Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1961, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
123
Rangár-samþykktin
höfuð. Hjá þeim sem hafa þunnt
höfuð er blóðstraumurinn jafn og
blóðið á ekki í neinum erfiðleik-
um að komast yfir kollinn. En á
hinum breiðu kollum geta æð-
arnar stíflast af þrýstingi höfuð-
leðursins. Væri nú þetta rétt, þá
væri fengin einföld skýring á því
hvers vegna menn verða sköllótt-
ir. En svona einfalt er það nú
ekki, segir annar læknir. Og hann
kemur fram með sína skýringu:
Hjá þeim sem hugsa mikið, er
heilinn alltaf að stækka, jafnvel
fram á fimmtugsaldur, eða leng-
ur. En vegna þess að höfuðskelin
lætur ekki undan, verður þar
þrýstingur sem leggur saman
blóðæðarnar, svo að hársvörður-
inn fær ekki nægilega næringu.
Þetta mun vera orsökin til þess
að menn verða sköllóttir, enda
eru flestir andans menn sköllótt-
ir, en fábjánar mjög sjaldan, seg-
ir hann. Og svo bætir hann við
setningu, sem öllum konum mun
þykja mjög móðgandi: „Frum-
stæðir menn verða aldrei sköll-
óttir, og ekki heldur konur, vegna
þess að heilinn í þeim er svo
lítill".
— • —
Sannleikurinn er sá, að hárlos
getur stafað af mörgum ástæðum,
sem ekkert koma við höfðinu né
höfuðleðrinu. Og fólk ætti að
koma tímanlega til læknis, þegar
það verður vart við hárlos. Þá
getur komið í ljós að það stafar
af háum blóðþrýstingi, hjartveikl-
un, lifrarveiki, meltingarkvillum
o. fl. Læknir mun einnig rann-
saka þvag og blóð, athuga hvort
rétt hlutfall er milli rauðra og
hvítra blóðkoma, og hvort nokkur
óregla er á hormónum. Hitt getur
líka svo sem vel verið, að hárlosið
stafi af væringu í höfði, eða þá
einhverjum húðsjúkdómi, sem
ÞRETTÁNDA erindið í 13. Al-
þingisrímunni er svohljóðandi:
Norðmýlingar sóttu að sennum
— sveigðu vopnin stinn. —
Rauk sem gufa af rekka ennum
Rangár-samþykktin.
Rímurnar voru kveðnar um við-
ureignina á Alþingi um aldamótin
milli Heimastjórnarinnar og Val-
týskunnar.
Tilefnið til vísunnar mun nú
mörgum gleymt. Gegnir því máli
að rifja það upp.
Sumarið 1900 (26. júní) boðuðu
þingmenn Norðmýlinga, séra Ein-
ar Jónsson á Kirkjubæ og Jó-
hannes Jóhannesson sýslumaður
Norðmýlinga almennan stjórn-
málafund á Rangá. Þetta var á
annatíma bænda og fundarsókn
lítil af Héraði. En með Jóhannesi
í fylgd voru nokkrir Seyðfirðing-
ar, einnig Skapti Jósepssyni rit-
stjóri. — Skapti með blað sitt,
ekkert ber á útvortis, en læknar
munu skjótt finna. Og það eru nú
til ýmis meðul til að bæta úr öllu
þessu, svo að menn geta verið
vongóðir um að læknum muni
takast að stöðva hárlosið og koma
í veg fyrir að skalli myndist, jafn-
vel að græða nýtt hár þar sem
skalli var að myndast.
Það er víða trú manna, að hár-
vöxtur örvist mjög við það ef
hárið er rakað af hörundinu. Sum-
ir láta því raka á sér Jcollinn og
halda að mikið og fagurt hár
spretti þá upp úr honum að nýu.
En það er óhætt að fullvissa menn
um, að slík aðferð er gagnslaua
með öllu.
Austra, var liðsoddur andstöðunn-
ar gegn Valtýskunni, en sýslu-
maður, með Bjarka til stuðnings,
fylgjandi henni.
Fundarstjóri var séra Einar á
Kirkjubæ og fundarritari séra
Björn Þorláksson á Dvergasteini.
Felld var með 11 atkvæðum
gegn 3 tillaga frá Skapta um
fylgi við stjórnarskrárfrumvarp
Benedikts Sveinssonar frá þing-
inu 1894, en samþykkt með 18:3
atkvæðum tillaga um fylgi við
frumvarp Valtýinga frá 1897. —
Fleiri munu kjósendur ekki hafa
verið á fundinum.
Þessum sigri Valtýskunnar í
Norður-Múlasýslu var hampað
óspart á Alþingi og í umræðum
utan þings. Hin samþykkta til-
laga hlaut nafn kennt við fundar-
staðinn. Að því lýtur þetta til-
greinda erinda í Alþingisrímun-
um. —
Halldór Stefónsson.
Fróðleiksþrá
Áskrifendur að ameríska tímaritinu
„National Geographic“ eru um 2.400.-
000 og dreifðir um allan heim. Ritinu
berast oft beiðnir um upplýsingar, og
ekki auðvelt að svara öllum. Þar á
meðal voru þessar órið sem leið:
„Hvernig elskast fólk í Indlandi.
Bekkurinn þarf á því að halda eftir
áramótin". — „Hvemig stendur á þvf
að hvalir eru stórir?“ — „Viljið þér
safna saman öllum þeim fróðleik, sem
þér getið náð i og senda mér við
fyrsta tækifæri“. — „Eg get ekki
hjálpað kennurum mínum, vegna þess
að mig vantar þekkingu. Mér þætti
mjög vænt um ef þér vilduð senda
mér allar upplýsingar um allt".