Lesbók Morgunblaðsins - 01.04.1973, Page 11
V
mjög á óvart svarið neðan írá
Hólmaseli. Sr. Björn mátti að
vísu kallast auðmaður á síns
tíma og sveitunga sinna mæli-
kvarða og „iifði í lukku og vel-
makt“, eins og sr. Jónkemstað
orði í Eldriti sínu. Þegar hann
flúði Hólma'sel undan Eldinum
1783 lét hann reka þaðan 160
fjár, 6—8 nautgripi og talið var
að búslóð og annar farangur
hefði verið upp á 30 hesta.
Þetta sýnir að blómlegt hefur
búið verið í Hólmaseli.
Maddaman, Elín Jónsdóttir,
systir sr. Jóns á Mýrum, mun
lika hafa verið bónda sinum
samtaka um mikla sparsemi og
forsjálni í hvivetna og því sázt
hvatt prest til óþarfa útláta.
Sr. Björn var Borgfirðingur
að uppruna, fæddur í Höll i
Þverárhlíð 1736, fék-k Meðal-
landsþing 1761 og hélt það
brauð fram að Skaftáreldum.
Sr. Björn þótti kennimaður í
meðaUagi segir í Æviskrám.
Hins vegar var hann afburða
raddmaður og kunnur fyr-
ir söngrödd sína strax á unga
aldri. 1 æsku var kveðin um
hann þessi ,gamanvísa:
Björn frá Höll með hljóð og
sköll
hæst af mönnum syngur.
Upp um f jöll með óp og köll
Ærist hann og springur.
Af ræðumennsku sr. Björns
fara ýmsar sögur. Hann talaði
jafnan blaðalaust, svo sem
venja var presta fyrr meir. Og
hann virðist ekki hafa undir-
búið eða 'byggt upp ræður sín-
ar fyrirfram og tapaði hann
stundum þræðinum, ef hann
gerði eitthvert hlé á ræðuflutn
inignum. Þá vék harm sér að
konu sinni og sagði: „Hvar var
ég við Elín mín?“ Og allta'f var
Elín með og ,gat komið manni
sinum aftur á sporið. Um inni-
hald kenningarinnar hjá þess-
um sálusorgara Meðallendinga
höfum við eitt dæmi. Þegar
biskupinn, herra Hannes
Finnsson, vísiteraði i Hólma-
seli 27. sept. 1779 prédikaði sr.
Björn eins og lög gera ráð fyr-
ir og væri ekki ótrúlegt að þá
hefði hann vandað sig,
sem bezt hann kunni.
Biskup segir svo frá, að prest-
ur hafi í prédikuninni farið all-
útvöldum orðum um syndsam-
legan íburð eða óhóf í klæða-
burði. Hafi það illa getað heim-
færzt til áheyrendanna, sem í
allt 'hafi verið lítilfjörlegt al-
múgafólk, fátæklegar búið en
víðast annars staðar á landinu.
Trúlegt er, og raunar vist, að
þetta hefir ekki verið í eina
sinn, sem prédikun sr. Björns
var utan við lífið og nokkuð
langt frá þvi að vera í sam-
ræmi við andlegar 'þarfir sókn-
arbarna hans og þau þótzt
hafa lítið á þeim að græða. Og
meira að segja var það svo, að
eftir að sr. Bjöm var orðinn
prestur í Hrepphólum, sendu
sóknarmenn eitt sinn kæru til
biskups yfir því hve klerkur
væri langorður í stólnum, svo
að þeir næðu e'kki heim
í björtu frá messu, þegar
stytztur væri dagur. Þegar
biskup tjáði sr. Birni þessa um-
kvörtun, svaraði klerkur þvi,
sem enn er í minnum haft:
„Guðs börnum þykir aJdrei of
langt. Um hina kæri ég mig
ekki.“
En hvað sem um kenni-
mennsku sr. Björns má segja,
þá er hitt vóst að hann var bú-
höldur góður eins og með sanni
má segja um marga hans stétt-
arbræður fynr og síðar. Það má
nú raunar fullyrða, að þar hafi
sr. Björn notið konu sinnar,
utan kirkju ekki síður en inn-
an, eins og áður er sagt. Kjark-
ur maddömu Elinar og skör-
ungsskapur kemur vel fram
þegar þau urðu að fiýja und-
an Eldinum frá Hólmaseli. Það
gerðist föstudaginn 20. júní —
12 dögum eftir að eldsins í
Laka varð fyrst vart.
Að Hrepphólmu fluttist sr.
Björn árið 1787.
Á efri árum sinum fékk
hann boð biskups um að taka
sér kapellán eða segja af sér
ella. En gamli maðurinn gerði
hvorugt og gegndi embætti
sínu einn til dauðadags. Hann
varð bráðkvaddur þ. 12. sept.
1808 og hafði þá tvo um sjö-
tugt.
Maddama Elin lifði mann
sinn í 18 ár. Síðustu æviár sín
var hún hjá bróðursyni sínum
Steingrími biskupi í Laugar-
nesi og þar andaðist hún 13.
júlí 1826, tæplega áttræð.
SR. SIGURiÐUR í ÁSUM
Stuttorðasta svarið úr Vest-
ur-sýslunni við umburðarbréfi
prófasts kom frá Ásum í Skaft-
ártungu. Það skrifaði sr. Sig-
urður Högnason, einn af 8 son-
um Presta-Högna Sigurðsson-
ar, sem urðu prestar.
Sr. Sigurður varð árið 1755
prestur í Ásum. Það haust
brslddi Katia aU't a,3 1% alin-
ar þykkt öskulag yfir Skaftár-
tunguna og lagði hana næstum
i auðn. Sumarið eftir segist
Ásaprestur ekki geta feng-
ið svo mikið sem einn
heybagga i öllu Ásalandi og þó
hann dvelji á þessum auðnum
eitthvað fram eftir vetri til að
gæta húsa á prestssetrinu verði
þar harla lítið úr prestsstörf-
um.
En það sannaðist á sr. Sig-
urði, að 'hollari er frumbýling-
um húsbruni heldur en hval-
reki á fynsta búskaparári.
Hann var að visu í hús-
mennsku næstu 3 árin hjá bróð
ur sínum, sr. Halldóri í Hólma-
seli, en síðan fékk hann styrk
(10 skildinga af hverju brauði
í Skálholtkbiskupsdæmi) til að
byggja upp staðinn i Ásum og
gerðist þar góður búhöldur og
efnamaðuir, en ekki skaraði
hann fram úr öðrum um kenni-
mennsku. Fer biskup (i bréfi
til stiftamtmanns) þeim orðum
um sr. Sigurð, að hann hafi
alltaf verið undarlegur og ein-
þykkur, hann er lítt gáfaður
og lítt lærður, en hann hafi
verið ástundunarsamur í emb-
ætti sínu, einkum uro upp-
fræðslu ungmenna. Kona
sr. Sigurðar var Ólöf Vigfús-
dóttir Ketilssonar lögréttu-
manns í Skál. Bún var systir
Guðríðar konu sr. Hail-
dórs bróður hans.
Sfrax i upphafi Skaftárelda
1783 fluttist sr. Sigurður frá
Ásum, enda átti hann að góðri
staðfestu að hverfa þar
sem var eignarjorð hans Ytri-
Sólheimar í Mýrdal. Kom hann •
'ekki við kirkjuleg störf eftir
það. Á Sólheimum hélt hann
áfram búskap og umsýslu með
myndarbrag, fékk t.d. verðlaun
frá konungi fyrir hleðsiu tún-
garða, sem hann hlóð, 158
faðma að iengd.
Meðal barna sr. Sigurðar og
Ólafar var Guðríður kona
Eyjólfs Alexanderssonar hins
kynsada á Sólheimum.
Sr. Sigurður andaðist alda-
mótaárið, sjötugur að aldri.
SR. JÓN Á KÁLFAFELLI
Eins og fram kemur i svari
sr. Jóns Hjaltalíns á Kálfafelli
hefur hann þegar haft bréfa-
samband við þá Lærdóms-
lista-félagsmenn enda gerðist
hann félagi þeirra árið eftir.
Sr. Jón Hjaltatin var hinn
Framh. á bls. 13
V
U---------------- -------------------------------------------------------------------------JJ
Handavinna
Undarleg er sú árátta sumra
kvenna að tala niðrandi um handa-
vinnu kynsystra sinna. Ég lief heyrt
þær stæra sig af að kunna hvorki
að halda á nál né prjónum og tala
af megnustu fyrirlitningú um handa-
vinnukennslu stúlkna í barnaskól-
um, hún sé allsendis úrelt og eigi
ekki við á þessum nýju og frjálsu
timum. Auðvitað eru hinar öfgarnar
ekki betri, þar sem mæðurnar gang-
ast svo upp í bróderíi dætranna, að
þær stelast sumar tii að sauma fyr-
ir þær heima til þess, að þær fái
sem liæstar einkunnir og allir sjái,
hvað þær eru bráðmyndariegar. Nei,
þarna er meðalvegurinn beztur eins
og annars staðar og mér fynd-
ist skömm að því fyrir islenzku þjóð-
ina, ef dætur hennar kynnu ekki
lengur að prjóna leista og vettlinga,
halda á heklunál og sauma kross-
saum eða góbelín, jafnvel þótt þær
neyddust aldrei til að hekla eða
prjóna á eigin börn, ef þeim er það
svo mjög á móti skapi. Sama gildir
um drengi, þeim ætti einnig að kenna
undirstöðuatriðin í liandavinnu. Oft
hef ég dauðvorkennt karlmönnum að
sitja auðum höndum undir sjónvarpi
eða útvarpi. Á liinn bóginn ætti svo
líka að kenna stúlkum undirstöðu-
atriðin i smíðum.
I ljóði sínu „Krosssaumur“ kveð-
ur Hulda um „smámeyjar dalanna“,
sem vefa „draumanna rós og reyni
og regnblá sumarlönd“ „í dúka og
bönd“. Þvilika rómantik eiga hinar
frjálsu valkyrjur nútímans eflaust
bágt með að þola. En guð hjálpi okk-
ur hinum, ef alla skáldlega róman-
tík vantaði í tilverima. En Hulda
kveður um fleira i ljóði sínu. Hún
veit, að fullorðinsárin færa dalámeyj
unni ef til vill sorgir og tár og seg-
ir: „Þá verður það ef til vill iðnin,
sem yfir harminn þig ber.“ Það lief-
ur hún eflaust margoft gert og ger-
ir e;nn og kemur í stað margrar
taugapillunnar.
Mikið hefur verið uni það talað,
hvað lopapeysuprjónakonurnar fái
lítið fyrir sinn snúð í beinliörðum
peningum. Það er dagsatt. En
ég held, að margar þessar prjóna-
konur séu ekki eingöngu að liugsa
um peninga. Margt eru þetta konur,
sem fremur hafa kosið að vera
heima hjá börnum sintmi en vinna
úti. Þær nota niarga stundina til að
prjóna á fjölskylduna og ef tími er
til, prjóna þær meira en þær þurfa
sjálfar að nota. A meðan geta þær
hlustað á útvarp, liorft á sjónvarp
og jafnvel lesið blöð og bækur. Þær
nýta stnndina vel þessar konur og
geta jafnframt fylgzt með gangi mála
í heiminum, mun betur en þíer, sem
eru þrælbundnar í vinnu undir
annarra stjórn.
Mikið dáist ég að vinkonum mín-
um, sem alltaf hafa með sér handa-
vinnu í afmælisboð. Á meðan við hin-
ar sitjum auðum höndum og látum
okkur inisjafnlega merkilega speki
um munn fara, skapast í höndum
þeirra nytsamir og fagrir hlutir, jafn
framt því sem þær talta fullan þátt
í samræðunum.
Mikið lifandis ósköp er margt fal-
legt í gluggum hannyrðabúð-
anna þessa dagana. Ég ætla einhvern
daginn að kaupa mér reglulega fal-
legt góbelínveggteppi og mig klæj-
ar í fingurna eftir að byrja að sauma
það. Karlmenn ættu ekki að hika
við að kaupa sér eitthvað fallegt til
að sauma, ef þá langar til. Nú fást
einmitt alveg sérlega fallegir, grófir
og auðsaumaðir krosssaums- og góbe-
línpúðar.
Anna María Þórisdóttir.