Lesbók Morgunblaðsins - 17.08.1952, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 17.08.1952, Page 1
Finnbogi Guðmundsson próf.: Sveinbjörn Egilsson skáld 17. dgúst 1852 í DAG eru liðin 100 ár frá andláti Sveinbjarnar Eg- ilssonar, og langar mig sökum þess að minnast hans að nokkru. Ævisaga Sveinbjarnar eftir Jón Árnason, er birt- ist framan við ljóðmæli hans 1856, er enn aðal- heimild vor um líf og starf Sveinbjarnar, því að um sérrannsóknir á hinum ein- stöku þáttum í starfi hans er naumast að ræða. Vér höfum t. a. m. skáldið, þýð- andann, orðabókarhöfund- inn og kennarann Svein- björn Egilsson, þar sem hvert þessara atriða væri ærið rannsóknarefni. Það lætur því að líkum, að hér verður ekki stiklað nema á stóru. En áður en snúið verður að helztu verkum Sveinbjarnar, skulu æviatriði hans rakin í fáum dráttum. 17. dgúst 1952 Sveinbjörn Egilsson var fæddur 24. febrúar 1791* í Innri-Njarðvíkum í' Gull- bringusýslu. Faðir hans var Egill bóndi Svein- bjarnarson, en móðir hans hét Guðrún Oddsdóttir, og voru þau bæði af bænda- ættum. Er ég því miður ófróður um foreldra Svein- bjarnar og framættir, en set hér til gamans það, sem Benedikt Gröndal, sonur Sveinbjarnar, segir um föðurætt sína í upphafi Dægradvalar: Föðurætt mín er að sunnan, en Jón Pétursson .háyfirdómari, sem er ættfróður mjög, hef- ur ekki getað rakið hana * Samkv. prestsþjónustubók Njarðvíkursóknar. Sveinbjörn er þó víða talinn fæddur 6. marz (1791), og svo telur hann sjálfur í æviágripi, er hann hefur samið og prentað var fyrst með ljóðmælum hans 1856.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.