Lesbók Morgunblaðsins - 09.02.1980, Blaðsíða 8
Þegar EDITH PIAF
dó, var hún sárt
syrgð í Frakklandi,
því enginn þarlend-
ur listamaður var
eins ástsæll og litla
söngkonan með ein-
kennilegu röddina.
Líf hennar var þó
enginn dans á rós-
um og þessvegna var
dauðinn sem
líknandi engill,
þegar leið að lokum.
Allt Frakkland grét, þegar Edith Piaf
dó. Þessi smávaxna kona var gædd
söngrödd, sem átti sér engan líka og
hún var elskuð meira en nokkur annar
listamaður samtíða henni. Edith er því
fólki, sem kynntist söng hennar enn í
fersku minni, og það harmar hversu
skammlíf hún varð, en fyrir hana sjálfa
kom dauðinn eins og frelsandi engill.
Það eru ekki ýkjur heldur bláköld
staðreynd, að Edith Piaf fæddist í
göturæsinu árið 1915 á dimmri og kaldri
desembernótt. Viðstaddir fæöinguna
voru faðir hennar og lögregluþjónn,
sem var svo hugulsamur aö lána
frakkann sinn til að sveipa í hvítvoðung-
inn.
Móðir Edithar var götusöngvari, sem átti
sér ekkert skjól til aö ala í barn sitt. Faöir
Edithar starfaöi einnig á götunni; sýndi
þar fimleikakúnstir. Hann var í stuttu leyfi
frá herþjónustu, Fyrri heimsstyrjöldin var
í algleymingi, þegar Edith fæddist. For-
eldrar Edithar höföu þannig engar aö-
stæöur til aö búa henni heimili og þaö
varð þeim fangaráð, að koma henni í
fóstur hjá móðurforeldrum hennar. Efa-
laust hefur afa hennar og ömmu þótt
vænt um hana, en þau voru bláfátækir
alkóhólistar og ólu barniö á víni og
vatnsgraut. Þessa fæöu taldi afinn holla
og styrkjandi.
Þegar faðir Edithar aö ári liönu kom til
aö heilsa uppá barn sitt, ofbauð honum
aö sjá, hversu veikburða og vannærö
dóttir hans var. í örvæntingu sinni leitaöi
hann til móöur sinnar, sem var eldabuska
í vændishúsi og hún tók barnið aö sér.
Edith var eins árs, þegar hún fluttist í
þessi heimkynni failinna kvenna, eins og
þær konur eru kallaöar, sem gera vændi
aö atvinnu sinni. Hún var þá ekki bara
sjúk af vannæringu heldur einnig blind.
Konurnar í vændishúsinu létu sér
umhugaö um þessa litlu telpu og gáfu sig
©
allar viö, aö sýna þessum lita og
hjálparvana veslingi óeigingjarna um-
hyggju og ástúö. Þær bitust um aö fá aö
sinna henni og þegar þeim varö Ijóst, aö
hún var steinblind, ákvaóu þær aö leita til
helgidýrlinga sinna og biöja þá aöstoöar.
Edith fékk sjónina aftur og sjálfsagt
hefur það verið meira aö þakka hjúkrun
og umhyggju en bænahaldinu. Þaö hefur
þó efalaust veriö áhrifamikil sjón aö sjá
þessar föllnu konur ganga í skrúögöngu
um bæinn með tendruö kerti og helgisvip
á andlitum sínum á leið í bænahús aö
ákalla dýrlinga. Þær sögu seinna, aö þær
heföu fengið aö handa frá dýrlingum
sínum ákveöið loforð um aö Edith fengi
sjónina aftur á tilteknum degi — og þann
dag fékk Edith sjónina, sögöu þær.
Æskuárin í vændishúsinu
Edith átti all-góöa ævi þau árin sem
hún bjó í vændishúsinu. Hún var aö byrja
í skóla, þegar faöir hennar aö lokinni
styrjöldinni kom og sótti hana. Edith átti
aö vinna fyrir hann; fylgja honum eftir á
götunni, þar sem hann lék listir sínar og
safna saman peningum, sem fleygt væri
til hans.
Edith hefur lýst því, hversu ógnarþreytt
hún var margt kvöldiö á þessum árum.
Oft þurftu þau feögin að labba margar
mílur yfir daginn til aö þeim safnaðist nóg
skotsilfur fyrir mat. Þetta var ótryggt líf
fullt daglegum kvíöa en samt átti Edith
sér huggun í félagsskapnum viö föður
sinn. Þau losnuöu bæöi viö einmanaleika
og fundu aö þau áttu saman. Þegar Edith
eltist varð þeim fjöllyndi hans í kvenna-
málum að ágreiningsefni, hann var sífellt
aö skipta um lagskonur. Þaö kom fyrir aö
Edith þoldi ekki einhverja þeirra og þá
upphófst mikil rimma. Þá varö þeim
feðginum og til sundurþykkis, aö Edith
byrjaöi aö syngja á götunni og knæpum
og henni gekk vel. Faðir hennar varö
öfundsjúkur og heimtaði að hún skilaði
honum því, sem hún fengi fyrir sönginn.
Þegar Edith var að veröa fimmtán ára,
kom til svo mikilla átaka meö þeim
feðginum, aö hún yfirgaf fööur sinn fyrir
fullt og allt. Hún var viss um, aö sér
tækist aö bjarga sér, þar sem hún var
öllum hnútum kunnug oröin sem götu-
söngvari; vissi á hvaöa knæpum, torgum
eða bæjarhverfum vænlegast var aö
syngja í þennan eöa hinn tímann. Þetta
var nú einu sinni sá heimur sem hún
gerþekkti...
Einn elskhuginn af öðrum
Simone, hálfsystir Edithar hefur lýst
því, hversu áræöin og sjálfsörugg Edith
var á þessum árum, en þær systur
kynntust um þær mundir, sem Edith
yfirgaf fööur sinn. Simone var tveimur
árum yngri en Edith „og ég var bæöi
veikluleg og taugaóstyrk, en hún tók mig
aö sér og sagöi, aö vió skyldum þola
saman súrt og sætt; ég ræö þig til mín,
sagöi hún og tók mig síðan meö sér út á
götuna, þar sem viö áttum aö syngja og
þéna peninga." Edith dreymdi stóra
drauma um frægö og ríkidæmi. Hún
ræddi oft viö systur sína um fína bílinn,
sem þær myndu kaupa sér og fataskáp-
ana fulla af fínustu klæöum og þjónustu-
fólk á hverjum fingri. Simone fór sér
hægar í loftkastalasmíöinni, en lét þó
jafnan tilleiöast aö taka þátt í draumum
Edithar. Þaö var vissulega Ijúf tilhugsun,
aö sá dagur kæmi, aö þær gætu flutt úr
sóöalegu hótelherbergi sínu og þeirra
biöi lúxuslíf.
Systurnar bjuggu og störfuöu saman,
þrátt fyrir aö Edith liföi mjög fjölbreyttu
ástalífi og ætti sér einn elskhugann af
öörum. Þær systur sváfu saman í rúmi og
oft samrekkti þeim karlmaöur. Þegar
Edith varö barnshafandi þurfti hún enn
meir en áöur á systur sinni aö halda. Þaö
haföi ekki vantaö rómantíkina og ástina
hjá Edith og barnsfööur hennar til aö
byrja meö, en fljótlega rénaöi ástin og
sambandið viö barnsföðurinn rofnaöi, og
litla telpan fékk heilahimnubólgu.
Hvorttveggja þetta tók Edith nærri sér.
„Sorg hennar risti þó ekki djúpt," segir
Simone, „hún var of hverflynd og tauga-
veikluö til þess aö geta alið meö sér
djúpa sorg. Hún gat aldrei haldið kyrru
fyrir og tilfinningalíf hennar var meö sama
hætti óstöðugt og hverfult. Náttlangt dró
hún mig meö sér frá einni knæpu til
annarrar, drakk sig ofurölvi og leitaöi í
faðm nýrra og nýrra elskhuga, stundum
aöeins til skyndifunda. Þessi hverfulu
kynni viö einn af öörum, hjálpuðu henni til
aö gleyma raunum sínum og skjóta sér
undan uppgjöri viö sjálfa sig. Eg gæti
trúaö, aö hún hafi ekki þorað aö horfast
ein í augu viö þann grun, sem bjó meö
henni og hún talaði mikiö um, en hann
var sá, aö hún ætti sök á veikindum
barnsins. Viö höföum haft Marcelle meö
okkur út á götuna sem barn í reifum.
Hún mátti aldrei
ein saman vera ...
.Þegar Edith var réttra tuttugu ára, vildi
svo til, aö maöur nokkur, áhrifamikill í
listaheiminum, heyröi hana syngja. Þessi
maöur bauöst til að hjálpa henrii til
raunverulegs frama, en með því skilyröi,
aö hún hlýddi honum í einu og öllu. Hún
varö aö hætta viö aö vera næturlangt
með karlmönnum, hætta viö drykkju og
hún varö aö læra að lesa og skrifa,
matast meö hníf og gaffli og hegöa sér
skikkanlega. Hvað skyldi hann hafa séö
viö Edith, sem orsakaöi, aö hann tók
hana aö sér? Varla var það útlitið. Hún
var svo lítil og veikluleg og þaö var
tæpast hægt að segja, aö hún væri aö
líkamsbyggingu gædd nokkru kvenlegu
aðdráttarafli. En þaö var röddin ... þegar
hún söng, þá óx hún, og fékk áheyrendur
sína til aö gleyma öllu nema söng hennar