Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1953, Blaðsíða 22

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1953, Blaðsíða 22
780 LESBOK MORGUNBLAÐSINS eða úlfalda og gefa fátækum kjöt- ið. Þeir, sem hafa brotið boðorð Kóransins, fórna oft tveimur eða þremur kindum til þess að frið- þægja fvrir yíirsjónir sínar. Þessi íórnarhátíð stendur í þrjá daga. En áður en þeir þrír dagar eru að iuiiu liðnir, verður pílagrímur- inn að hverta tii Mekka til þess að fara aðra hringgöngu sína um- hveriis Kaaba. Faðir minn vildi að ég iæri í bíl, en ég kaus heldur að ganga. Vér hrepptum sandstorm á leið- inni og hann ætlaði að gera út af við oss. Það var íarið að halla degi og ég var orðinn hræddur um að ég mundi ekki komast nógu snemma til Mekka til þess að ljúka göngunni umhverfis Kaaba. — Ég stöðvaði því bíl og bílstjórinn leyfði mér að sitja hjá sér, en ég varð að greiða honum 5 „ríjals“ fyrir það (einn ríjal jafngildir hér um bil 5 íslenzkum krónum). Hann kom mér nógu snemma til borg- arinnar, svo að dagur var enn eigi af lofti þegar ég hafði lokið hring- ferðinni, og síðan hljóp ég sjö sinn- um milli Safa og Marwa og lét að því búnu laga hár mitt á ný, eins og siðirnir mæla fyrir um. En þá var ég líka orðinn þreyttur og hlakkaði til að koma heim til föður míns og fá að hvílast þar í næði. Lagt á stað til Medína Það var ekkert um næði heima hjá föður mínum. í garðinum hafði hópur Javamanna slegið tjöldum sínum og þar voru þeir að elda mat. Inni í stofunum á neðri hæð haíði hópur írakmanna búið um sig, og í stiganum sátu stórir svart- ir menn frá Afganistan. — Ég smeygði mér fram hjá þessum óboðnu gestum og komst upp á loft. Þar lagði ég mig á dýnu, með handlegg undir höfðinu og sofnaði L þegar. _ ________ Medina, næsthelgasta borg Múhamedsmanna í sólarupprás vaknaði ég við morgunkallið: „Bæn er betri en svefn!“ Á þeirri stundu fannst mér það mjög vafasamt. En ég gat ekki hallað mér á vangann aftur, því að nú kallaði faðir minn: „Sabah el-kkeir, Abdul Ghafur. Góðan dag. Ertu vaknaður?“ Að loknum morgunverði töluð- um vér um hvað nú lægi næst fyr- ir. Hinni miklu pílagrímsgöngu var lokið, en ef vér vildum gátum vér tekið þátt í „ziyarat“, eða pílagríms göngu til Medina. Mig langaði mik- ið til að fara þangað, en þá varð ég að hafa hraðan á, því að ég varð að vera kominn til Bandaríkj- anna eftir vissan tíma. En nú vor- um vér allir pílagrímarnir gestir Feisals prins, undirkonungs í Hed- jas og máttum ekki yfirgefa borg- ina fyr en vér höfðum fengið leyfi til þess. En yfirvöldin voru treg á leyfi, vegna þess að Jidda var ekki tilbúin að taka á móti öllum píla- grímaskaranum. Ég gekk skrifstofu úr skrifstofu til að reyna að fá burtfararleyfi. Ég var með bréf í höndunum, þar sem embættismað- ur nokkur í Jidda hafði skrifað á nafn Feisals prins og að hann ætl- aði að veita mér viðtaL Að vísu var þessu viðtali lokið, en mér fannst ástæðulaust að geta þess. Og svo fann ég að lokum embættis- mann, sem helt að prinsinum lægi á að finna mig, svo að hann gaf mér skriflegt leyfi til þess að fara þegar frá Mekka. (★} í Medína Þegar ég kom til Medína rakst ég þar á ungan mann, sem hafði verið leikbróðir minn á fyrstu píla- grímsgöngu minni. En nú var hann orðinn stór maður með mikið skegg og hinn tígulegasti í Araba- búningi sínum. Þarna varð fagna- fundur og hann bauðst til að fylgja mér til grafar Múhameds, sem er í Masjid-al-Nabi (Musteri spá- mannsins). Musteri þetta er reist einmitt á þeim bletti þar sem úlf- aldi Múhameds lagðist fyrst, er hann flýði til Medína. Múhamed brýndi það fyrir læri- sveinum sínum að ekki mætti til- biðja sig, því að hann væri ekki heilagur, heldur væri hann aðeins dauðlegur sendiboði guðs. Og hann gaf þessi fyrirmæli um seinasta hvílustað sinn: „Látið aldrei til- beiðslu fara fram við gröf mína“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.