Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 14
Leitið upplýsinga og tilboða. Snæfellsássmótið í tíunda sinn: Sjálfsrækt og andleg vinna Snæfellsássmótið, Mannrækt undir Jökli, verður haldið í 10. sinn dagana 1. til 4. ágúst. Mótið er fyrir alla sem viija fræðast um sjálfsrækt og andlega vinnu á gleðiríkan og já- kvæðan hátt, að sögn mótshaldara. Þar verður hægt að kynnast fólki með sams konar áhugamál. Margir munu leggja hönd á plóg til að dagskráin verði sem fjöl- breyttust og áhugaverðust fyrir mótsgesti. Mótið er sett klukkan 22 fóstudaginn 1. ágúst. Boðið verður upp á fjölda fyrir- lestra, auk þess sem hægt verður að komast í einkatíma í spila- og spá- lestri, fá áruteikningu og heilun. Þá verða reikimeistarar meö heilunar- vígslu, losunarathöfn verður í hringnum og friðarathöfn við frið- arstólpann. Einnig mun fara fram kynning á alþjóðlegmn friðarsam- tökum, námskeið verða fyrir þá sem vilja hætta að reykja og einnig í málun ánunynda og í seiðmennsku. Boðið verður upp á skyggnilýsing- ar, dáleiðslu í leit að fyrra lífi og helgistund við Maríulindina. J&S Bílaleigan Álfhólsvegi 49,200 Kópavogur Sími 554 2626, fax 554 3842 - segir Markús Einarsson framkvæmdastjóri TROÐFULL BUÐ af ferðatöskum og handtöskum r a w « • w Skólavöröustíg, 101 Reykjavík Sími5515814, Fax 552 9664 Að gista á farfugla- heimili er með algeng- ari gistimátum í mörg- um löndum heims. Vinsældir farfugla- heimila fara einnig vaxandi á íslandi enda er hér búið að byggja upp net gististaða sem bjóða upp á ódýra en þægilega gistingu. „Við erum með þrjá- tíu heimili hringinn í kringum landið,“ segir Markús Einarsson, framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra farfúgla. „Þau eru mis- munandi að stærð. Allt frá 8 rúmum upp í hundraö eins og er hér í Reykjavík. Netið er þannig upp byggt að fólk á að geta ferðast hringinn í kringum landið og dvalið ein- göngu á farfuglaheimil- um.“ Markús Einarsson, framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra farfugla. Góð aðsókn „Það hefur verið ágætis aðsókn og menn ættu að panta fyrir- fram til að vera örugg- ari með gistingu. Þetta er bæöi ódýr og vinsæll gistimáti," segir Mark- ús. „Fólk getur ráðið hvort það er í svefnpoka eða upp- búnum rúmum. Á öllum farfugla- heimilunum er gestaeldhús svo að fólk geti eldað sér sjálft mat. í sum- um þeirra er einnig seldur morgun- verður en þetta byggist samt aðal- lega á því að fólk geti komið með sinn eigin mat og eldað sér á hag- kvæman hátt. Útlendingamir eru enn í meiri- hluta meðal gesta. Þetta eru mikið hópar sem koma hingað og eru að ferðast um landið í rútum. Það hef- ur aftur á móti verið umtalsverð aukning íslendinga hjá okkur á undanfornum árum. Fleiri og fleiri eru að uppgötva þennan gistimögu- leika.“ Alþjóðlegt samstarf Farfuglaheimilin á íslandi eru að- ilar að alþjóðlegu sambandi far- fuglciheimila: „Hreyfingin er mun meira þekkt í mörgum öðrum löndum heldur en héma. Það er kannski þess vegna sem fleiri útlendingar nýta sér þetta en íslendingar. Þeir þekkja frekar merkið og vita fyrir hvað það stend- ur. Það er lagt upp úr því að skapa gott andrúmsloft á heimilunum. Við erum með setustofur og annaö slíkt svo að fólk getur blandað geði hvað við annað," segir Markús. Rúmið á þúsundkalf Fyrir þá sem eru með farfugla- skírteini kostar rúm 1000 krónur fyrir eina nótt á farfuglaheimilun- um. Ferðamenn geta annað hvort notað svefhpoka eða komið með sín eigin sængurföt. Fyrir aukagreiðslu er einnig hægt að fá uppbúin rúm. Þeir sem ekki hafa skírteini borga 1250 krónur. Böm innan 5 ára fá frítt inn og 5 til 13 ára greiða hálft gjald. Það kostar svo 1200 krónur að fá farfúglaskírteini sem gildir um all- an heim í eitt ár. Síminn hjá Banda- lagi íslenskra farfugla er 553 8110. i ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.