Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1948, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 11.04.1948, Blaðsíða 2
190 1 LESBOK MORGUNELAÐSINS Borgarfirði, varalögmaður á Meðal- felli í Kjós, biskupinn í Skálholti, sóknarpresturinn á Lambastöðum og landlæknir á Nesi við Seltjörn. Frá áramótum 1788 var verslunin gefin frjáls öilum þegnum Danakon- ungs. Þá keypti Sunchenberg kóngs- verslunina hjer með öllum húsum, og \-arð þannig fyrsti sjálfstæði kaup- maðurinn í Reykjavík. En eftir það dvaldist hann hjer ekki nema á sumr- in, sat i Kaupmannahöfn á veturna því að hann var ráðamaður nefndar þeirrar, er annaðist sölu og afhend- 'ingu kóngsverslana hjer á landi. — Hafði hann þvi verslunarstjóra fyrir sig. Meðal þeirra var Runolfur Klem- ensson frá Kerlingardái. -— Hann druknaði seinná í Tjörninni, „mjög lítið drukkinn“, eins og komist er að orði um það. Seinasti verslunarstjór- inn hjet Christopher Faber. Sunchenberg andaðist í Kaup- mannahöfn 23. maí 1806. Þegar bú hans kom til skipta kom það í ljós. að Faber var kominn í stórskuldir við verslunina. Var hann þá þegar sviftur forstjórastöðunni og tekið af honum allt, sem hann átti. Lifði hann sein- ast sem gustukamaður i bænum. Svo virðist -sem verslunin hafi þá lagst niður og engin verslun verið að staðaídri í Sunchenbergs-húsunum, eins og þau voru kölluð, þangað til 1827, að danskur maður, Wellejus að nafni, keyptí húsin og rak þar verslun um nokkur ár. Það var hann, sem „Ijet híaða upp nyrsta hólinn á Melun- um og kallaði Wellejus-Minde, en ekki festist það nafn við staðinn. — Hann var hjer stutt, en hafði fyrir sig ýmsa verslunarstjóra, þar á með- al Peter Duus og Einar Jónasson frá Svartagili. Árið 1843 seldi hann M. C. Eech í Kaupmánnahöfn verslun og hús, en hann seldi aftur W. Fischer, er versl- aði þar nokkur ár. Um 1850 eignaðist Jón Robb húsin og ljet selja þau á opinberu uppboði 1853. Varð þá hæst- bjóðandi Robert Peter Tærgesen. \ íbúöarhús Tærgesens, bygt um 1840, nú Tjarnargata 5 (Ljósm. Ólafur Kr, Magnússon) Nýir menn TÆRGESEN var verslunarstjóri hjá Knudtzon og naut mikils álits í bæn- um, og þótti merkur maður. Hann var fyrsti slökkviliðsstjóri bæjarins (1837) og gengdi því starfi með mesta dugnaði í 10—12 ár. Árið 1839 var fyrsta byggingarnefnd Reykjavíkur sett á laggirnar, og átti hann sæti í henni vegna stöðu sinnar. Níu árum seinna (1848) fór fram kosning á bæjarstjórn í fyrsta’ skifti, og var hann þá kosinn úr flokki borg- aranna. Árið eftir var aftur kosið, en þá náði hann ekki kosningu, sennilega vegna þess að mönnum þótti verslun- arstjettin hafa full marga fulltrúa í bæjarstjórn. Um 1840 keypti hann svo nefnt Petersens-hús, endurbj'gði það og bjó þar til dauðadags, og ekkja hans eftir hans dag. Þetta hús stendur enn alveg óbreytt að ytra útliti og er nr. 5 við Tjarnargötu, þar sem Hanskagerðin er nú. Annað hús, sem einnig stendur enn, og allir Reykvíkingar þekkja, ljet hann byggja árið 1854. Hann reif þá aöalbúð Sunchenbergs, nyrst í göt- unni og bygði þar vandað tvílyft hús. Þar er nú Ingólfs Apótek. Má því segja að Reykjavík búi enn að fram- takssemi og dugnaði Tærgesens. Hann kom og við ýms fleiri bæjar- mál. Meðal annars var hann einn af stofnendum „Bræðrafjelagsins". Það var hlutaf jelag, stofnað 1850 af kaup- mönnum, embættismönnum og borg- urum í því skyni að koma upp ný- tísku klúbbhúsi. Að öðru 'leyti var Tærgesen harður í horn að taka. Er þar helsta dæmið hvernig hann reyndi að leggja Gróf- ina undir sig. Illíðarhúsamenn og sjó- menn úr Vesturbænum nöfðu hcift þar uppsátur um ómunatíð, en hann bægði þeim og þröngvaði svo kosti þeirra árið 1854, að þeir fengu alls ekki sett báta sína upp á malarkambinn, bví að þar stóðu hinir stóru bátar Tærge- sens. En nedar var bátum ekki óhætt fyrir stórflóðum. Formenn kærðu þetta fyrir stiptamtmanni og jafnað- ist það svo í það sinn, að kaupmenn fyrir austan hann leyfðu uppsátur á stakkstæðum sínum, ef á þyrfti að halda, en Tærgesen var ósveigjanleg- ur. —

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.