Lesbók Morgunblaðsins - 01.04.1973, Blaðsíða 5
Guðbjörg Björgvinsdóttir og Guðmiuidur Örn Sigurjónsson á hinu nýstofnaða heimili þeirra.
Þau hjónin GUÐMUNDUB
ÖBN SIGUBÞÓESSON og
GUÐBJÖEG B.JÖBGVINS-
DÓTTIB hafa komið sér nota-
iega fyrir í risíbúð á Hofteigi
20 ásamt ungum syni sínum og
heimiliskettinum, en bráðlega
mun þó fjölga um einn i fjöi-
skyldunni. Teigarnir eru vina-
legt og hlýlegt hverfi, þægi-
lega í sveit sett. Hefur það
aukizt á undanförnum ár-
um, að ungt fólk reyni að ná
sér í góðan kjallara eða ris-
íbúðir í eldri húsum. Nú er far
ið að veita húsnæðismálastjórn-
arlán til kaupa á eldri íbúðum,
svo ekki þarf allt ungt fólk að
flytjast í blokkir í nýju hverf-
unum. Húsið að Hofteigi 20 er
nokkuð stórt og virðast vera
fjórar íbúðir hvorum megin í
húsinu, kjallari, tvær hæðir og
ris. Bisíbúð þeirra hjóna er 95
fermetrar að stærð, eða fjögur
herbergi, og dálítið undir súð.
Þó að húsið sé ekki nýtt af nál-
inni er ferskur biær yfir ris-
inu. I»ar er fjörugt litaval á
veggjum og nýtízku húsgögn
prýða stofuna.
— Keyptuð þið þessa ibúð
og hvað kosta svona ibúðir i?
dag?
— Við keyptum hér í haust
á 1.600.000 krónur og borguð-
VERÐA AÐ
VELTA FYRIR
SÉR HVERRI
KRÓNU
um milljón út. íÞau 600,000, sem
eftir eru, eigum við að greiða
upp á tíu árum. Verðum við
að teljast óvenju heppin, að
hafa fengið íbúðina keypta á
svo góðu verði. Áður vor-
um við búin að 'kaupa hæð á
Vesturbergi í Breiðholti, en
seldum hana, þegar okkur stóð
þetta til boða.
— Vilduð þið frekar búa hér
en i Breiðholtinu ?
— Já, við vorum búin að
skoða mikið af eldri íbúðum,
þegar við gáfum upp alla von
og keyptum í Vesturbergi, en
þá höfðum við svo litla pen-
inga að fasteignasalarnir
hlustuðu varla á okkur. Við
undirritun samnings um íbúð-
ina á Vesturbergi þurftum við
að borga tvö hundruð þúsund
krónur og af því fékk ég helm-
inginn að láni, sem ég svo bórg
aði niður á einu ári. Meðan
við biðum eftir afhendingu
Breiðholtsíbúðarinnar reynd-
um við að safna eins miklum
peningum og mögulegt var og
áttum orðið ein sjö hundruð
þúsund í haust. Þá fórum við
aftur á stúfana og fundum
þessa ibúð. Við fengum lánuð
þau þrjú hundruð þúsund, sem
vantaði í útborgunina, en af-
ganginn, sex hundruð þúsund,
greiðum við sem sagt upp á
tíu árum og það verða anzi
stífar afborganir.
— Þurftuð þið ekki að kaupa
margtíbúið?
— Flest eldhúsáhöld og þess
háttar fengum við í brúðargjöf,
segir Guðbjörg, og þvottavél
og ryksugu hef ég að láni. Ég
hef keypt mér smávegis af taui
og eins fengum við okkur sjón
Guðbjörg og Guðmundur
á brúðkaupsdaginn.
varp, grammófón með hátölur-
um, sófasett og hjónarúm.
Þetta hefur kostað rúmar tvö
hundruð þúsund krónur. Ekk-
ert þurfti að gera við sjálfa
íbúðina nema mála og kaupa
teppi, sem kostuðu fimmtíu þús
und krónur.
— Hafið þið hjónin bæði
unnið úti?
— Ég er útlærð hárgreiðslu-
dama, segir Guðbjörg, en ég
hef ekkent starfað að hár-
greiðslu siðan ég útskrifaðist.
Guðmundur er vélvirki og
vinnur i Straumsvík,
— Hefurðu nógair tekjur,
Guðmundur, til að standa und
ir 'þessum afborgunum?
— Já, ég hef sæmilegar tekj-
ur, en ég vinn líka til klukk-
an tíu eða tólf á hverju kvöldi,
þegar aukavinnu er að
fá. Mjög gott er að vinna í
Straumsvík. Tiil dæmis þurfum
við ekkert 'á bíl að halda, þar
sem mér er alltaf ekið í og úr
vinnu, og við búum það ná-
Jægt miðbænum. að stutt er að
Framh. á bls. 15
BETRA AÐ GÆTA SÍN
Á OF MIKILLI VINNU
í kjallaraíbúð í þriggja hæða
húsi að Bauðalæk 9 búa þau
hjónin JÓN BUNAB HJÖB-
DEIFSSON, rafvirki, og
SIGBÚN ÁGÚSTSDÓTTIB,
Sigrún og Jón Búnar
á brúðkaupsdaginn.
fóstra. Sigrún var nýkom-
in heim af Fæðingarheimilinu,
þar sem hún eignaðist aðra
dóttur þeirra hjóna, þegar Les-
bókina bar að garði. En hún
lét það ekki á sig fá og tók á
móti blaðamanni af mikilli
rausn ásamt ntanni sínum og
dætrunum tveimur. Eins og
annars staðar, þar sem við
höfum komið vekur það
athygli okkar, hve heimiiið er
frábærlega vel úr garði gert.
Ungt fólk virðist vera óhrætt
við að fara sínar eigin leiðir,
blandar saman gömlu og nýju,
heimatilbúnum hlutum og dýr-
ustu stássmunum úr verzlun-
um. Þarna eins og víðar á leið
okkar rikti mikil litagleði.
— Hvenær giftuð þið ykk-
ur hjónin?
— Það var í ágúst síðast-
liðnum, en í april vorið áður
keyptum við þessa íbúð, þó að
við filyttumst ekki imn fyrr en í
ágúst. Við þóttumst lánsöm að
fá þessa eign á 1.500.000 kr.
að borga eina milljón út. Hluti
af eftirstöðvunum hvílir á
handhafaskuldábréfi að upp-
Framh. á bls. 7