Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 6
ferðir 20 MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997 HOTEL KEA 19 4 4 * % I * •"-'iy EITT 1 9.4 4 GLÆSILEGASTA 19 4 4 HOTEL 19 4 I LANDSINS 19 4 4 AVERÐI 19 4 4 FYRIR 1 9 4 4 ÍSLENDINGA 1:9-4 4 NYR VEITINGASTAÐUR &&***$ . iWA' \fv Z> HÓTEL KEA HAFNARSTRÆTI 87-89 600 - AKUREYRI - SlMI 460 2000 Feröafélagiö hefur látiö reisa útsýnisskífu á Esjunni til aö galvaskir göngugarpar geti tengt örnefni viö fagurt útsýniö. Paö eru enda fáir staðir jafn vel til þess fallnir aö sitja og horfa á fjölbreytt landslagið. Ferðafálag íslands býður fjölbreytt ferðalög: Ódýr, fróðleg og skemmtileg - segir Þórunn Þórðardóttir Feröafélag íslands stendur fyrir fjölda gönguferöa um landiö. Þessi mynd er úr gönguferö félagsins frá Loömundarfiröi til Seyöisfjaröar. Ferðafélag íslands var stofnað 27. nóvember árið 1927 og á því 70 ára afmæli í ár. Það var Sveinn Björns- son, síðar forseti íslands, sem hvatti Björn Ólafsson stórkaupmann til að stofna félagið. Það hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt síðan. „Félagarnir eru um átta þúsund og dreifast um allt land,“ segir Þór- unn Þórðardóttir hjá Ferðafélaginu. „Það eru tíu deildir í félaginu sem starfa sjálfstætt og sinna sínum svæðum. Þetta er eitt fjölmennasta félag landsins." 32 sæluhús Ferðafélagið á 32 skála víðs veg- ar um landið sem allur almenning- ur nýtir, óháð því hvort fólk er í fé- laginu eða ekki. „Hlutverk Ferðafélagsins er ferðalög og rekstur sæluhúsa í óbyggðum og hefur veriö það frá upphafi ásamt útgáfu árbókar sem komið hefur út óslitið frá árinu 1928,“ segir Þórunn. „Fyrsta sæluhúsið var reist árið 1930 á Kili þvi að frumkvöðlar fé- lagsins töldu að það væri framtíðar- land fyrir ferðafólk. Síðan hafa fleiri svæði bæst við. Sæluhúsin eru það sem við leggjum mikla áherslu á að reka og við höfum skálaverði í þeim flestum. Okkar aðalmarkmið er að sjá til þess að það sé góð um- gengni og ekki áníðsla á landi í kringum sæluhúsin." Fyrsta ferð á vegum Ferðafélags- ins var farin árið 1929. Síðan hefur félagið staðið fyrir óteljandi ferðum. Gönguferðir vinsælar „Gönguferðir með bakboka eru vinsælastar. Það má nefna svæði eins og Hornstrandir. Það fara yfir hundrað manns þangað árlega. Siðustu árin hefur Laugavegurinn þar sem gengið er með bakpoka á milli skála verið vinsælasta svæðið. í fyrra voru það yfir fimm hundr- uð manns sem við fórum með yfir Laugaveginn og það verður ekki minna núna. Á Kjöl eru færri ferðir en við erum að ná vinsæld- um þeirra upp. Það er mjög fallegt svæði. Þar er einnig gengið á milli skála. Síðan erum við auðvitað um allt land. Gönguferðir hafa unnið mikið á og fólk á orðið góðan ferða- búnað. Undirstaða þess að njóta ferðar er að vera með réttan búnað. Við erum líka með dagsferðir. Það er mjög vinsælt. Þá er keyrt eitthvað stutt og gengið í þrjá til fimm tíma.“ Gönguferðir Ferðafélagsins eru nokkuð frjálslegar. Fólk kemur til dæmis með sinn eigin mat og ræður hvenær það snæðir. Þá er göngu- hraða oft hagað eftir veðri og að- stæðum í hverri ferð. „Þessar ferðir okkar eru vinsælar vegna þess sem fólk getur lagt af mörkum sjálft. Við höfum einnig góða staðkunnuga fararstjóra og sjá- um um gistingu og flutning." Innifalið í félagsgjaldi Ferðafé- lagsins er árbókin og afsláttur í ferðir. „Það eru margir sem hafa áhuga á félagsaðild til að fá þessa árbók. Hún þykir mjög góð staðfræði og ein besta íslandslýsingin sem til er,“ segir Þórunn. Ferðir um verslunar- mannahelgina Ferðafélagið er með margar ferð- ir á dagskrá um verslunarmanna- helgina. Þann 1. ágúst verður lagt af stað í þrjár helgarferðir. Frá Nýjadal til Tungnafellsjökuls, um Þórsmörk og Fimmvörðuháls og í Landmanna- laugar. Þá verður farið í sex daga bak- pokaferð um Fljótshverfi og í Núps- staðarskóga. Þann 2. ágúst verður svo farið í tveggja daga ferð um Núpsstaðar- skóga. „Vonandi hefur fólk þá ímynd af Ferðafélaginu að við séum að leggja áherslu á ódýr, fróðleg og skemmti- leg ferðalög og svo rekstur sælu- húsa sem við reynum að gera af myndarskap," segir Þórunn. Kántríhátíð á Skagaströnd: Dansleikir alla helgina Kántríhátíðin er ómissandi þátt- ur í mannlífi Skagastrandar um verslunarmannahelgina. í ár verður boðið upp á dans- kennslu og línudanskeppni undir stjóm Hennýar Hermanns. „Viö ætlum að reyna að stefna hingað eins miklu af linudans- og kántríáhugafólki og hægt er,“ segir Guðjón Sigvaldason, skipuleggjari Kántrihátíðar. „Þetta er fjölskyldu- hátíð. Við verðum með ýmislegt fyr- ir bömin. Það verður til dæmis rat- leikur og hestaleiga. Siðan verður útimarkaöur þar sem verða til sölu hlutir tengdir kántrítónlist og ýmislegt annað.“ Dansleikir „Við erum með dansleiki alla verslunarmannahelgina,“ segir Guðjón. „Síðan er Kántríbær opinn og við erum með hótel hér á Skaga- strönd. Fólk getur komið við hérna og átt notalegan dag með okkur, hvort sem það kemur alla helgina eða bara einn dag.“ Tjaldstæði em ókeypis á Kántrí- hátíð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.