Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1953, Blaðsíða 29

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1953, Blaðsíða 29
787 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS JÓL Strákur ætlaði að leika á biskup ÞAÐ er sögn Lambkárs Gunnsteins- sonar að Guðmundur biskup góði gisti i Galtardalstungu á Fellsströnd. Þá varð sá atburður þar, að hann stóð upp um morguninn og gekk til annars húss og klerkar nokkurir með honum, og var hann varla klæddur. Þá varð það til tíðinda, að sveinn einn fátækur kemur hlaupandi til biskups, alnakinn, svo að hann hafði ekki klæði á sér. Hann biður biskup að hann gefi sér föt að klæðast. Biskup hyggur að sveininum og mælti svo: „Áttu enga klæðaleppa, sonur?“ „Nei, alls enga,“ segir strákur. „Allóbirgur þykir mér þú vera, son- ur minn,“ segir biskup, „og má eigi það vera að eg ráði ekki úr við þig. Nú mun ég vísa þér á fataleppa, sem María mey hefur sent þér og eru þeir niðri á mýri undir torfstakki þeim, sem lengst er frá bænum.“ Sveinnin varð fár við og kvaðst eigi Er hækkar sól um liiminhvel, ég hátíð ljóss í minning fel, þá lék ég barn við Iegg og skel; þau leikföng dugðu furðu vel. Börnmn smáum yndi ól engin stund sem heilög jól. Pabba og mömmu áttum ást, og aldrei þeirra liðsemd brást. Enn eru blessuð börnin lík, brosa, er gefst þeim skrautleg flík, meta hjartahlýu og yl, hlakka sífellt jóla til. Á jólaboðskap hlusta hljóð um hann, sem annast börnin góð, um stjörnu, er lýsti í austurátt, um englasöng og drottins mátt. Á liðnum öldum ávallt jól í önnum dagsins reyndust skjól, þegar margs kyns mæða og stríð mæddi hér á frónskum lýð. ÓLAFURJÓNSSON frá Elliðaey fara þangað allsber. Biskup bað þá tvo presta sína að fara með honum, og fór hann mjög nauðugur með þeim. Nú koma þeir til torfstakkanna og leita undir öllum, en í þeim, sem lengst var frá bænum, fundu þeir fata- ræfla. Þeir spyrja nú piltinn hvort hann kannist nokkuð við fataleppa þessa. „Já, víst kannast eg við þá,“ segir hann, „því að eg hef átt þá og þótti mér þeir ónýtir, og helt eg að biskup mundi gefa mér aðra betri. Og ekki hefur María mey sent mér þessa tötra.“ Nú láta þeir hann fara í fataræflana og var hann þá heldur leppalúðalegur. Spyrja þeir þá hvort hann vilji finna biskup. „Ekki þori eg nú að finna hann,“ segir strákur. Þeir mæltu: „Það er þó ráð að þú farir og finnir hann og segir honum hreinskilnislega frá öllu.“ Hann fer nú með þeim og er mjög raunamæddur. En er þeir hitta biskup segja þeir honum hvernig farið hefur. Biskup mælti þá: „Hví vildir þú, kollur minn, skrökva að okkur M..ríu?“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.