Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1961, Page 16
132
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
BRIDGE
A G 10865
V 8653
♦ D952
* —
A K 3
V 10 7 2
♦ KG6
* DG984
A D 9 7 4 2
V ÁDG
♦ 74
* ÁK 10
S gaf og sagði spaða. V sagði pass,
N sagði 4 spaða og varð það úrslita-
sögn.
Út kom L D. Nú var auðséð að and-
stæðingar mundu fá tvo trompslagi og
gátu fengið tvo slagi í tígli. Hvemig
átti S að vinna?
Hann drepur L D með trompi í
borði og svínar svo hjarta. Þá kemur
út LK og er drepinn með trompi í
borði, og aftur er hjarta svínað. Svo
er tekinn slagur á H Á og síðan sleg-
ið út L A, en hann er trompaður í
borði. Og nú kemur seinasta hjartað
úr borði, og S fleygir í það tígli, hvað
sem A gerir. Ef V trompar slaginn þá
falla saman ás og kóngur í spaða.
A A
V K 9 5
♦ Á10 8 3
A 76532
Kvakað á kaupmanninn.
Eitt sinn kom gömul og fátæk kona
inn í verslun í Keflavík, þar sem
Ólafur Norðfjörð var þá verslunar-
stjóri. Ólafur var sonur Magnúsar
Jónssonar Norðfjörð í Sjóbúð í
Reykjavík, og var kvæntur Júlíönu
dóttur Snæbjarnar Benediktssonar
verslunarstjóra, sem fórst með póst-
skipinu „Sölöven" undir Jökli 1857.
Konan ávarpaði Ólaf á þessa leið:
Nú er eg komin, Norðfjörð góður,
nægilegt með sálarfóður,
en það dugir ekki samt.
Líkaminn þarf líka fæðu,
VATNAVEXTIR. — Fyrir skemmstu gerði asahláku með mikilli úr-
komu á fjöllum. og hljóp þá geisilegur vöxtur í allar ár. Hér má sjá Ölfusá
bakkafulla hjá Selfossi og með miklu straumkasti. Það virðist ekki mega muna
miklu að hlaupið nái hinni nýu kirkju þorpsins, og stendur hún þó hátt.
(Ljósm.: vig).
löngum mér það eykur mæðu,
mjög að borða mér er tamt.
Kvelur mig helzt kaffileysi,
kúri eg ein í bæarhreysi,
allt er hér í veröld valt.
Ekkert korn eg á til heldur
— Ólafur Norðfjörð þessu veldur.
Verst er þegar vantar allt.
(Sögn Sigríðar Þorvaldsdóttur frá
Krossi í Landeyum).
Völundarhús
Suðurbarði nefnist hár hrauntangi
milli Djúpalónssands og Dritvíkur.
Þar gerðu vermenn í Dritvík sér Völ-
undarhús úr torfi og skemmtu sér við
að ganga þar um og komast klak-
laust út, án þess að villast. Sér fyrir
húsi þessu enn og hefir það verið
þrír faðmar í þvermál og gert af tíu
hringum, hverjum utan yfir öðrum.
— Völundarhús hafa verið til víðar.
Um það bil sem eru landamerki
Fagradals á Skarðsströnd og Tjalda-
ness, gengur eyri fram í fjörðinn og
kallast Þingeyri. Þar voru mannvirki
forn, er menn heldu vera hauga og
höfðu verið að grafa í til að leita fjár.
En Sigurður Vigfússon sagði að þetta
væri engar dysjar, heldur leifar af
Völundarhúsi.
Líkakrókur
heitir graftól; það er skapt eins og
járnkarl og munni á hvorum enda
sem á handöxi og skaröxi, en auga í
miðju; þar setja menn skaft í sem
hjá steinhöggvurum. (Séra Einar
Bjarnason á Síðu 1705).
Opnar kirkjur
Það er gömul trú á Stokkseyrar-
kirkju, að hún skal alltaf standa opin
þegar skip eru á sjó, því að ekki far-
ist skip á réttu sundi þegar hún sé
opin. Sama er að segja um Kirkju-
vogskirkju í Höfnum, að ekkert skip
ferst þar á sundinu, sé hún opin. í
Viðey má ekki loka kirkjunni, því að
þá á bátur að farast á sundinu. Með-
an kirkja var 1 Holti undir Eyafjöll-
um, skyldi hún alltaf standa opin þeg-
ar bátar voru á sjó.