Lesbók Morgunblaðsins - 29.01.1983, Síða 8
Viðreisn
og höfðingja
setur
Gísli Sigurðsson tók saman
Eftir 200 ára hnignunarskeið, sem alfarið skrifast á reikning Dana, hefst
nýr blómatími í Viöey með tiikomu Skúla Magnússonar.
Kóngsgaröur
Þegar hér er komið sögu, eru
meiriháttar tímamót í Viðey.
Lokið er 300 ára sögu klaustur-
halds og auðsöfnunar, en fram-
undan er 200 ára niðurlæg-
ingarskeið, sem endaði ekki fyrr
en Skúli Magnússon kom til
sögu. Þetta niðurlægingarskeið
frá 1550—1750 hefur Bessa-
staðavaldið tögl og hagldir með
kónginn að bakhjarli, enda fær
jörðin Viðey þá virðulegu út-
nefningu að vera „Kóngsgarð-
ur“. Það rétta var hinsvegar, að
Viðey var ekki annað en hjáleiga
frá Bessastöðum og titillinn því
aðeins sem biturt háð og svo
mjög var frægð höfuðbólsins
tekin að daprast við manntalið
1703, að bæjar og bújarðar í Við-
ey er ekki einu sinni getið. Ann-
ars skortir mjög heimildir um
Viðey frá þessu tímabili. Til eru
þó tölur um búpening, sem sýna,
hver þróunin hefur orðið á
Kóngsgarðinum. Kóngur settist
þarna í álitlegt bú, eða öllu held-
ur: hann tók það herskildi. Þar
voru þá 130 nautgripir og 360
fjár. Undir lokin er talið, að þar
séu aðeins 24 kýr, tvö þrevetur
geldneyti, einn griðungur þre-
vetur, fimm veturgamlar kvíg-
ur, einn uxi, þrír kálfar, en sauð-
ir og ær eru nú samtals 26.
í jarðabók þeirra Árna Magn-
ússonar og Páls Vídalín er getið
um hospítal og að kónglegt
majestæt veiti uppihald 12
„hospítalslimum". Ekki er vitað,
hvenær þessi svokallaði spítali
var settur þar á laggir, né held-
ur hvers konar sjúklingar þar
voru vistaðir upp á kóngsnáð.
Á þessu hjáleigutímabili gerð-
ist og það, að varp lagðist að
mestu af, vegna þess að tófa
komst í eyjuna, vafalaust á ís,
og gerði sér greni í urð, sem
verður undir hömrum á norðan-
verðri eyjunni. Ekki höfðu þeir
Bessastaðamenn eða hjáleigu-
bændur í Viðey döngun í sér til
að eyða tófunni, en horfðu held-
ur uppá að varpið legðist af.
Viðreisn í Videy
Eitt af því fáa, sem stór hluti
þjóðarinnar veit þó um sögu
Viðeyjar, er, að Skúli Magnús-
son landfógeti bjó þar. Þessi af-
burðamaður, sem nefndur hefur
verið „faðir Reykjavíkur", tók til
hendinni, þar sem hann kom, —
og viðreisn Viðeyjar hefst með
honum.
Þegar Skúli var skipaður
landfógeti 1749 fyrstur íslend-
inga, var honum ætlað að sitja á
Bessastöðum, en sambúðin við
Pingel amtmann á Bessastöðum
var honum ekki geðfelld og hann
fór framá það við stjórnina að
fá Viðey til ábúðar. Það var
samþykkt.
Af fyrri upptalningu má sjá
niðurlægingu búsins. Jarðabók-
in getur um, að tún séu „mikil og
meiri part slæm“, en beit góð og
engi, sé það nýtt. Þá stóð í Viðey
torfbær á sama stað suðaustan
undir Sjónarhóli og verið hafði
frá upþhafi, — og Skúli byrjaði
á því að tjasla við hann; reisti
timburstofu og skála við bæinn.
I grein sinni í Lesbók árið
1939 segir Jón biskup Helgason:
Hann (Skúli) hafði þegar
á fyrsta ári farið þess á leit
við stjórnina, að hann
mætti fá Viðey til ábúðar
og að þar yrði reistur emb-
ættisbústaður handa hon-
um. Hafði stjórnin tekið vel
íþað mál, enda mátti Viðey
heita tilvalinn staður fyrir
landfógeta, og ólíku hent-
ugra að hann sæti þar
sjálfur, en að hann sæti á
Bessastöðum og sækti jafn-
langsótta leið mestan hey-
afla sinn til Viðeyjar eins
og Bessastaðamenn höfðu
gert um fjölda ára. Hinn
24. mai 1751 var Skúla
heimiluð ábúð á eynni og
jafnframt heitið styrk af
opinberu fje til efniviðar-
kaupa til þess að koma þar
upp m úrgreypings- (bind-
ingsværks) húsi. Ennfrem-
ur var í sama brjefi leyft að
flytja „spítala-Iimina“ tólf
til Þerneyjar og ala önn
fyrir þeim þar á „kóngsins
kostnað“.
Um svipað leyti var Rantzau
greifi skipaður stiftamtmaður
og skyldaður til búsetu á ís-
landi, en forveri hans í embætti
hafði komizt upp með að búa í
Danmörku. Þótti stjórnarherr-
um nú tilvalið að reisa eitt hús
handa báðum, Skúla og Rant-
zau. Svo fór þó, að úti í Kaup-
mannahöfn hafa menn líklega
vorkennt svo tignum greifa að
þurfa að flytja bústað sinn í
eyju við Islandsströnd; það
fékkst í gegn, að hann sat áfram
í Danmörku.
Sjá, steinhús er
risið í Viðey
Byggingameistarinn Nikolaj
Eygtved hafði gert uppdrátt að
tvílyftu steinhúsi með háu risi
og kvistum. Skyldi landfógeti
búa uppi, en stiftamtmaður á
neðri hæð. Teikningar Eygtveds
af tvílyftu húsi eru til og að því
byggðu hefði orðið æði staðar-
legt að sjá heim til Viðeyjar. Nú
þótti óþarft að byggja svo veg-
lega, þar sem landfógetinn átti
einn að búa í húsinu, — og voru
ekki aðrar breytingar gerðar en
þær, að efri hæðinni var sleppt.
Þess má geta hér, að varaform.
Viðeyingafélagsins, Örlygur
Hálfdánarson, sem er innfædd-
ur Viðeyingur, hefur gert að til-
lögu sinni, að hin tvílyfta Við-
eyjarstofa verði byggð sam-
kvæmt teikningunni — og þá á
Bernhöftstorfu. Þarmeð væri að
minnsta kosti komið eitthvert
samræmi í húsaröðina frá
Stjórnarráðshúsi að mennta-
skólanum. Þessi tillaga hefði
þurft að viðrast áður en til
endurreisnar kom á Bernhöfts-
torfu; trúlegt er að ekki verði í
bili að minnsta kosti hróflað við
þeirri lausn, sem þar hefur orðið
ofaná.
Það sýnir hve Skúli hefur ver-
ið langt á undan sinni samtíð, að
hann lagði áherzlu á, að húsið
yrði byggt úr steini, — og fékk
því framgengt, að grjót, sem
Til vinstri: Viðeyjarkirkja að innan. Sérkennilegt er, að prédikunarstóllinn er
yfir altarinu — og undir því er Skúli fógeti grafinn. Að ofan: Þannig lítur
Viðeyjarstofa út um þessar mundir; helluþak komið í stað bárujárns og kvist-
unum hefur verið breytt í upprunalega mynd — og dyrnar aftur færðar ffyrír
miðju. Til hægri: Hin upphaflega tillaga að landfógetahúsi á íslandi, dagsett
17. apríl 1752. Efri hæðinni var síðan sleppt, svo sem fram kemur í greininni.
8
Fjörur í Viðey eru í senn fallegar og fjölbreyttar — þar er ótal margt að gaumgæfa. Sumsstaðar verða líkt og kjalrákir í fjörugrjótinu
(neðst t.v.), en víða nær stuðlaberg fram í fjöru, stundum grátt, stundum brúnt og sumsstaðar hallast þaö (efri mynd t.h.). Efst t.v.:
Gangandi fólk á Kríusandi, gegnt Sundahöfn. Fjær er Þórsnes, en Gufuneshöfði í baksýn.
gnótt er af meðfram ströndum
Viðeyjar, var notað sem bygg-
ingarefni. Og sjá, árið 1759 er
nýja steinhúsið fullgert: Stofan,
sem svo var ævinlega nefnd.
Árni Óla segir í grein sinni, að
Viðeyjarstofa hafi þá verið
stærsta hús landsins, en stærri
hús höfðu, þótt merkilegt megi
virðast, verið byggð áður: Kirkj-
urnar á Hólum og í Skálholti,
sem báðar voru úr timbri, voru
með ólíkindum stór hús og að ég
hygg, miklu stærri en Viðeyj-
arstofa. En ekkert íbúðarhús
hefur á þessum tíma komizt til
jafns við Viðeyjarstofu og erfitt
að ímynda sér þann mun, sem
var á þessu „sloti“, sem almenn-
ingur nefndi svo, og torfkofun-
um sem voru hið almenna
hlutskipti. Byggingarstaðinn
valdi Skúli sjálfur og hefði hann
naumast getað fundið heppilegri
blett i gervallri eyjunni.
Landfógetinn hefur haft æriö
húsrými, því niðri voru sjö íbúð-
arherbergi, en búr og tvö eldhús
að auki. Uppi á loftinu voru auk
þess fimm herbergi og geymsl-
ur. Á þeim tíma var ekki um
annað að ræða en hlóðaeldhús
og var annað eldhúsið svo stórt,
að rúmaði þrennar hlóðir, en
stór trekt var til að taka við
reyknum og leiða hann út. Þessi
trekt var um leið notuð til reyk-
inga og svo rúmgóð, að fjögur
sauðakrof gátu hangið þar sam-
tímis í reyk. Svo sem tíðkaðist í
hliðstæðum húsum erlendis, var
engin upphitun önnur en sú sem
fékkst frá nokkrum veggofnum,
— en eldiviður var dýrmætur og
þessvegna var ekki kveikt upp í
ofnunum nema þá er kaldast
var. Má af því ráða, að oft hafi
verið æði kalt í Viðeyjarstofu,
því þar voru 6 álnir undir loft,
og kotungarnir í kring hafa lík-
lega búið við öllu skárri húshita
í sínum þröngu kytrum.
Að Skúli hefur tekið til hend-
inni um nýtingu landgæða í Við-
ey, sést m.a. af þvi, að talið er að
ekki færra en fimmtíu manns
hafi verið þar í heimili. Ekki
hefur þó allt það lið búið í Við-
eyjarstofu; Skúli lét auk hennar
reisa röð bæjarhúsa vestar í
túninu, þar sem klaustrið stóð
áður.
Búskapur Skúla í Viðey stóð í
43 ár. Á þeim tíma tókst honum
að hefja eyjuna svo úr niðurlæg-
ingarástandinu, að innan
skamms var hún talin meiri-
háttar höfuðból og ein bezt
setna jörð á suðvesturhluta
landsins. Fyrir jarðabætur sín-
ar og margvíslegar búnaðartil-
raunir, svo sem kornrækt, trjá-
rækt og kartöflurækt. hlaut
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
9