Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1983, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1983, Blaðsíða 15
 sem hlýtt var og notalegt. Þegar yfirmaður okkar kom í eftirlits- ferð klukkan ellefu um kvöldið faldi ég hana undir beddanum mínum. Hann var vanur að koma sérstaklega að rúminu mínu á hverju kvöldi, því að all- ir vissu að ég var eins mikið samvistum við elskuna mína og ég gat. Þetta kvöld fullvissaði hann sig um að ég væri í bólinu, en lét sér ekki til hugar koma að líta undir það. Um tvöleytið um nóttina læddumst við út, hjóna- leysin. Ég ætlaði auðvitað að fylgja henni heim. Nýfallinn snjór lá yfir öllu og við leiddumst arm í arm. Þegar við höfðum gengið hálfa leiðina áleiðis inn í þorpið, mættum við nokkrum yfirmönnum sem greinilega voru við skál. Nú voru góð ráð dýr. Þarna var enginn felustaður og ég illa settur, ef mér tækist ekki að snúa mig út úr þessu. Ég greip þéttar um arm Höllu og hvíslaði að henni að við skyldum halda áfram og láta sem ekkert væri. Við geng- um fram hjá þeim og létum sem við sæjum þá ekki. Þegar við höfðum mæst, heyrði ég að einn þeirra kallaði: „Hey, you there. Aren’t you supposed to salute an officer?" Ég lét sem ég heyrði ekki til hans. Þá heyrði ég að annar sagði: „Them bastards don’t sal- ute. They’re Norwegians." Þannig var mál með vexti, að fáeinum dögum áður höfðu bæst í hóp okkar nokkrir Norðmenn sem báru einkennisbúning breskra hermanna og hélt liðs- foringinn greinilega að ég væri einn þeirra. Þannig slapp ég með skrekkinn í það sinn. Aginn í hernum er afar strangur eins og þú kannski veist og var okkur skylt að heilsa öllum yfirboðurum okkar að hermannasið. Við tókum þetta að sjálfsögðu afar hátíð- lega. Man ég eftir því að þegar ég var á Seyðisfirði höfðum við heilsað skipstjórunum af Esj- unni og Súðinni að hermannasið um sex mánaða skeið. Einkenn- isbúningur þeirra líktist mjög einkennisbúningi yfirmanna breska flotans og höfðum við villst á þeim. En þeir voru af- skaplega ánægðir með þá djúpu virðingu sem við sýndum þeim og guldu okkur ávallt í sömu mynt.“ — Dvaldir þú öll hernáms- árin á íslandi? „Nei. Ég var á íslandi í liðlega tvö ár. Héðan var ég sendur til Skotlands. Þar og í Englandi dvaldi ég til skiptis í æfingabúð- um í tvö ár. Við vorum á stöð- ugri hreyfingu og í afar strangri þjálfun. Landslag við strendur Eng- lands og Skotlangs er harla frábrugðið landslaginu á Aust- fjörðum á íslandi. Þar er hæðótt og undirlendi mikið, ekki ólíkt því sem gerist í Normandí í Prakklandi. Ekki vissum við hvað fyrir okkur lá, en síðar kom í ljós, að okkur var ætlað að gegna mikilvægu hlutverki. Á þessum árum var mikill fjöldi bandarískra hermanna sendur til Englands. Heyrði maður stundum sagt: If they’ll send more Americans to Eng- land, it will sink. Betra umhverti - hversvegna ekki? Birgir H. Sigurösson skipulagsfræöingur og Stanislas Bohic landslagsarkitekt. Við UMHVERH -- Reykjanesbraut Auk þess að breyta mjög til betri vegar öllu umhverfí Reykjaueubrautar nn tijáraktarsveði, svipuð þeim sem sjást á myndinni, minnka allan viðhaldskostnað svæðisins þegar til lengdar lætur. í Reykjavík. Myndin er tekin á Reykjanesbraut á leið úr Breiðholti. Miklabraut fjær. Um Reykjanesbraut aka að jafnaði 30 þúsund bílar á sólarhring. Lauslega áætlað gætu því 15—20 þúsund manns haft svæðið sem myndin sýnir fyrir augum dag hvem. Það er ekki ofsögum sagt að grassvæðin séu víðfeðm. 15

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.