Lesbók Morgunblaðsins - 08.02.1948, Page 12
72
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS'
NYR SKIPASKURÐUR VIÐ
HLIÐ SUEZ-SKURÐAR
SUEZSKURÐURINN cr íjölíamasta
skipaleið, sem gerð hefur verið af
mannahöndum, og enn eru eftir 21 ár
af einkaleyfistima hlutafj<-!agsins, sem
á skurðinn. En flestar likur benda til
þess að skurðurinn muni ekki verða
jafn mikið notaður í framtíðinni, eins
og verið heíui', og valda þar um við-
sjár þæp, sem nú eru í heiminum, sjer-
staklega í Miðjarðarhafslöndunum og
þá einkum Egyptalandi og Palestínu.
Árið 1936 gerðu Egyptar og Bret-
ar með sjer samning og samkvæmt
honum eiga Bretar að hverfa á brott
með allan her sinn úr Egyptalandi,
nema hvað Egyptaland viðurkcnnir
að þeir eigi að halda uppi hervernd
Suezskurðarins. í.lega þeir hafa þar
alt að 10.000 hermanna undir vopnum
að staðaldri og þó meira lið og 200
hernaðarflugvjelar ef til ófriðar dreg-
ur.
Helstu varnarstöðvar Brcta hjá
skuióinum eru Abbassiah og E1 Kant-
arf,. Nú þafa Egyptar kraíist þess að
Bretar verði á brott með þetta varn-
arliö lika, þrátt fyrir ákvæði samn-
ingsins írá 1936.
Bretar hafa mikilla hagsmuna að
gæta þarna, því að þeir nota skurðinn
þjóða mest. — Rúmlega helmingur
þeirra skipa, sem um skurðinn fara,
cr eign Breta. En auk þess hefur skurð
urinn geisilega mikla þýðingu íyrir
Breta í ófriði.
E£ svo færi nú, að Bretar slcptu
liervernd skurðarins, liver á þá að
gæta hans, og hvaða tryggingu hefur
brcska heimsveldið fyrir þvi, að það
geti notað hann eftir scm áður?
Fyrir seinasta stríð var það álit
manna að Suezskurðurinn væri lífæð
breska heimsveldisins. Og þessa skoð-
un höfðu bjóðverjar. En þetta reynd-
ist þó ekki rjett, því að Bretar ljetu
hcrflutningaskip sin sigla suður fyrir
Afriku meðan á stríðinu stóð. Sú sigl-
ingaleið cr 10.500 sjómílur (til Ind-
lands) en sje Suezskurðurir.n farinn cr
siglingaleiðin ckki noma 6000 milur.
Má sjá á því, að þessar siglingar urðu
bæði tafsamari og dýrari.
Stjórnmálamenn Egypta vilja ólmir
að Egyptaland fái öll umráð yfir
Suezskurðinum. Þeir vita sem er, að
þau yfirráð gæti trygt f járhagslegt ör-
yggi landsins. Siglingagjöld fyrir þau
skip, er um skurðinn fara, hafa altaf
verið há, og þeirra hefur verið krafist
í gulli. Þó má segja að fransk-breska
framkvæmdastjórnin hafi stilt þeim
nokkuð í hóf. En nái Egyptar tökum
á skurðinum. þá eru engin takmörk
fyrir því hvað þeir kunna að heimta
há gjöld. Að minsta kosti væri það
mjög freirtandi fyTir þá, að hafa gjöld
in scm hæst. Núverandi rikistekjur
Egyptalands eru ekki nema fjórði hlut
inn af árshagnaði af gkurðinum.
Eins og stendur hefur brcska stjórn
in umráð yfir 44% af hlutabrjefum í
skurðinum og tekjuðnar af þeim eru
40 miljónir sterlingspunda á ári. —
Egyptaland á um 15% af hlutabrjef-
unum og hefur auðvitað góðar tekjur
aí þeim. En hvað mundi þá, ef Egypta
land fengi allar tekjurnar af skurðin-
um og hefði auk þess í sinni hendi að
I
hækka siglingagjöldin og auka þannig
tekjurnar?
Suezskurðurinn hcfur orðið drjúg
tekjulind öllum þeim, sem eignuðust
hlutabrjefin í upphafi. Brctar lögðu
4 miljónir sterlingspunda í fyrirtækið
í upphafi, cn nú' cr kauphallarvcrð
þessara hlutabrjeía 70 miljónir stpd.
Og þó hafa Frakkar grætt enn meira
á skurðinum. Og hlutabrjefin eru altaf
að hækka i verði. 10 sterlingspunda
hlutabrjef kostaði 70 steilingspund í
I
fyrra, en er nú selt á 125 sterlings-
pund. Eftirspurnin er mest meðal
Egypta, sem urðu ríkir í stríðinu.
Út af öllu þessu hefur það komið
til orða að rjettast mundi að Sam-
einuðu þjóðirnar tæki Suezskurðinn
að sjer og ræki hann með alþjóðahag
fyrir augum, en ekki í gróðaskymi. —
Líka gæti komið til mála að reka hann
scm gróðafyrirtæki, en skiíta þá ágóð-
anum milli þeirra þjóða, er verst væri
staddar efnahagsiega. — En vcrsti
þröckuldur í veginum fyrir þessu yrði
sá, að komast að því, hverjir eru raun-
verulegir eigendur skurðsins. Talsverð
ur ágreiningur er um það að sumir
hlutabrjefaeigendur hafi komist lög-
lega að hlutabrjefum sínum, og fjöldi
hlutabrjefa er nú í vörslu manna, sem
engíhn veit hverjir eru. Það er t. d.
kunnugt að Nasistar höfðu komist yf-
ir allmörg hlutabrjef, og eins er það
vitað, að kommúnistar í Rússlandi
hafa verið að krækja í hlutabrjef.
Nú hefur orðið mikil breyting á
notkun Suezskurðarins. ítalir eru úr
sögunni sem stcndur og Bandaríkin
hafa komið í þeirra stað, en Itússar
hafa komið i stað Japana. — Þetta,
ásamt öðru, gerir það æskilegt að
skurðurinn sje undir alþjóðaeftirliti.
Hjer hefur verið minst á tvær lausii
ir á þessu vandamáli. í fyrsta lagi að