Lesbók Morgunblaðsins - 05.11.1983, Blaðsíða 3
stefnt að því, að nemendur það-
an ættu aðrar leiðir til fram-
haldsnáms en gegnum Háskól-
ann, eða þá að atvinnulífið tæki
við þeim. Raunin hefur orðið sú,
að fólk kemur í ríkari mæli í
Háskólann úr fjölbrautaskólun-
um en ég hygg að stefnt hafi
verið að. Svo er og það sjónar-
mið til og kannski útbreitt, að
stúdentspróf nú á dögum sé
bara hliðstætt við gagnfræða-
próf áður fyrr, — og að fólk telji
þessvegna, að það þurfi að bæta
við menntun sína.“
„Ég hef orðið var við, að í huga
margra, sem ekki hafa háskói-
anám að baki, er Háskólinn
einhvers konar lokaður fflab-
einsturn. Nú er óhætt að full-
yrða, að svo er ekki, en þessi
skoðun rennir stoðum undir
grun um, að Háskólinn sé þá
ekki í nægilega lifandi sam-
bandi við þjóðlífið."
„Hafi Háskólinn einhvern
tíma verið lokaður filabeins-
turn, þá er hann það ekki leng-
ur; svo mikið er vist. Því til
stuðnings má nefna, að kennar-
aliðið er mjög ungt og bæði
kennarar og nemendur eru í
meiri tengslum við atvinnulífið
en gengur og gerist við háskóla
erlendis. Kennarar vinna ýmis
verkefni utan skólans, bæði
fyrir opinbera aðila og aðra;
jafnvel of mikið, svo það verður
á kostnað grunnrannsókna. Það
er langt í frá að staða Háskól-
ans sé sú sama og var hér fyrr
meir, þegar hlutverk hans var
að útskrifa embættismenn.
Samt er ekki svo ýkja langt síð-
an Háskólinn hætti að vera
embættismannaskóli einvörð-
ungu; við getum sagt, að hann
hafi verið það fram til 1940 í
aðalatriðum."
„Vafalaust er margt gott að
segja um þá þróun, sem átt
hefur sér stað í Háskólanum.
En með réttu eða röngu er hon-
um fundið til foráttu, að tengsl
við atvinnulífið séu ónóg og
einkum og sér í lagi tengist
Háskólinn næsta lítið okkar
þýðingarmesta atvinnuvegi,
sjávarútveginum. Má í því
sambandi benda á, að enda
þótt við séum fyrst og fremst
matvælaframleiðendur, hafa
aöeins 43 útskrifast í matvæla-
fræði síðan 1976 en 227 í þjóð-
félagsfræðum.“
„Þessi gagnrýni er vel skilj-
anleg. Þegar kennsluskráin er
lesin, þá sést þar, að ekkert nám
er í boði í útvegsfræðum. Þó
skal þess getið, að nú er í athug-
un að koma því á. Gagnrýnin er
samt óréttmæt að því leyti, að í
Háskólanum eru kenndar grein-
ar, sem tengjast sjávarútvegi á
ýmsan hátt. Svo er til dæmis í
viðskiptadeild, þar sem við
kennum greinar varðandi rekst-
ur í sjávarútvegi og fiskihag-
fræði sérstaklega. í félagsfræði
er nám um sjávarútveg og í
Sú var tíð að Háskólinn þótti
mikil höll. Nú er kennt á 12
stöðum utan gamla hússins. í
miðju er eitt af húsum verk-
fræði- og raunvísindadeildar
og neðst er Lögberg, hús lag-
adeildar.
/ //
Háskólaráð 1982—’83. Talið
frá vinstri: Sigurjón Björnsson,
forseti félagsvísindadeildar,
Halldór Elíasson, forseti
verkfr.- og raunvísindadeildar,
Sigfús Elíasson, forseti tannl-
æknadeildar, Einar Sigur-
björnsson, forseti guðfræði-
deildar, rektor Háskólans,
Guðmundur Magnússon,
Gunnar Karlsson, forseti
heimspekideildar, Jónas Ha-
Ilgrímsson, forseti læknadeild-
ar, Björn Guðmundsson, for-
seti lagadeildar, Ingibjörg
Magnúsdóttir, námsstjóri
námsbrautar í hjúkrunarfræö-
um (ekki í Háskólaráði), Þrá-
inn Eggertsson, forseti
viðskiptadeildar.
verkfræði- og raunvísindadeild
má nefna fjarskiptatækni og
vélaverkfræði, matvælafræði og
efnafræði. Rannsóknir, sem
gætu verið á vegum Háskólans,
fara fram í Hafrannsóknastofn-
un og Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins, vegna þess að lög-
gjafinn hefur ákveðið þessa til-
högun."
„Við heyrum stundum talað
um „frelsi til náms“ sem hluta
af grundvallarmannréttindum:
Allir eiga að geta lært það sem
hugur þeirra stendur til, hvort
sem þjóðfélagið hefur þörf
fyrir þá sérstöku menntun eða
ekki. Nú hafið þið takmarkað
aðgang að þremur deildum; er
þá hægt að segja, að þarna séu
okkar mannréttindi skert?“
„Sumir halda því fram. Ég tel
aftur á móti, að frelsið verði að
vera með tilliti til þeirra að-
stæðna, sem við búum við á
hverjum tíma. Þetta er líka
spurning um að ráðstafa því
takmarkaða fé, sem við höfum
til umráða. Æskilegast væri að
hafa þetta frelsi sem víðtækast.
En hvar eru takmörkin? Er það
þá ekki líka skortur á mannrétt-
indum, að hér er ekki hægt að
læra dýralækningar, veður-
fræði, kjarneðlisfræði eða fjöl-
miðlun? Hingað til hefur verið
talið, að ekki væri hagkvæmt að
leggja í kostnað við að koma á
SJÁ NÆSTIJ SÍÐTJ