Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997 19 Þaö er alltaf fjör á síldarævintýrinu á Siglufiröi. Hér má sjá hressa hátíðargesti í fjörugum dansi. Síldarævintýrið á Sigiufirði: Dansleikir og síldarsöltun hótet SELFOSS Þad er sama huort þú kemur á Rolls Royce e fótgangandi, iríb okkar besta í mat, d og þjónustu. Verið Oetkomi BETR1STOF Hótet Setfo sími 482 2 REGNBOGA HÓTEL Síldarævintýriö veröur haldið í sjöunda sinn á Siglufirði um versl- unarmannahelgina. Þá verður sUd- arstemningin rifjuð upp, bæði með söltunarsýningum og dansi á hryggju og torgum. Það eru hljóm- sveitirnar Sixties, Gautur, Tvöfóld áhrif, Sóldögg og Miðaldarmenn sem halda uppi fjörinu ásamt harm- óníkusveit og kvennakór. Hátíðin verður sett fóstudaginn 1. ágúst klukkan 16. Um kvöldið verð- ur varðeldur og bryggjuball á Dag- slóð. Laugardaginn 2. ágúst er svo boð- ið upp á dagskrá á palli frá klukkan 14 og söltun klukkan 15. Um kvöld- ið verður landlegudansleikur sem stendur langt fram á nótt. Á sunnudeginmn verður messa í Hvanneyrarskála klukkan 13. Ræst verður í söltun klukkan 15. Dorg- veiðikeppni byrjar klukkan 16 og klukkan 17 hefst dagskrá á palli. Klukkan 18 verður grillveisla og götulíf. Auk þessa verður ýmislegt fleira við að vera. Hægt er að fara í sigl- Neistaflug í Neskaupstað: Poppmessa og Páll Óskar Fjölskylduhátíðin Neistaflug í Neskaupstað verður haldin í fimmta skipti nú um verslunar- mannahelgina. Hátíðin nýtur síauk- inna vinsælda og telja mótshaldarar að í fyrra hafi um 3500 manns sótt Neistaflug fyrir utan heimamenn. Það er Ferðamálafélag Neskaup- staöar sem heldur hátíðina í sam- starfi við bæjarfélagið og heima- menn. Frítt er inn á hátíðarsvæðið og tjaldstæðið, en þaðan er fallegt út- sýni yfir Norðfjarðarflóann. Þá er tjcddstæðið nálægt Urðunum við Nípuna, einu fallegasta útivistar- svæði á landinu. Hátíðarhöld í miðbænum Hátíðin fer að mestu fram í mið- bæ Neskaupstaðar. Hún hefst föstu- daginn 1. ágúst með norðfirskum þemadegi. Eftir setningu hátiðar- innar munu heimamenn sjá um skemmtiatriði. Deginum lýkur svo með mikilli skemmtun í Hótel Egils- búð en hún mun standa fram á rauðanótt. Á laugardag og sunnudag stíga landsfrægir skemmtikraftar á svið. Verða tónleikar bæði úti og inni. Þar koma fram meðal annarra Páll Óskar, Ingveldur Ýr, Milljónamær- ingamir og Bjami Ara, töframaður- inn Pétur pókus, Todmobile, Baldur Trausti Hreinsson og Yukon. Bömin fá ýmislegt við sitt hæfi. Furðuleikhúsið verður með tvær sýningar á dag og ýmis leiktæki verða á staðnum. Einnig er á dag- skránni unglingadansleikur, popp- messa, varðeidur og flugeldasýning. Strandblak og skemmtiskokk Ýmsir íþróttaviðhurðir em á dagskrá Neistaflugs. Þar má nefna strandblakmót, götukörfuboltamót, víðavangshlaup og skemmtiskokk. Þess má einnig geta að í Norðfirði er 18 holu golfvöllur og verður þar haldið Neistaflugsmót. Gestir geta líka gleymt sér við myndlistarsýningar, farið í sund, skoðað Náttúmstofu Austurlands, farið á hestbak eða þá i kajakferð. Það er því af nógu að taka fýrir alla fjölskylduna enda segja mótshaldar- ar að markmið þeirra sé að ná tO fjölskyldufólks sem vilji njóta góðra stunda um verslunarmannahelgina. ingar og hestaferðir og haldin verð- ur söngvakeppni barna. l’ér finnst þú kominn til útlanda. Fjölskrúðugt menningar- og listalíf, kaffihús, veitinga- og skemmtistaðir, einstök veöur- blíða og fjölbreytt dægradvöl, hvort sem fólk vill fara á hest- bak, ganga á fjöll, stunda söguskoðun, hvalaskoðun eða fuglaskoðun eða bregða sér á þotuskíði á Pollinum við Akurevri. eimtök.ypplíf i .is lourUt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.