Lesbók Morgunblaðsins - 19.06.1938, Síða 1
24. tölublað. Sunnudag-inn 19. júní 1938. XIII. árgangur.
fMfold»rprMtiBl(Jt h.f.
MERK ALTARISTAFLA
í HRAUNGERÐISKIRKJU
IHRAUNGERÐISKIRKJU í
Flóa var s.l. sunnudag hel<r-
uð ný o" forkunnarfögur altaris
tafla, smíðuð og máluð af íslensk-
um listamönnum. Er taflan eftir-
mynd af gamalli altaristöflu á
Þjóðminjasafninu, útskorin með
loftskornum myndum. Er þar
Kristur á krossinum, en til beggja
hliða hópar manna, eða alls 19
myndir. Töfluna skáru þeir mynd
skerarnir Guðmundur Kristjáns-
son og' Karl Guðmundsson, en Eyj
ólfur Eyfells málaði.
Frummyndin, sem er á Þjóð
minjasafninu, er talið að hafi kom-
ið hingað til lands um 1750 og er
álitið að Hannes biskup Finnsson
hafi kevpt hana í Kaupmanna-
liöfn. Var hún fyrst í kirkjunni í
Hjálmholti, en flutt þaðan í
Hraungerðiskirkju árið 1804 og
var þar í nær heila öld, eða fram
til ársins 1901, að hún var seld
Þjóðminjasafninu. Var þá um
sama leyti rifin kirkjan í Hraun-
gerði og bygð sú kirkja, sem rni
er þar. Hefir söfnuðurinn altaf
saknað gömlu útskornu altaris-
töflunnar.
Síra Sigurður Pálsson í Hraun-
gerði hefir mikinn áhuga fyrir því
að glæða trúarlíf hjá söfnuði sín-
um. Og honum var það þegar ljóst,
að eitt skilyrðið til þess er1 það,
að fegra guðshúsið og gera það
sem veglegast. Hefir hann haft
forgöngu að því að kirkjan var
máluð í vor, og hiu fagra altaris-
tafla fengin til hennar. Um sama
levti gáfu og fjórar konur úr söfn
uðinum skrautlegan gangdregil í
kirkjuna, og nær hann frá dyrum
inn að altari. Er óhætt að fullyrða
að Hraungerðiskirkja er nú með
fegurstu sveitarkirkjum sinnar
stærðar.
Það var auðsjeð hrifning á
mörgum úr söfnuðinum er þeir
litu hina nýju altaristöflu komna
yfir altarið. Margir fór út í kirkju
á undan messu, og horfðu lengi á
hana með andagt. Kendi þar bæði
stolts yfir því, að hafa endurlieimt
hinn iagra grip, og- barnslegrar
lotningar. Guðsþjónustan var og
hin hátíðlegasta. Var þar skírt eitt
barn, 12 börn fermd (9 stúlkur
og 3 drengir) og margt fólk t.il
altaris á eftir.
★
Þessi nýja altaristafla er ofur
lítið stærri heldur en sú eldri var.
Myndirnar eru allar skornar úr
mahogny. Fyrir töflunni eru
vængjahurðir, og eru á þær mál-
aðar myndir guðspjallamannanna,
bæði að utan og innan. Sómir
taflan sjer mjög vel í kirkjunni,
bæði um svip og stærð. Á. Ó.