Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1983, Page 9
Jane Sauer. Vaxað og hnýtt Ifn og silki.
Ivy Ross: Skreytt armband á kopargrunni.
Tom Philabaum: Blásiö gler, W.R. Derrewere: Blikk og fílabein.
sandblásið utan og málaö að inn-
an.
Francoise Barnes: Vefnaður, „Black metamorphosis".
zmenn
i
árið 1952. Hann
tts árið 1975.
sótla styrk ITT
it-Hayes ferða-
n námi við Royal
leistaraprófi frá
9 opnaði hann
Siassworks í
;kt listakona; býr
»n. Bernstein
. Hann iagði
stund á leirkcrasmíði og glerblástur við háskóla í Illinois,
Wisconsin og Arizona og lauk meistaraprófí árið 1982 frá
University of Arizona.
Hann hefur sína vinnustofuna helgaða hvorri listgrein {
Tucson. Undanfarin 12 ár hefur hann kennt báðar greinarn-
ar og einnig kennt listasögu f ýmsum skðlum.
Árið 1982 hlaut hann verðlaun sem ríkisstjórinn í Arizona
veitir og fékk sama ár viðurkenningu fyrir vel unnin störf
sem Tucson Museum of Art veitir annaðhvort ár.
Glermyndir hans eru af tveimur gerðum. Histolitar hans
minna á forna bautasteina að formi til en hafa til að bera
gljáa, gegnsæi og litauðgi glersins. Önnur verk hans eru
einnig mjög litskrúðug og er þar einkum um að ræða poka-
vasa með yfírborði sem líkist skriðdýrsham.
ANN SCOTT
Ann fæddist árið 1959 í Mason City í Iowa. Árin 1977 til
1982 nam hún við Moore College of Art í Philadelphia,
Pcnnsylvania og lauk þar BFA-prófí í gullsmíði.
Skartgripir hennar eru litskrúðugir og nýtískulegir. í þeim
er skeytt saman ólíkum málmum eins og silfri og stáli ásamt
plastefnum til þess að skapa sveigjanlega fleti sem eru nánar
afmarkaðir með því að þrykkja á þá mynstur.
Ann býr í Delaware.
TIM O. WALKER
Tim fæddist árið 1954 í Texas. Hann lauk BA-prófi í
stjórnmálafræðum árið 1976 frá Duke University. Tim fór að
fást við leðuriðju 1978, árið 1980 var hann búinn að setja á
fót eigið verkstæði. Hann tók fyrst þátt í sýningu í Detroit
1982 og þessi sýning á Kjarvalsstöðum er fjórða samsýning
hans.
Tim sækist eftir ólfku leðri með mismunandi áferð og lit
og notar því skinn ffa öllum heimshornum. Verk hans eru
ekki unnin í fjöldaframleiðslu heldur er hver handtaska eða
stóláklæði einstakt verk sem hann hefur hannað sérstak-
lega. Kventöskur hans eða veski eru bæði fræg og eftirsótt.
Tim mun hanna og sauma einhverja hluti úr leðri á Kjarvals-
stöðum.
CYNTHIA BOYER
Umsjónarmaður Crafts USA og textil-listakona.
Cynthia fæddist árið 1933 og stundaði nám við Swarth-
more og Sarah Lawrence College. Hún lauk BA-prófí þaðan
árið 1954. Að námi loknu starfaði hún sem hönnuður og
litasérfræðingur hjá Dan River Mills og víðar.
Cynthia hefur numið listiðn við Penland School of Craft
og Arrowmont School of Craft og hefur einnig lært útsaum
hjá Hope Stanley. Hún býr til abstrakt-veggmyndir sem hafa
verið sýndar á sýningum víðs vegar um Bandaríkin.
Litskrúðug föt hennar, jakkar og vesti, bera vott mikilli
hugmyndaauðgi og eru ýmist prjónuð eða gerð úr handgerðu
filti. Þessi fatnaður nýtur mikilla vinsælda og er til sölu í
sérverslunum og á listasöfnum.
Cynthia býr og starfar í Washington DC.
MARIAN A. O’BRIAN
Marian fæddist í Róm árið 1934 og útskrifaðist árið 1956
frá Smith College með BA-gráðu í listfræði og húsagerðarlist.
Árið 1978 stofnaði Marian Seraph-nútímalistmunaafnið í
Washington. Þar eru einungis sýndir handunnir munir úr
þráðefnum, gleri og málmi eftir bandaríska listamenn og
listiðnaðarmenn. Árið 1981 gerðist hún meðeigandi glerlista-
safnsins i Bethesda í Maryland, þar sem sýnd eru glerlista-
verk frá Norðurlöndunum, Englandi, Kanada og Tékkoslóv-
akíu auk verka eftir bandaríska glerlistamenn.
Marian er umsjónarmaður í samtökunum Crafts USA.
SOLVEIG COX
Solveig er fædd í New York 1931 og uppalin þar. Hún hóf
listnám fyrir 30 árum og fór þá þegar að vinna að gerð
leirmuna. f framhaldsnámi sínu sérhæfði hún sig f leir, fyrst
við Museum of Modern Art í New York og síðar í Munchen.
Hún setti fyrst á fót eigið verkstæði 1961 og starfar sjálf-
stætt.