa úr kirkjuskreytingum og
kirkjulistaverkum. En gömlu
kirkjurnar bera þess víða merki
að hafa verið breytt úr moskum.
Portúgalir eru trúhneigðir og sá
ferðamaður sem hittir á trúarhá-
tíðir má teljast heppinn, en þær
eru óhugsandi nema með tilheyr-
andi skrúðgöngum, trumbuslætti
og flugeldasýningum.
Fiskur og vín
Portúgalir eru snillingar í mat-
argerðarlist þeirra ólíku fiskteg-
unda sem þeir draga á land. Hér
fáið þið heimsins besta fisk. En
gætið ykkar? Fjölgun ferðamanna
hefur haft mengun í för með sér!
í sumarhitunum getur verið vara-
samt að borða skelfisk nema á
viðurkenndum veitingahúsum.
Borðið aidrei úr lokuðum skeljum!
Sérréttur Algarve er Cataplane,
pottréttur með skelfiski, rækjum,
svínakjöti, hvítvíni, pipar, lauk og
fleiri kryddtegundum. Prófið líka
sverðfiskinn, Espadarte, sem er
mjög góður.
Og Algarve-búar eiga góð vín
til að skola niður fiskréttum.
Muscatel vínin eru geymd í eikar-
tunnum a.m.k. 7 ár og hafa
18-19% áfengismagn. Þurrt
Muscatel er fordrykkur, en sætt
yfirleitt með eftirrétt. Medronho
er mjög gott vín sem minnir á
koníak, búið til úr villtum, sam-
nefndum vínberjum - en býsna
sterkt! Framreitt í snafsglösum,
einkum á litlum vegbörum „tasc-
as“.
Ef þið viljið fá ljúffengt Medr-
onho, þá komið ykkur vel við ein-
hverja portúgalska húsmóður. Það
þykir best heimabruggað. Hun-
angs-koníakið, Brandymel, er líka
vinsælt. Alfonso III og Algar Seco
eru mjög þurr vín, borin fram
köld sem fordrykkir, bæði fram-
leidd í Lagos sem er aðalvínbær-
inn.
Þjóðsögur og þúsund
nátta dulúð
Og þjóðsögur spretta upp úr
landslagi og þúsund nátta dulúð
býr í örnefnum. Nafnið Algarve
„A1 Gharb“ kemur úr arabísku
og þýðir „vestrið" eða „landið fyr-
ir handan“, en Márar ríktu hér í
500 ár. Höfuðborg þeirra var Silv-
es þar sem enn stendur márískur
kastali og dómkirkja frá 13. öld.
Algarve -var einangrað land-
Trúarhátíðir Portúgala með truinbu-
slætti, skrúðgöngum og flugeldasýning-
um eru litríkar.