Lesbók Morgunblaðsins - 05.03.1961, Side 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
121
að skyldustörf oddvita væru æði
mörg og margvísleg.
Það var einn vordag að hús-
freya í sveitinni sendi til mín og
bað mig að koma þegar í stað,
því að maður sinn væri að dauða
kominn. Eg vissi ofur vel að eg
gat ekkert gert fyrir hinn dauð-
vona mann, en eg brá þegar við
og fór þangað. Bóndinn skildi við
rétt eftir að eg var kominn. Eg
hafði varla veitt honum nábjargir,
er þangað er kominn annar sendi-
boði og biður mig blessaðan að
fara að öðrum bæ í þessari litlu
sveit, og tilkynna fólkinu þau
sorgartíðindi, að bóndinn þar hefði
drukknað í Kúðafljóti. Eg fór
þangað og rétt á eftir var komið
með líkið. Það varð mitt hlut-
skifti að færa það úr fötum,
leggja það til og veita nábjargir.
Eg held að þetta hafi verið ein-
hver dapurlegasti dagurinn á ævi
minni.----------
Katla hrakti okkur úr sveitinni
Haustið 1918 kom Kötlugosið.
Eg ætla ekki að lýsa því nú, en
það veitti okkur þær búsifjar, að
eg sá fram á að eg yrði að yfir-
gefa jörðina. Drengirnir mínir
voru nú óðum að ná þroska og
vildu fara á sjóinn. Það varð því
að ráði að eg ritaði vini mínum,
tryggðatröllinu honum Gunnari
Ólafssyni kaupmanni, sem þá var
kominn til Vestmanneya, og bað
hann að útvega okkur húsaskjól
þar. Og hann brást mér ekki frem-
ur en vant var.
Og nú kom að því að við átt-
um að skilja við Álftaver, og
skilnaðurinn var blandinn sökn-
uði. Við höfðum tekið tryggð við
sveitina og áttum vini á hverjum
bæ. Það reyndist því sárara en
mig hafði órað fyrir að rífa sig
þar upp með rótum. Eignalaus
komum við í Álftaverið, en ekki
fórum við allslaus þaðan eftir 2Q,
ár, því að nú áttum við 13 heil-
brigð og mannvænleg börn. Að
öðru leyti var og efnahagur okkar
miklu betri en þegar við byrjuð-
um búskapinn, og mundi þó hafa
verið stórum betri, ef meinvættur-
inn Katla hefði ekki gert okkur
skráveifur haustið áður. Búslóðina
fluttum við með okkur út í Eyar,
en kvikféð seldum við og þegar
flestar skuldir voru greiddar, átt-
um við enn eftir um 9000 krónur,
en að vísu ekki nema 5000 krón-
ur handbærar, og af þeim áttu
3000 krónur að fara til kaupa á
húsinu Háigarður í Vestmanney-
um.
Við fórum fyrst til Víkur, en
þa&an skyldi farið með vélbátnum
Skaftfellingi til Eya. Og þá reyndi
eg hvað það er að eiga vin, sem í
raun reynist.
Eg skuldaði Halldóri Jónssyni
kaupmanni í Vík, hafði alltaf
skuldað honum meira og minna
öll þessi 20 ár, sem eg var í
Álftaveri, og hafði þó verslað lítið
við hann, því að eg skifti við
kaupfélagið. En í hvert skifti er
brýn nauðoyn var á meiri vörum
heldur en eg gat fengið í kaupfé-
laginu, var þrautalendingin að
fara til Halldórs og bæta þar nýu
láni ofan á gamla skuld. Alltaf
var það til reiðu, aldrei krafðist
Halldór þess að skuldin væri
greidd að fullu, og aldrei reiknaði
hann sér neina vexti af henni. Nú
kom eg til hans, ætlaði að greiða
skuldina að fullu og taldi féð
fram á borðið.
En Halldór vildi ekki tala við
peningunum. Hann sagði að eg
mætti ekki koma slyppur til Eya,
og þessa peninga mætti eg því
ekki missa að svo stöddu. Eg hygg
að fáir hefði sýnt slíkan dreng-
skap. Og hann gerði meira. Hann
bauð mér að leita til sín ef mér
lægi á, og það var ekki mark-
laust loforð.
Þeir áttu sér öruggt vígi Skaft-
fellingar meðan þeir Gunnar Ól-
afsson og Halldór Jónsson voru í
Vík.
— O —
Og nú lýkur búskaparsögu
minni þar sem við siglum til Vest-
manneya með Skaftfellingi. Hér
er ekki sagt nema örlítið brot af
henni. Lífið hafði kennt mér
margt á þessum 20 árum, en þó
helzt það, að láta aldrei hugfall-
ast, treysta á sjálfan sig og treysta
guði. Og það er óvéfengjanlegur
sannleikur í þessu orðtaki: „Guð
hjálpar þeim, sem hjálpar sér
sjálfur“.
Á. Ó. skráði.
IVieira B-fjörvi
A ALÞJÓÐARÁÐSTEFNU, sem ný-
lega var haldin um mataræði þjóð-
anna, helt rússneski vísindamaðurinn
dr. Victor Efremov því fram, að
menn þyrftu að fá meira af B-fjörvi
(complex) en raun er á, einkum þeir
sem vinna með höfðinu. B-fjörvi
læknar ofþreytu og fylgifiska henn-
ar, taugaveiklun og þunglyndi. Hann
sagði að heilbrigðisráð Rússa ráð-
legði mönnum stærri skammta af B-
fjörvi heldur en heilbrigðisráð Banda-
ríkjanna, eða 3 milligr. meira af B-2
(riboflavin) og 3 millgr. meira af B-1
(thiamin). Ennfremur hefði rússneska
heilbrigðisráðið nýlega ráðlagt mönn-
um að bæta við sig daglegum auka-
skammti, 2 millgr., af B-6 (pyrodix-
ine hydrochloride). Þetta meðal hefir
reynzt sérlega vel við vöðvaþreytu,
sjúkdómum í vöðvum og geislaeitrun.
Þetta efni er hægt að fá úr ýmsum
fæðutegundum, svo sem jastri. lifur
og grænmeti.