Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1961, Side 8
124
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
ARMI G. EYLAMDS:
HEIIMSÓKIM Á HORMI
ÞAR DVÖLDUST FYRRUM ÍSLEAIZKIR FJÁRRÆKTARMEMV
FROST og heiðríkja, stafalogn og
sléttur sjór. Við stefnum út By-
fjorden, fram hjá Rosenberg,
skipasmíðastöðinni miklu, þar sem
þeir unga út 10—50 þúsund smá-
lesta skipum hverju af öðru. Það
munar um slík fyrirtæki í borg,
þar sem ekki búa nema 52 þús-
und sálir. Um 1200 manns vinna
í stöðinni þegar allt er í góðum
gangi.
Til vinstri handar er sjómanna-
skólinn og ber hátt á bergi, en
annars er margt illra húsa, að út-
liti, hér út með ströndinni, síldar-
verksmiðjur og söltunarstöðvar,
ekki parið fríðar álitum, en oft er
þar peningalykt, og hún má sín
mikils. Hið efra, er frá dregur
fjörunni, er óðum að aukast byggð
íbúðarhúsa, enda eru hér allar að-
stæður til þess að byggjast megi
hinn fegursti hluti Stafangurs, um
hlíð og ása út með firðinum, og
sennilega eiga útgerðarfyrirtækín
eftir að víkja fyrir vingjarnlegri
bólstöðum og skipulagi á þessum
slóðum.
Nú víkkar sviðið, framundan
sér til hinna stærri eya, þar ber
Hornið á Rennisey hæst. Þangað
er ferðinni heitið, en þó með
nokkurri töf, því að við stefnum
utanhalt við eyna og meðfram
henni til Vikevág. Rennisey er
stærsta eyan á þessum slóðum,
Árni G.
Eylands
13 km löng og um 42 ferkm að
flatarmáli, en þá er raunar talin
með smáey ein sem tilheyrir
hreppnum líka, — en Rennisey er
hreppur út af fyrir sig, íbúar um
1444. Við siglum meðfram eynni
vestanverðri, þar er víða bratt-
lent og lím byggð, svo að mjög
kemur í ljós að eyan er hálend,
hæst ber Hornið — Hodne-hodnet
— eins og það er kallað, 234 m
hátt yfir sjó. En eyan er betri en
hún virðist, séð frá þessari hlið.
Við Vikevág lækkar landið og þar
hefir myndazt þorp umhverfis
voginn og höfnina, með því sem
til slíks þorps fellur, bryggja, bát-
ar, mjólkurbú, samvinnubúð o. s.
frv. Barnaskóli, nýr af nálinni,
með þeim myndarsvip sem merk-
ir slíkar stofnanir víðast nú orðið,
er rétt innan við þorpið, þar sem
við ökum þvert yfir eyna, og
síðan inn sveitina, byggðina á
austurströndinni. Þar er allt víð-
ara og vingjarnlegra, ræktað land