Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1983, Side 8
Sýning á Kjarvalsstöðum opnuð í dag:
Pamela Brement
ambassadorsfrú með
kúluspil eftir banda-
rískan glerlistamann.
Á neðri myndinni er
hún í klæðnaði eftir
Cynthiu Boyer.
Banaarísk handíc
Merkileg vakning og gróska hefur átt sér stað í
bandarískri handíð síðasta áratuginn og sannast
þá sem löngum áður, að þegar bezt lætur getur
framúrskarandi handíð orðið listaverk.
Pamela Brement ambassadorsfrú á veg og vanda
af skipulagningu allri, en 7 frægir handíðamenn
koma að vestan og sýna m.a. verklega. Jafnframt
er efnt til sýningar á íslenzkri nútímahandíð.
í dag verður opnuð með við-
höfn geysistór sýning á banda-
rískri handíð — American
Crafts — að Kjarvalsstöðum.
Þetta er meiriháttar viðburður í
listrænum samskiptum þjóð-
anna og má þakka hann fram-
taki einnar konu, sem sannar-
lega hefur látið hendur standa
framúr ermum: Pamelu Brem-
ent, eiginkonu bandaríska amb-
assadorsins, Marshal Brement.
Það mun einsdæmi, að stórsýn-
ing, haldin í nafni heillar þjóð-
ar, sé einstaklingsframtak á
þann hátt sem hér hefur orðið.
Þegar um slíkt er að ræða,
stendur það opinbera venjulega
fyrir sýningum af þessu tagi;
menntamálaráðuneyti landanna
tii dæmis og reynist undirbún-
ingurinn þá gjarnan þungur í
vöfum og tekur jafnvel áraraðir.
En hér var öðruvísi farið að.
Pamela Brement hefur átt sér
þann draum að standa að og
skipuleggja þesskonar sýningu
frá því þau hjón tóku við emb-
ætti á Islandi. Þann áhuga má
rekja til persónulegra kynna
Pamelu af ýmsu frábæru lista-
fólki, sem í heimalandi hennar
starfar í þessum fjölskrúðugu
greinum.
Cynthia Boyer í klæðnaði sem hún býr til sjálf úr ull og fllti.
Meðal góðra gesta, sem koma
að vestan af þessu tilefni, má
nefna Loyd Herman, sem er cur-
ator eða listrænn safnstjóri yfir
hluta Smitsonian-safnsins.
Hann telst í röð fremstu sér-
fræðinga um listir og hand-
menntir og mun halda fyrirlest-
ur á Kjarvalsstöðum um sígilt
umfjöllunarefni: Craft into Art —
handíð sem list.
Á sýningunni á Kjarvalsstöð-
um ætti að fást staðfesting á
því, að handíð getur orðið lista-
verk þegar bezt lætur; þar veld-
ur að sjálfsögðu hver á heldur.
Hitt er svo annað mál, að hand-
íðir eru víðtækt hugtak og geysi-
legur munur á hlut eins og ösku-
bakka eða bolla, sem búinn er til
í ákveðnu, hagnýtu augnamiði,
og skartgripa úr málmi eða
steinum hinsvegar, þar sem það
listræna situr alveg í fyrirrúmi.
Þetta ætti ekki að þurfa að út-
skýra fyrir íslendingum; íslenzk
myndlist stóð öld fram af öld í
órjúfanlegu samhengi við hand-
íðir.
í nútímanum er einnig talað
um listiðn. Það er skylt, en hef-
ur hljóm af iðnaði, sem bendir á
Framhald á b\s. V3
Bandarískir listi
í handíðum
gestir á sýngunn
RICK BERNSTEIN
Rick fæddist í Providence á Rhode Island
lauk BA-prófi frá University of Massachuse
Tveimur árum seinna hlaut hann hinn cftirs
Internationai Fellowship og einnig Fulbrigh
styrk sem gerði honum kleift að halda áfran
College of Art í London. Síðan lauk hann ni
Tyler School of Art í Philadelphia. Árið 197'
eigið verkstæði sem hann nefnir Pennrose <
Watertown, Massachusetts.
Betsy, eiginkona Bernsteins er einnig þ<
til skartgripi úr gleri. Þau búa rétt hjá Boi
sýnir hér glermyndir og glerskúlptúr.
THOMAS ALFRED PHILABAUM
Thomas fæddist árið 1947 (Toledo, Ohio
8