Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1997, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1997 2 ferðir HELfMlh 'Uhpmófot. - og þú tjaldar ekki til einnar nætur. MOUNTAIN HOUSE’ cmmmmsBsm - léttur í burði en vegur þungt þegar hungrið segirtil sín. ggl»og - heldur likamanum þurrum og hlýjum svo þér líði vel alla ferðina. mwrn/ toiiiiri1”'" - tryggja þér góðan nætursvefn. GLÆSIBÆ • S: 581 2922 Hrafnseyri við Arnarfjörð: Burstabær Jóns forseta Flestir, sem eiga leið um Amar- íjörðinn, skoða safn Jóns Sigurðs- sonar forseta. Nú í sumar var einmitt burstabær Jóns opnaður formlega fyrir almenning. Bærinn er að mörgu leyti eins og hann var þegar Jón ólst þar upp nema hvað nú eru þar timburklædd gólf í stað moldargólfa. Ýmsar aðrar lagfæringar hafa einnig verið gerð- ar. Munir frá 19. öld og eldri eru til sýnis í bænum og er það Byggða- safh Vestfjarða sem á gripina. Þar á meðal er brúðhjónastóllinn og skriftarstóllinn úr Hraunskirkju í Dýrafirði. Þá er í bænum sýning á gull- og silfurmunum eftir vestfirska gull- smiði. Einnig er sýning á ljósmynd- um af heimaslóðum Jóns Sigurðs- sonar. Burstabær Jóns Sigur&ssonar á Hrafnseyri er opinn daglega fyrir almenn ing. Þjóðvegur númer 745 liggur frá Sauð- árkróki umhverfís Skagaheiði og til Skagastrandar. Á þessari leið, sem lætur lítið yfir sér á landakorti, er að finna ófáar nátt- úruperlur sem vert er að skoða. Þegar lagt er af stað frá Sauðár- króki er fyrst ekið bak við fjallið Tindastól sem nær mest 989 metra hæð. Þegar beygt er aftur út að sjó koma ferðalangar fljótlega að Sævar- landi, ysta bæ Lax- árdals. Þar endar Tindastóllinn í þrístrendum fleyg er nefnist Landsendi og skagar út á fjörðinn. Fyrir utan Sævarlandsvík blasa Drangey og Málmey ægifagrar við og er þetta án efa einn besti staðurinn í landi til að skoða þessar sérkennilegu eyjar. Næsta vík, sem komið er í á norð- urleið, nefnist Selvík. Þar sjást enn- þá fornar búðatóftir, enda var þar lengi skipalægi og verstöð. Kolbeinn ungi gerði flota sinn þaðan út í Flóabardaga árið 1244. Ketubjörg, þverhnípt og sérkenni- leg sjávarbjörg sem eru leifar af Drangey er ein af perlum íslenskrar náttúru. gamalli eldstöð, skaga út í sjóinn nálægt bænum Ketu. Þau eru 122 metra há og næstum því lóðrétt. Fyrir utan björgin rís mikill drang- ur úr sjó. Hann nefnist Kerling. Hraun á Skaga er svo nyrsti bær í Skagafjarðarsýslu. Þar rétt fyrir norðan er Skagatá. Þar er viti. og fé. Lítið eitt lengra liggur vegurinn yfir Fossá. Þar er um að gera að stöðva bílinn og ganga fram á þverhníppt björgin því áin fellur í fallegmn fossi út í sjó. Þó að fossinn sjáist best af sjó er hann einnig mjög tilkomu- mikill af bjarg- brúninni. Þegar komið er fram hjá Fossá fer leiðin til Skagastrand- ar að styttast. Allur krókurinn frá Sauðárkróki til Skagastrandar er um hundrað kílómetrar. Það er hins vegar um að gera að áætla sér ríflegan tíma því vegurinn er ekki lagður bundnu slitlagi. Gullkelda Undir Kyrpingsfjalli, sem er 89 metra hátt fell, er að finna foræðiö Gullkeldu. Þar mun bærinn Gull- brekka hafa sokkið i jörð með fólki Smáauglýsingadeild DV er opin: • virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl, 9-14 • sunnudaga kl. 16-22 Tekið er á móti smáauglýsingum til kl, 22 til birtingar nœsta dag Ath. Smáauglýsing í Heigarblað DV þarf þó að berast okkurfyrir kl, 17 á föstudag a\\t mil/l himins Smáauglýsingar rgx^i 550 5000 útiiílslns -hvar sem þú ert úg hvert sem þú ferð mmrmwm Longu heimsþekktur fyrir göngufólk. KOMPERDEU ktMimJnilll - meö stillanlegri lengd létta þér gönguna. THE8MA8EST

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.