Lesbók Morgunblaðsins - 13.08.1978, Side 5
Spœnskt borðstofuborö frá 1920—30 útskoriö. Úr eik og fleiri viöartegundum. Því fylgja
stólar í sama stíl oo teborö
„Vitrin“-skápur frá aldamótum. Ætlaöur fyrir silfurmuni og
postulín.
Hornskápur úr eik.
lega. Þetta er stórt fyrirtæki og viöurkennt
á þessu sviöi og sér um slíkar fyrirgreiösl-
ur fyrir verzlanir um allan heim. Þó reynum
viö aö fara til Englands viö og viö til aö
kynna okkur markaöinn og sjáum þá
sjálfar um innkaupin — förum í vöruhús
antik-verzlana og veljum.
Og hvernig eru hlutirnir valdir?
Viö reynum aö haga valinu eftir
eftirspurn aö nokkru og leggjum áherzlu
á aö úrvaliö sé fjölbreytt. Engir tveir munir
eöa samstæöur eru eins.
Hefur fólk hér áhuga á aö eignast gamla
muni?
Já, já, hingað koma margir — og sumir
líta hér oft inn, bara til aö fylgjast meö því
hvaö berst til okkar. Okkur finnst áhuginn
fyrir þessum munum fara vaxandi, ekki
sízt meöal ungs fólks. Smekkurinn viröist
breytast í þá átt hjá því. Ungt fólk er í
meirihluta meðal viöskiptavina okkar og
fólk sem hefur fylgst meö verölagi í slíkum
verzlunum sem þessari erlendis, finnst
þetta ódýrt hér. Þaö kemur til af því að
smásöluálagningin er lítil hér. í Bretlandi
stjórnast álagningin af framboöi og
eftirspurn t þessari grein og þá er þaö
breytilegt hvað verður vinsælast á
hverjum tíma. Nú mætti t.d. nefna aö
húsgögn úr afsýröri eik eru lang vinsælust
og því erfitt aö útvega þau.
En hvaö líöur eftirspurninni hér?
Hér er mikiö spurt um húsgögn frá því
um aldamót. Þau flokkast þó ekki sem
„antik“. Sum eru smíðuð seinna og því er
alls ekki haldiö leyndu. Þetta er vönduö
og nákvæm eftirlíking á eldri húsgögnum,
flest handsmíðaö og innlagt eins og
tíökaðist áöur. Og veröiö fer eftir því
hversu vandaö verkiö er.
Þaö er mikiö til í Bretlandi af gömlum
húsgögnum og munum allt frá blóma-
skeiðinu á 18. öld og úrvaliö er geysilegt.
Hitt er svo annað mál aö þessi húsgögn
eru oft ákaflega óhrein þegar þau koma
til okkar og mikil vinna er viö aö hreinsa
þau uþþ.
Auk þessara innkaupa frá Bretlandi
höfum viö gert nokkuö af því aö taka
gömul hússögn og muni í umboössölu
fyrir fólk hér, sem þó takmarkast af þessu
þrönga húsnæöi. Viö höfum einnig hug á
aö taka í umboössölu verk íslenzkra
iistamanna, en höfum ekki enn gefið
okkur tíma til aö skipuleggja slíkt.
Hér höfum viö líka á boöstólum
keramikmuni úr sérstökum portúgölskum
leir, sem unninn er aö fyrirmynd frá 17.
og 18. öld því okkur finnst þessir munir
fara sérstaklega vel viö þessi gömlu
húsgögn. Hér er ekki um aö ræöa
antik-postulín eða leir, slíkt yrði allt of
dýrt. Sama má segja um antik-silfur. Þaö
yrði of dýrt fyrir okkur aö eiga birgöir af
því.
Einstaka málverk berast okkur í
umboössölu úr íslenzkum búum —
aöallega dönsk — en eftirspurnin er Iftil.
íslendingar vilja helzt málverk eftir „sína“
málara.
©