Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Qupperneq 20
AUK / SÍA k739-120 34 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997 DV T Lónsöræfi Lónsöræfi eru stórkostlegt gönguland austan Vatnajökuls og upp frá Lóni. Landið er afar litríkt, enda er það eitt fegursta líparítsvæði á íslandi. Fallegur kjarrgróður er víða og mikið um fallega náttúrusteina. Oft má sjá hreindýr á beit á Lónsöræfum. Hafðu þessi orð ofarlega í huga þegar þú heldur til fjalla í sumar. Á fótunum ættirðu svo að hafa ítalska Scarpa skó sem geta borið þig hér um hvert á land sem er. Scarpa skórnir eru fram — leiddir úr bestu efnum sem fáanleg eru. Skórnir eru mótaðir, fóðraðir og síðan saumaðir saman á botninum. Því næst er sólinn límdur á þá þannig að samskeytin lokast en þetta tryggir endingu og vatnsheldni skónna. Scarpa skórnir fást í miklu úrvali - spurðu okkur til vegar og við aðstoðum þig við valið. FRAMMK Advance leðurskór með Gore-Tex vatnsvöm Lite Trek GTX léttir skór úr næloni og rúskinni með Gore-Tex vatnsvöm jura - mjúkir skór úr burstuðu leðri. NýrVibram veltisóli Snorrabraut 60 • 105 Reykjavík • Síml 561 2045 Netfang skatabud@itn.is Ferðagleði úthald, skipulag þrautseigja Skaftafellsýsla er fögur mjög. Skaftafell: Vinsæll þjóðgarður Þjóðgarðurinn í Skaftafelli er einn vinsælasti ferðamannastaður landsins enda aðstaða fyrir ferða- menn góð og frábært útsýni upp á Vatnajökul og sérstaklega Ör- æfajökul. Skaftafell er gamall þing- staður og Skaftafellssýslur eru kenndar við staðinn. Það var að frumkvæði dr. Sigurð- ar Þórarinssonar jarðfræðings sem Skaftafell var gert að þjóðgarði árið 1967. Lómagnúpur Lómagnúpur i Vestur-Skaftafells- sýslu, skammt ffá Skaftafelli, er eitt sérstakasta og fallegasta fjall lands- ins. Hann er 688 metrar á hæð, eitt af hæstu strandbjörgum á íslandi. Líklegt er að Lómagnúpur hafi áður fyrr náð fram í sjó. Útsýniö frá Skaftafelli er glæsilegt. Landsmót hvítasunnumanna: Söngur og samkomur Hvítasunnumenn halda ár- legt landsmót sitt í Kirkju- j lækjarkoti við Fljótshlíð um j verslunarmannahelgina. Mótið S verður sett fimmtudaginn 31. júlí og er dagskráin fjölbreytt. Kvöldvökur, varðeldur og lífleg- | ur söngur eru meðal þess sem ? einkenna hátiðina auk sérstaks :S móts fyrir börnin þar sem verð- ur dagskrá allan daginn. Gæsla verður fyrir yngstu bömin á meðan á samkomum | stendur. Allir eru boðnir vel- komnir til að njóta verslunar- Imannahelgarinnar i góðum fé- lagsskap og fallegu umhverfl. Hótel Bifröst: Jasstríó og veisluhlaðborð Margt verður um að vera á Hótel Bifröst um verslunarmannahelgina. Til dæmis mun jasstríó Þóris Bald- urssonar spila og harmóníkuleikari kemur í heimsókn. Bifröst er góður staður tii að slaka á. Þeir sem vilja vera á far- aldsfæti geta fengið þar góð ráð um gönguferðir, hestaferðir og veiði- ferðir í nágrenninu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.