Lesbók Morgunblaðsins - 02.10.1955, Page 6
f §38 'W
LESBÓK MQRGUNBLAÐSINS
jCeiLfc
anffaua
ni. LEIKGILDI
EIKFANG er gripur, sem
á að örva tilraunaþrá barns-
ins og afla því reynslu. Þetta má
kalía leikgildi barnagullsine. —
Leikurinn má ekki vera ein-
skorðaður við leikfangið, því að
þá lærir barnið ekkert af því.
Gott leikfang á að kenna barn-
inu að leika sér, það á sjálft að
benda barninu á að það sé til
margra hluta nytsamlegt.
Þegar menn velja leikfang, er
ágætt ráð að spyrja sjálfan sig
sem svo: „Er leikurinn einskorð-
aður við leikfangið, eða kennir
það barninu að leika sér?“ Ef
leikfang hefur þann hæfileika að
það getur kennt barninu að leika
sér, ef það getur brugðið sér í
ótal leikfanga líki, þá gefur það
hugmyndaflugi og athyglisgáfu
barnsins alveg lausan tauminn.
í þessu er leikgildi þess fólgið.
Kubbar eru leikfang af þessu
tagi. Þá má nota á óteljandi
vegu. Börnin geta látið þá tákna
hvað sem vera skal og raðað
þeim á svo marga vegu að alltaf
komi fram nýtt og nýtt viðhorf.
Bíll, sem hægt er að draga upp
og rennur af sjálfu sér, og er
nákvæm eftirlíking af allra ný-
ustu bílum, er Ijómandi fallegt
leikfang. En leikurinn er allur
fólginn í því sjálfu. Það þarf ekki
annað en draga það upp, og svo
sér það sjálft um leikinn. Hér er
það leikfangið sem leikur sér, en
ekki barnið. Fullorðnir geta dást
að hve haglega það er smíðað, en
barnið hefur engan áhuga fyrir
því. Það fær ekki skilið hvað það
er sem knýr bílinn áfram, því að
það hefur engan skilning á vél-
fræði og iðnfræði. Það vill að-
eins leika sér, taka sjálft þátt í
leiknum af lífi og sál. Vel má
vera að það hafi gaman að því
einn eða tvo daga að sjá bílinn
renna sjálfkrafa. En svo er það
búið, vegna þess að það getur
ekki leikið sér við bílinn. Og svo
gefst það annað hvort upp á
honum, eða rífur hann í sundur
til þess að komast innan í hann
og sjá hvað það er sem knýr
hann áfram og hvort ekki sé
hægt að leika sér við það.
Hér hafa verið nefnd tvö dæmi
er hafa úrslitaþýðingu, þegar
velja skal leikfang handa barni.
Það er um að gera að leikfangið
sé þannig að það henti barninu
sem ímynd hinna ólíkustu hluta,
og kenni því að leika sér.
istaflokknum, og þess vegna verð-
ur að fara að þeim með sérstakri
gætni. Félagi Molotov veit að þér
hafið þar mikið fylgi, einkum með-
al yngra fólksins, og þess vegna
vill hann að þér haldið á stjórnar-
taumunum þangað til landið hefur
sameinazt sovétríkjunum. Ef þér
segðuð af yður núna, þá gæti orðið
erfitt að útskýra það....“
„Það getur lfka verið að þér yrð-
uð að fara frá á annan hátt, og
það væri verra fyrir yður,“ sagði
Dekanozov. „Bezta ráðið fyrir yður
er að ganga í flokkinn....“
Ég svaraði því að ég mundi gera
það, sem ég áliti bezt fyrir ættjörð
mína.
„Það væri bezt fyrir þjóð yðar
að þér kennduð henni að vera vin-
gjarnleg í vorn garð,“ sagði Dek-
anozov. „Og ég skal bæta því við,
að félagi Molotov bað okkur að
skila til yðar að það sem hann
og við höfum sagt yður, mætti alls
ekki fara fleiri á milli.“
★
TVEIMUR mánuðum seinna var
Lithaugaland innlimað í sovétríkin
eftir gerfiatkvæðagreiðslu. í stað
Kreve-Mickevicius kom rússnesk-
ur leppur, Gedvilas að nafni.
Kreve-Mickevicius var svo hepp-
inn að komast lífs í gegnum inn-
limun Rússa óg hernám Þjóðverja,
og gat svo flúið úr landi 1944. Fór
hann þá til Bandaríkjanna og dó
þar 7. júlí 1954. Lét hann eftir sig
skriflegt allt sem honum og valda-
mönnum Rússa hafði farið á milli,
og gæti það orðið öðrum til við-
vörunar.
(„East and West“)
Bergmálsdýptarmœlar
eru ekki alltaf Öruggir
ÞEGAR teknar eru dýptarmælingar
með hinum nýu tækjum, þá er það
gert á þann hátt, að hástemmdar hljóð-
bylgjur, hærri en eyru manns nái að
greina, eru sendar niður í djúpið, og
svo bíða menn þess að þær endurkast-
ist sem bergmál, annað hvort frá botni,
eða einhverju, sem þær reka sig á.
Þessar hljóðbylgjur má senda bæði
beint niður og eins skáhallt. Og eftir
þeim tíma, sem líður frá því þær eru
sendar og þangað til bergmálið kemur,
reikna menn út dýpi eða fjarlægðir.
En það er ekki sama hvar skip er
statt, þegar dýpi skal kanna. Hljóð-
bylgjurnar fara hraðar í hlýum sjó en
köldum. Og óvíða mun sami sjávarhiti
frá yfirborði að botni, heldur er sjór-
inn oft eins og í lögum, þar sem skift-
ast á hlý og köld lög. Hlýasta lagið
þarf ekki endilega að vera við yfir-
borð, það getur jafnvel verið nokkuð
djúpt á því. Vegna þessa mismunandi
hita er öldugangur niðri í sjónum og
einnig straumar. Og þessar hreyfingar
og hitamismunur niðri í djúpinu hafa
áhrif á hljóðbylgjurnar og geta breytt
stefnu þeirra og hraða og þannig rugl-
að reikninginn fyrir mönnum.
Ungur læknir hafði orðið fyrir mikl-
um vonbrigðum, því að engir sjúkling-
ar höfðu komið að leita hans. Seint um
kvöld hringir þó síminn og hann
sprettur upp og svarar. En þetta var
þá annar læknir, sem spurði hvort
hann vildi ekki vera fjórði maður f
bridge þá um kvöldið. Ungi læknirinn
lofaði að koma. Þá spurði konan hans
hvort það væri svo áríðandi að hann
þyrfti að fara að heiman þá um kvöld-
ið.
— Aríðandi? Já, ég hefði nú haldið
það! Þarna sitja þrír læknar og geta
ekkert gert fyr en óg kem!