Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1961, Síða 11
lega er ekið litlu hlassi af votheyi
út til nautanna og því kastað fyrir
þau á gaddinn, það gera þau sér
að góðu, en aðspurður kveðst bú-
stjórinn ógerla muna hvað „dags-
gjöfin“ sé mikil, ekkert verið að
fást um það. En hvað um það,
gripirnir eru hinir sællegustu, og
engar mannafælur, samt er dá-
lítill snúður á tuddanum, og
Nærland vill ekki að eg gangi
mjög nærri honum. — Vel myndi
fara um þessa gripi í Grímsnes-
inu og í Höfðahverfinu, datt mér
í hug, eða í Skaftártungunni og
Meðallandinu. En mér er spum
hvernig þeir una í flóum og mýr-
um?
Upp í hlíðinni, vel fjarri manna
traðki, eru 25 ær af „ekta“ úti-
göngufjárkyni norsku, ljónstyggar
og láta ógjama handfjalla sig,
enda komast þær lítt undir manna
hendur, nema þegar þeim er
smalað við illan leik til rúnings
og til þess að marka lömbin. Enga
aðhlynningu fá þessar ær, þær
bjargast alveg við útiganginn, að
minnsta kosti í Öllum venjulegum
árum, en fallþungi lambanna er
lítill, 10—12 kg er mér sagt. Þetta
fé er hraust, engir sjúkdómar, seg-
ir Nærland. Hér setur sjaldan nið-
ur snjó að ráði, en úrkomur eru
þó miklar, víst um 1100—1200 mm
á ári, stórviðri sjaldan en oft gust-
ur um garða.
Þegar við komum heim að
Horni aftur er féð, sem var úti á
beit, komið í hús og raðar sér á
garða. Þar eru einnig tilraunahóp-
ar sem ekki eru látnir út þótt vel
sé beitarfært, eru aldir inni vegna
tilrauna. Geitur eru hér nokkrar,
5 hestar, þrjár mjólkurkýr og
töluvert af kálfadóti, svo að naut-
gripir eru alls nær 40 auk sauð-
fjárins sem er aðalatriðið, alls
rúmlega 200 á fóðrum.
Matsmennirnir hafa lokið verki
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
127
Vörn gegn
FYRSTA lyfið, sem notað var hér á
landi til þess að gera menn ónæma
gegn drepsótt, var bóluefnið. Og vegna
þessa eru nú öll slik ónæmislyf nefnd
bóluefni, enda þótt þau eigi ekkert
skylt við bólusóttina. Það var einnig
kallað að bólusetja, þegar efni þessu
var komið inn í hörund manna, og
þetta nafn hefir færzt yfir á þá at-
höfn er menn eru gerðir ónæmir
fyrir öðrum drápskvillum. Það er
talað um að bólusetja við barnaveiki,
mænuveiki, berklaveiki, hitasótt o.s.
frv.., enda þótt það eigi ekkert skylt
við bólu. Þannig geta orð verið látin
duga, þótt þau sé markleysa ein.
Venjulegast er, að varnarlyfi sé
spýtt undir hörund manna, og til
þess notuð hol nál, sem stungið er
mismunandi djúpt. Rétt nafn á þessu
væri því innspýting. En vegna þess
að það er að sumu leyti ekki heppi-
legt, mætti ef til vill nota nafnið
innkoma, og láta það gilda bæði í
sínu. Þeir láta auðvitað ekkert
uppi um það hvers virði þeir telji
að Hornið sé, þeir ræða samt um
framtíðina, að vonandi komi til
einhver góður kaupandi, sem
reynist fær um að sitja Hornið
vel, og halda öllu í horfi, en að til
þess þurfi nokkuð fjársterkan
mann, til þess að leysa út jörðina,
kaupa áhöfn og vélar o. s. frv.
Víst um það. Það er víðsýnt á
Horni og bjart um að litast, þessi
jörð fer ekki í eyði, en þó er það
talandi tímanna tákn, og áminn-
ing nokkur, að á Rennisey hefir
fólksfjöldi staðið í stað síðan 1947,
betur gerir nú ekki, rúmlega
klukkustundar siglingu frá borg-
inni og skipaviðkomur 1—2 á dag
allan ársins hring. Það hriktir víða
í sveitunum. Hér er ekkert bíó á
næsta leiti og þriggja km vegur
í næstu búð, talið heiman frá
Horni.
drepsóttum
stað bóluefnis og bólusetningar. (Út-
lenda nafnið „inoculation“ þýðir að
koma e-u inn hjá e-m, en samsvar-
andi því í málinu er að spýta e-u
í e-n. Sbr. og inntaka, sem er al-
gengt nafn á meðulum og notkun
þeirra).
Það er nú regla, að langferðamenn
fái ónæmisskammt við ýmsum far-
sóttum, áður en þeir leggja á stað,
og sjálfsögð skylda þykir að gera
hermenn ónæma fyrir alls konar veik-
indum. En slíkt starf er mjög tíma-
frekt þegar notuð er nál. Þess vegna
lét herstjórnin í Bandaríkjunum finna
upp sérstakt áhald til þessa, og er
það nefnt „hypospray multidose in-
jector". Það er þannig gert, að á litl-
um fleti er örlítið gat og út um það
spýtist innkoman með feiknakrafti.
Þegar flöturinn er lagður við hörund
manns og rafstraumi hleypt á áhald-
ið, kemur buna í gegn um gatið með
svo miklum krafti, að hún fer í gegn-
um hörundið. Þetta áhald þarf ekki
að sótthreinsa í hvert skipti eins og
nálarnar, og það er ekki andartak
verið að þessu. Áhald þetta hefir
komið sér mjög vel í baráttunni gegn
drepsóttum meðal frumstæðra þjóða,
þar sem um er að gera að gera sem
flesta ónæma á sem skemmstum tíma.
Kom það bezt í ljós í Austur-Pakist-
an fyrir skemmstu, þegar meginþorra
þjóðarinnar þurfti að gera ónæman
fyrir kóleru og taugaveiki. Með
gömlu aðferðinni hefði einn maður
getað annað 100 mönnum á dag, en
þarna gátu tveir menn annað 6759
á dag. Það er sama sem að hvert
áhald hafi unnið 25—30 manna verk.
Þetta gekk og mikið betur og fljótar
en venja er, því að hvorki konur né
börn óttuðust þetta áhald, en yfirleitt
eru frumstæðir menn óskaplega
hræddir við nálaij, og því oft erfitt
að koma ónæmisefninu í þá.
Þú skalt ekki taka þér nærri þótt
einhver stæli þig; meðan hann gerir
það, fer hann ekki fram úr þér.