Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.1940, Síða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.1940, Síða 1
26. tölublaS. Sunnudaginn 8. september 1940. XV. árgangur. ÍitfoliUiywliiilll> h.r. SIGURÐUR NORDAL: DR. PHIL. ------------- BENEDIKT 8. ÞÚRARINSSON Benedikt S. Þórarinsson í bókasafninu á Laugaveg 7. I. íðast liðinn höfuðdag fjell í . 1 valinn íslendingur, sem lengi mun í minnum hafður, dr. phil. Benedikt Sigurður Þórarinsson kaupmaður. Hann var fæddur 6. nóvember 1861. Æfi hans skiptist að heita mátti jafnt milli 19. og 20. aldar. Hann var kominn á 10. ár, þegar stöðulögin voru sett, og hann lifði síðasta æfiár sitt við- burði í sögu þjóðarinnar, sem marka ný tímamót, þótt enginn geti enn sjeð fyrir, hversu örlaga- ríkir þeir verða. Hann bar svip beggja aldanna og hinna stórfeldu breytinga, sem yfir. aldamótakyn- slóðirnar hafa gengið. Og hann sameinaði margt af því besta úr gamla og nýja tímanum: annars vegar traustleik og festu, gætni, hyggindi og forsjálni, — hins vegar stórhug og djarfar vonir um viðgang þjóðarinnar í fram- tíðinni. Það var býsna margt í fari nútímans og samferðamann- anna, sem var honum lítt að skapi, og mjer er nær að halda, að á hvaða öld sem hann hefði verið uppi, mundi hafa mátt segja um hann: Við alla var hann fjöl ei feldur, fann ei skyldu sína heldur að heiðra sama og aðrir alt. En trú hans á hlutverk og menn- ingu íslendinga var samt ófúin, eins og rækt hans við alt, sem hann unni á annað borð. Hann var tvímælalaust einn svipmesti og sjerstakasti íslendingur síðustu áratuga, einn af þeim, sem átti nógu djúpar rætur og sterkan stofn til þess að láta veður hinna mestu breytingatíma á ferli þjóð- arinnar gnýja um sig án þess að svigna nje feygjast. II. Það væri æskilegt, að einhverj- ir, þeirra manna, sem höfðu lengri og nánari kynni af Benedikt en

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.