Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 19
í * i Wr 33 r MIÐVIKUDAGUR 23. JULI 1997 I I ! I I I ! I I Islensk náttúra frábær fyrir siglingar: r Island tískustaður - segir Björn Gislason hja Batafolki „Bátafólk snýst um siglingar á straumvatni. Viö erum á Bakkaflöt í Skagafirði og á Drumboddsstöðum í Biskupstungum," segir Bjöm Gíslason hjá Bátafólki. „Við bjóðum upp á ferðir á Hvítá og Vestari-Jökulsá sem hæfa öllum. Siðan erum við með dagsferðir á Hvítá og Austari-Jökulsá í tveggja manna gúmmíbátum sem krefjast þess að menn séu vel á sig komnir. Það em bæði íslenskir og erlend- ir ferðamenn sem nýta sér þessa þjónustu. Fyrirtæki og starfshópar nýta sér mikið ferðimar sem em við allra hæf!.“ En ætli það þurfi einhverja sér- kunnáttu til aö taka þátt í ferðum Bátafólks? „Nei,“ segir Bjöm. „Eftir ferðim- ar era menn hins vegar mcirgs fróð- ari. Við leggjum áherslu á að fræða og kenna.“ Með bátaferðir i tiu ar „Við eram búin að vera i tíu ár með ferðir á Hvítá og fimm ár í Skagafirði. Hvítáin liggur vel við, aðeins klukkutíma akstur frá Reykjavík. Mörg ferðaþjónustufyrirtæki era nálægt Hvítá. Á Drumboddsstöðum er hægt að fara í hestaferðir. Það er gott þar sem til dæmis krakkar, sem ekki fara með í siglingu, geta farið í hestaferð á meðan" Hann segir einnig gott fyrir ferða- menn að dveljast í Skagafirðinum: „Á Bakkaflöt í Skagafirði er frá- bær gistiaðstaða. Góð tjaldstæði, sundlaug og bæði eins og tveggja manna herbergi." Mikið af flúðum Ferðirnar í tveggja manna gúmbátunum krefjast þess að ferða- menn séu vel á sig komnir líkam- lega: „Þá era tveir ferðamenn saman. Við erum með sjö báta þannig að við getum tekið á móti fjórtán manns í einu,“ segir Bjöm. „Síðan eru fararstjóramir sjálfir á kajök- um. Þeir segja fólki til og stýra ferð- inni. Ullin gulls ígildi Ferðin hefst á fyrirlestri. Síðan er æfmgarferð og eftir hádegið er farið í þriggja tíma ferð á efri hluta Hvít- ár, frá Gulifossi og niður að Brúar- hlöðum. Þar er mikið af flúðum.“ „Alltaf þegar fólk ætlar að leika sér í vatni er ullin gulls igildi. Gallabuxur era eitur en öll uilarföt og „fleece“fatnaður eru ávallt vel- komin," segir Bjöm. Kajaknámskeið „Síðan erum við með kajaknám- skeið. Við hvetjum fólk til að stunda þá íþrótt - þetta er ein af ódýrari greinum sem hægt er að stunda á ís- landi. Það era fáir staðir í heimin- um sem hafa upp á eins mikið úrval siglingarstaða að bjóða. ísland er að verða tískustað- ur í þessu eins og öðru. Bretar koma hingað og gera hvert myndbandiö af öðra. Það var verið að setja heimsmet i frjálsu falli ofan af fossi hér á landi í fyrra. Það var farið niður Andeyjar- foss. Kajaksigl- ingar era ólympísk keppnisgrein og það er óskiljan- legt að við skul- um ekki vera að keppa i þessari skemmtilegu grein.“ Tólf ára aldurstak- mark Frábær aöstaöa fyrir siglingamenn er f ám landsins. Þaö er fátt hressilegra en aö reyna sig gegn óblföum náttúruöflunum. Hér sjást hraustir feröalangar skemmta sér konungiega á Hvftá f sigl- ingu meö Bátafólki. Það er tólf ára aldurstak- mark i ferðim- ar á Vestari- Jökulsá og Hvítá. í Austari-Jökulsá og á tveggja manna bátana er 18 ára ald- urstakmark. Verðið hjá Bátafólki er krónur 3500 í Hvítá, 2000 í Vestari- Jökulá, 7000 í Austari-Jökulsá og 6000 í tveggja manna bátana. Það þarf að hringja á undan í all- ar ferðir en fyrirvari þarf ekki að vera langur. Síminn hjá Bátafólki er 567 5700 eða 453 8245. I I ilma ásamir á Melrakka- sléttu af blóm- um. Þar vex til dæmis blá- gresi, holta- sóley og mar- íustakkur. Fugla- paradís Melrakka- slétta er ósvikin fugla- paradís og bændur þar um slóðir nýta æðar- varp. Sléttan er mikilvægur viðkomustað- ur farfugla sem era á leið til enn norð- lægari varp- stöðva, til dæmis tildru og rauðbryst- ings. Yfir 20 þúsund nor- rænir vaðfugl- ar nota Mel- rakkasléttuna þannig sem Fjölbreytt liö feröamanna leggur leiö sína um Melrakka- sléttu. Hér má sjá vígalega blfhjólakappa á Raufarhöfn al- búna til að skoða dýralíf sléttunnar. DV-mynd GK Nyrsta kauptún á íslandi: Mörgum sem bruna yfir Mel- rakkasléttu til Raufarhafnar fmnst landslagið þar hrjóstrugt og minna óhugnanlega mikið á nýfengnar myndir frá reikistjörnunni Mars. Ef ferðamenn hins vegar stoppa bílinn og gefa sér tíma til að ganga inn á sléttuna eða niður í fjöru kem- ur í ljós að á fáum stöðum á íslandi er að finna ósnortnara dýra- og jurtalíf. Þannig vaxa um 240 tegund- ir plantna á Melrakkasléttu. Algeng- astar era lyngplöntur eins og beiti- lyng, sauðamergur, krækiber og bláber. Þá viðkomustað. Ein af perlum sléttunnar er þórs- haninn sem er í útrýmingarhættu hér á landi. Mikið er af sólskríkju og steindepli og einnig þúfutittling- um og skógarþröstum. Raufarhöfn er nyrsta kauptún á íslandi þannig að þegar sumarbirt- an loksins kemur lýsir hún vel og lengi. Ýmislegt er hægt að gera í ná- grenni Raufarhafnar. Fyrir norðan era silungsveiðivötn og í Deildará fyrir sunnan kauptúnið er laxveiði. Beitilyng og þórshanar Nýlr sumarhjólbarðar á Srábæru verðl! 15SR13 16SR13 155/70R13 175/70R13 185/7OR13 175/70R14 175/6SR14 185/65R14 lOS/bSRlS Cooper TIRES Tirc$tonc Felgur Tílboðsverð Jeppadekk Z1S/7SR15 23S/7SR1S 3 oxg-soRis 31x10-5R15 3.288 3.680 3.224 3.700 4.000 3.076 4.568 4.892 5.384 NÝ 8.240 8.450 8.990 9.990 Irr. 14*400 kr. 11.160 BORGARDEKK BORGARDEKK • BORGARTUNI 36 • SIMI 568 8220 www.is-land.is/vdo EMAIL vdo@íreknet.is r M »

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.