Lesbók Morgunblaðsins - 06.01.1990, Qupperneq 13
LESBOK
M O R G U N B L A Ð S I N S
6. JANÚAR 1990
1HRD4BIÁD
LESBÓKAR
Vetrarferðir
Guðjón M. 0.
Komið að Hvítárnesskála.
Hver árstíð hefiir sína töfra og veturinn hefiir þá í ríkum
mæli sem sífellt fleiri kunna að meta til útiveru. Fyrir marga
er veturinn raunar uppáhaldstími til ferðalaga og útiveru.
Veturinn var einu sinni tími skíðamennsku eingöngu, en
margra annarra kosta er völ í ferðum Ferðafélags Islands
sem lesa má um í nýútkominni ferðaáætlun.
Skíðagönguferðir skipa að
sjálfsögðu veglegan sess,
aðallega frá febrúar og
fram í apríl. Allstór hópur fólks
lætur sig ekki vanta sunnudag
eftir sunnudag þetta tímabil, en
Skálar Ferðafélagsins í Landmannalaugum.
þessi hópur mætti vera miklu
stærri. Þeir sem eru komnir í
góða æfingu taka þátt í ferðum
er hefjast kl. 10.30, en þeir sem
vilja styttri skíðagöngur koma í
ferðir kl. 13. Þær síðarnefndu
henta einmitt vel byijendum í
gönguskíðaíþróttinni. Vinsæl-
ustu gönguleiðirnar eru á Blá-
fjallasvæðinu, við Hengil og á
Mosfellsheiði. Skíðaferðir verða
alla sunnudaga frá 4. febrúar til
og með 8. apríl og bæði fyrr og
lengur ef snjólög og áhugi leyfir.
Aðrir sem ekki stunda skíða-
ferðir þurfa þó aldeilis ekki að
sitja hreyfingarlausir heima hjá
sér því skipulagðar eru göngu-
ferðir bæði um láglendi og fjöll.
í boði eru nýjungar sem rétt er
að líta á nánar.
Ein af fyrstu dagsferðum árs-
ins er Þingvallaferð sunnudaginn
14. janúar þar sem tækifæri
gefst til að skoða þennan mesta
sögustað okkar að vetrarlagi og
Milli
Stóra. og Litlaenda. Valal„#kur , ,,alsý„
jafnframt verður helgistund sem
séra Heimir Steinsson þjóðgarðs-
vörður mun sjá um.
Verferðir eru nafn á ferðaröð
til kynningar á gömlum ver-
stöðvum og verður fyrsta ferðin
farin til Grindavíkur. Verferðirn-
ar verða alls 5 á árinu. Önnur
ferðaröð sem byrjar í vetur nefn-
ist „fjall mánaðarins“ og hefst
hún með gönguferð á Stóra-
Bolla í Grindaskörðum sunnu-
daginn 18. febrúar. Það er ágætt
að byija á lægri fjöllunum í vet-
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Ferðafélagsins