Lesbók Morgunblaðsins - 14.06.1986, Page 10
Andvaraleysi gagnvart íjöl-
sóttustu ferðamannastöðunum
eftir Sigríði Hallgrímsdóttur, Kynnisferðum sf.
Undanfarin 10—15 ár hefur að-
búnaður erlendra ferðamanna er
koma til íslands breyst mjðg til
batnaðar. Hótel og matsölustaðir
hafa risið víða um landið, flestir aðstandend-
um sínum til mikils sóma. Vegir hafa stór-
batnað, hópferðabílar hafa verið endumýj-
aðir, menntun leiðsögumanna hefur verið
endurskoðuð og bætt og þannig mætti lengi
telja. Flestir þeirra erlendu gesta sem hingað
til lands koma hrífast mjög af hinni fögru
náttúru sem við höfum af að státa og vilja
sjá sem flest markvert, oft á sem stystum
tfma. Þær ferðaskrifstofur sem auglýsa ís-
land, bæði innlendar og erlendar, láta oft
fylgja með litmyndir af geysifallegum nátt-
úruundrum, ótilgreindum, þannig að þegar
þeir sem hingað koma ætla síðan að skoða
þetta tiltekna náttúruundur, þá er það oft
ekki í alfaraleið og illmögulegt að komast
þangað nema örstuttan tíma ársins. Nokk-
urs andvaraleysis hefur gætt hjá ferðaskrif-
stofunum og ferðamálaráði hvað varðar
flölfömustu ferðamannastaðina, s.s. Geysi
og Gullfoss. Merkingar við þessa staði eru
litlar sem engar og oft setja þeir sem þessa
staði sækja sig í stórhættu þegar þar er
farið um. Vissulega útskýra leiðsögumenn
fyrir hópum sem þeir fara með þær hættur
sem fyrir hendi eru, en það nægir oft ekki.
Má sem dæmi nefna þegar geysistórir hóp-
ar, oft u.þ.b. 1 þúsund manns (skemmti-
ferðaskip, ráðstefnuhópar o.fl.), eru í einu
staddir við Gullfoss. Þar eru göngustígar,
hluti af þeim er oft mjög háll, og oft fellur
úr þeim og þeir brotna þannig að stórhætta
getur orðið af. Hvergi við göngustígana eru
merkingar um hættu sem af þessu getur
stafað. Ferðamálaráð mætti að ósekju veija
hluta af sínum markaða telqustofni til að
koma merkingum sem þessum í lag og sjá
um að göngustigum verði haldið við.
A síðastliðnu ári gaf Geysisnefnd út
bækling um Geysissvæðið. Bæklingur þessi
var afar vandaður og átti ágóði af sölu
hans að renna til uppbyggingar á Geysis-
svæðinu. Það er von allra að þessi upp-
bygging verði að veruleika sem allra fyrst,
og að þetta einstaka svæði geti verið okkur
íslendingum til sóma. Um þessar mundir
er verið að byggja við gamla hótelið við
Geysi af miklum myndarbrag, auk þess sem
á að opna matsölu í einu gróðurhúsanna
gegnt hverasvæðinu innan skamms. Þrátt
fyrir þetta hefur sá aðili sem á að sjá um
Geysissvæðið ekki séð sóma sinn í því að
breyta skilti við aðalinnganginn að Geysis-
svæðinu þar sem látinn maður er sagður
vera umsjónarmaður svæðisins.
Það er augljóst að margt mætti betur
fara í því sem gert er fyrir erlenda gesti
okkar. Margir líta ferðamenn óhýru auga
og halda að þeir vaði um landið eins og
Atli Húnakonungur, þannig að ekki vaxi
neitt í fótsporum þeirra. Þessi hugsunar-
háttur fínnst mér vera rangur. Það er þjóð-
hagslega hagkvæmt fyrir okkur íslendinga
að taka vel á móti erlendum ferðamönnum,
þeir eru gjaldeyrislind og veita fjölda manns
atvinnu. Það ætti samt ekki að vera neitt
takmark í sjálfu sér að fjölga ferðamönnum
til íslands ár frá ári, heldur ætti að bæta
þá aðstöðu sem við höfum og gera enn
betur en nú er gert. Ferðamálasamtök sem
risið hafa upp víða um larid mættu að ósekju
gera úttekt á fjölfömustu ferðamannastöð-
um í heimabyggðum sínum og meta í
samráði við t.d. Ferðamálaráð hvað mætti
færa til betri vegar á hveijum stað.
Að lokum vil ég taka það fram að mér
fínnst leitt til þess að vita að oftast er það
landinn sem gengur einna verst um sitt eigið
land, skilur eftir sig rusl og drasl hvar sem
er, en gerir samt óspart gys að hinum er-
lendu ferðamönnum, þar sem þeir ferðast í
misstórum hópum, eins og þæg bamaheimil-
isböm í bandi. við hjá Kynnisferðum sf.
leggjum á það áherslu að senda þrautþjálf-
aða leiðsögumenn með hveijum einasta hópi,
leiðsögumenn sem útskýra og segja frá
viðkvæmu, hijóstrugu og ægifogm landi.
Sóðaskapurina er aldrei langt undan. Kjörorðið er samt eins og áður: Hreint Iand
— fagurtland.
Sjálfboðaliðar
Enginn vill þurfa að
setja skorður
Rætt við Kjartan Lárusson,
verkfæri til starfsins og þurfa sjálfboðaliðar
því aðeins að koma sér á staðinn, með nesti
til dagsins, viðeigandi klæðnað og vilja til
verks.
Þegar unnið er við verkefni í nokkra
daga, koma sjálfboðaliðarmr að öllu jöfnu
með viðlegubúnað og myndu þá matarinn-
kaup og eldamennska geta verið sameigin-
leg.
Hafið þið þá skipulagt verkefni nú í
sumar?
Já, áætlað er að vinna á a.m.k. fjórum
stöðum nú í sumar. Við ætlum að byija á
því að halda áfram verki sem sjálfboðaliðar
unnu sumarið 1983 í Krísuvík. Þar voru
gerðir trégöngustígar um hverasvæðið. Þeir
þarfnast lagfæringar og fúavamar, en auk
þess munum við marka gönguleiðina kring-
um hverasvæðið. Það verður farið í rútu
frá Reykjavík að morgni 7. júní og komið
til baka síðari hluta dags.
20.—22. júní ætlum við að fara í Skafta-
fell til þess að vinna við göngustíga og
verður lagt upp frá Umferðarmiðstöðinni
að morgni 20. júní, en allan júnímánuð
verður í gangi sjálfboðavinna í Skaftafelli
og getur fólk haft samband við landvörð
þar til þess að tilkynna sig vilji það vinna
aðra daga í júní.
Svo ætlum við að vinna í umhverfis-
fræðslusetrinu að Alviðm í Ölfusi helgina
28.-29. júní, en þar verða stikaðar göngu-
leiðir, málað og tekið til. Þar er svefnloft
og þar geta sjálfboðaliðar, sem verða alla
helgina, hreiðrað um sig. Fólk þarf helst
að láta vita hvenær það kemur og hvað lengi
það ætlar að vera, þegar það skráir sig til
verkefnisins, þannig að hægt sé að skipu-
leggja vinnuna samkvæmt því.
9.-10. júli höfum við skipulagt ferð í þjóð-
garðinn við Jökulsárgljúfur til þess að vinna
við göngustíga, en þar verður sjálfboðavinna
í gangi allan júlímánuð og geta sjálfboðalið-
ar því komið þar hvenær sem er í júlímánuði.
I ágúst höfum við hugsað okkur að fara
aftur að Alviðru, en það verður nánar ákveð-
ið síðar.
Þetta eru þau verkefni sem þegar hafa
verið ákveðin, en þau, og e.t.v. önnur, verða
auglýstjafnóðum.
Ef maður vill taka þátt í starfinu, hvernig
getur maður fengið nánari upplýsingar?
Við gefum út fréttabréf sem við sendum
öllum félagsmönnum og dreifum einnig víð-
ar. Við setjum fréttatilkynningar í dagblöð,
nú og svo getur fólk hringt í okkur og
fengið allar upplýsingar.
Þið segið að félagsmenn fái fréttabréfíð
sent, hverniggetur maðurgerst félagi?
Það geta allir, sem vilja vinna, gerst félag-
ar, með því að hringja í okkur og skrá sig.
Nú í fyrsta fréttabréfínu verða lög félagsins
birt og einnig nákvæm áætlun sumarsins.
Þeir sem áhuga hafa á að skrá sig til
starfa í sumar geta hringt í:
Eygló Gísladóttir, s. 666981.
Helgu Edwald, s. 30918.
Hlyn Óskarsson, s. 611150.
Salbjörgu Óskarsdóttur, s. 641623 á
kvöldin og um helgar.
Spumingin er sú, hvort það er við
Ferðamálaráð eitt að sakast, segir
Kjartan Lárusson, þegar minnst er
á þá gagnrýni, að lítll hluti af fjár-
ráðum Ferðamálaráðs renni til umhverfís-
mála. „Þama koma til margir þættir“, segir
Kjartan, „en ef til vill má fyrst staðnæmast
við slæma stöðu ríkissjóðs og jafnvel skiln-
ingsleysi fjárveitingavaldsins. Slæm fjár-
hagsstaða Ferðamálaráðs veldur því að það
verður að sleppa ýmsum verkefnum, eða í
besta falli sinna illa ýmsum þeim verkefnum
sem ráðinu er ætlað að sinna samkvæmt
lögum. Og það verður að segja eins og er
að það er vont að geta ekki einu sinni sinnt
verkefnunum illa.
Lítum aðeins á hver verkefni Ferðamála-
ráðs eru samkvæmt lögum: Ferðamálaráð
á að skipuleggja og gera áætlanir um íslensk
ferðamál og annast landkynningu. Á þessu
ári höfum við orðið að skera þátt okkar í
landkynningu niður um helming. Við eigum
að aðstoða ferðamálafélög, en sinnum því
lítið sem ekkert. Við erum eina ráðið á
landinu af þeim sem starfa á svipuðum
grunni sem er ætlað að sinna fagmenntun
og starfsþjálfun, þ.e.a.s. leiðsögumanna. Ég
tel að slík fræðsla eigi best heima innan
menntakerfisins sjálfs. Við eigum að hafa
forgöngu um upplýsinga- og þjónustustarf-
semi fyrir ferðamenn, það er í algeru lág-
marki. En taktu eftir, það er Ferðaskrifstofa
ríkisins sem hefur hlaupið þama undir
bagga ár eftir ár og staðið straum af kostn-
aði við upplýsingaþjónustu fyrir ferðamenn
formann Ferðamálaráðs
hér í Reykjavík, ekki Ferðamálaráð eða
Reykjavíkurborg.
Síðan em tveir liðir sem fjalla um sam-
starf við Náttúruvemdaráð og fleiri aðila
um umhverfísvemd og að ráðið hafí fmm-
kvæði um fegran umhverfis og snyrtilega
umgengni. Þama tel ég að við verðum að
standa okkur sæmilega og ástæðumar:
Þjóðemiskennd — og að það er náttúra
landsins sem verið er að selja og ef þessu
er ekki sinnt verður ekkert til að selja. Og
það er góð umgengni sem er málið. Náttúra-
vemdarráð er með eftirlitshlutverkið en
Ferðamálaráð reynir að ná góðu samstarfi
við þá.
En hvað með sveitarfélögin?
Yfirleitt standa þau sig ekki sem skyldi,
en með undantekningum þó sem sanna
regluna. Það nægir í því sambandi að benda
á þau sveitarfélög sem hafa af myndarskap
staðið að gerð góðra tjaldsvæða.
Annars er ógetið tveggja atriða sem við
stöndum okkur í, eða þeirra að opna kvört-
unarbréf og sinna slíkum málum og að
gangast fyrir ferðamálaráðstefnum.
En um umhverfismálin vil ég segja að
það er að verða vakning í þeim málum, en
þau hafa verið í lægð að undanfömu. Ég
trúi ekki öðru en að þessir 60 fulltrúar sem
eiga að teljast ábyrgir fyrir rekstri þess
fyrirtækis sem þjóðfélagið er, eigi eftir að
bæta um betur varðandi umhverfísvemd í
tengslum við ferðamennsku. Við erum að
reyna að sækja framávið og auðvitað vilja