Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1983, Blaðsíða 21

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1983, Blaðsíða 21
' Sólarljóð á sænsku Lýsingar eftir Roj Friberg Hvárskis þeir gáðu fyr þá hvítu mey leiks né Ijósra daga: öngvan hlut máttu þeir annan muna en það Ijósa lík Helgir englar kómu ór himnum ofan og tóku sál hans til sín; í hreinu lífí hon skal æ lifa með almátkum Guði. Friberg heimfærir efni þessarar fornu bókmenntaperlu uppá nútímann með mynd- um af því sem nútíminn skelfist mest Á síðustu haustsýningu Félags íslenzkra myndlistarmanna, sem stóð á Kjarvalsstöðum í október, voru tveir sænskir listamenn gestir: Myndlistarmaðurinn Roj Friberg og ljóðaskáldið Gunnar D. Hansson. Myndir Roj Friberg skáru sig talsvert úr öðru, sem þar var sýnt; í þeim var óútskýrð hrollvekja sem ekki bar þó mikið á við fyrstu sýn. Var hér verið að fjalla um heimsendi — hugsan- legar afleiðingar hins endanlega báls af völdum kjarnorkunnar? Ekki er það ljóst, en myndirnar eru eftirminnilegar og gerðar af kunnáttu. Gunnar D. Hansson hefur aft- ur á móti þýtt Sólarljóðin okkar á móðurmál sitt, sænsku, en forníslenzkur smáleturstexti fylgir neðst á hverri blaðsíðu. Hansson þýðir Sólarljóð á þá sænsku sem töluð er nú á dögum, en fylgir orðalagi, myndhugsun og túlkun á þeim sérstaka draumheimi, sem einkennir þessa bókmenntaperlu. í eftir- mála rekur hann sögulegan skilning fræðimanna á kvæðinu, bregður ljósi á svið þess tímabils þegar höfundur þess var uppi, blandi goðsagna heiðni og kristni eru glögg skil gjörð, — og endurómi gömlu eddukvæðanna, sem tengjast hinum nýja átrún- aði, sem hófst með því að Þor- geir lagðist undir feld á Þing- völlum fyrir brátt tíu öldum. Roj Friberg hefur myndlýst þessa sænsku útgáfu af Sólar- ljóðum; þar má greina öfl Helj- ar, en helgir englar svífa um sviðið, en líkt og á myndunum á sýningunni á Kjarvalsstöðum, er hrollverkja og heimsendaspá í myndunum — sú myndsýn, sem kvikmyndir hafa birt okkur um lifandi fólk sem brennur upp eins og fífukveikur við ofurhita atómsprengingar. Þannig heim- færir Roj Friberg Sólarljóð uppá brýnustu spurningu okkar tíma — en Sólarljóð fjalla annars um dauða manns og för hans inní aðra tilveru. Það er veikleiki á þessari myndlýsingu Fribergs, að myndirnar eru ekki alveg í sama stíl og vaknar óneitanlega grunur um, að hann hafi ekki gjört lýsingarnar sérstaklega við Sólarljóð , heldur hafi hann tínt til myndir sem gátu að hans mati fallið að efninu. Sjálfur neitar hann því í eftirmála; kveðst hafa lesið Sólarljóð sér- staklega til að myndlýsa. Hann segir þar: „Sólarljóð fjalla um meðvitaða og ómeðvitaða reynslu allra tíma varðandi líf og dauða. — Skáld 13. aldar lýsir dauða sínum sem dæi hann í dag. Þær myndir lifði ég í ljóði hans; þær dvöldu innra með mér, en myndmenning okkar tíma heimtar nýjungar." Heljar reip kómu harðliga sveigð að síðum mér; slíta ek vilda, en þau seig váru; létt er lauss að fara. i 21

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.