Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1896, Qupperneq 72

Eimreiðin - 01.05.1896, Qupperneq 72
152 og hefur svo glöggt auga á öllu því, er norskt getur verið. Vjer erum sömu skoðunar sem dr. B. M. Olsen í því, að flest böndin berist þar að Islendingum, en þó ber þess að gæta, að fyllilega verður það að líkindum heldur eigi sann- að, hvorir ort hafi meiri hlutann af kvæðum þessum, Islendingar eða Norðmenn. Eitt undur hefur komið i ljós í máli þessu, síðan dr. F. J. í fyrstu gat um skoðun sína á uppruna Eddukvæðanna. Tveir íslenzkir menntamenn hafa látið það í ljósi í Reykjavíkurblöðunum, að hann væri að reyna að svipta ísland Eddu- kvæðunum, til þess að koma sjer í mjúkinn við Dani. Ef rógburðar-óþokki hefði látið þetta í ljósi, þá hefði enginn á það minnzt. En aldrei getur það orðið menntamönnum samboðið, að geta eigi hugsað sjer, að menn geti gert vís- indalegar rannsóknir án undirhyggju og smjaðurs. Auk þessa er þetta fjarri sanni. Ef Danir ættu um tvennt að velja, mundu þeir flestir efalaust kjósa heldur, að Eddukvæðin væru eign Islands en Noregs. Væri að því leyti rjett- ara að gera oss og dr. Birni Ólsen slíkar getsakir, en þó nær það eigi heldur neinni átt. Það verða þeir að gera, sem sannir vísindamenn vilja vera, að láta í ljósi þær kenningar, sem þeir finna við rannsóknir sínar, hvort sem þær eru þeim hugljúfar eða eigi. Það hefur dr. Finnur gert. Annað bindið af bókmenntasögu F. J. á að vera um bókmenntir Islend- inga og Norðmanna á 12. og 13. öld. Það er gullöld bókmennta vorra, einkum að þvi leyti, er sagnaritun vora snertir. Fyrsta heptið er nú nýlega komið út, og er það um skáldskapinn á þessum öldum. Skýrir F. J. þar í upphafi sinnar bók- ar frá hag manna í Noregi og á Islandi, að því leyti sem það varðar bókmennt- irnar, síðan frá kveðskapnum almennt, þá norskum kveðskap og þá íslenzkum. Tekur íslenzki skáldskapurinn þar mest rúm, því mörg skáld voru uppi á íslandi á þessum tíma, eins og áður á 10. og 11. öldinni, en ekki þykir höf. nú skáld- skapurinn jafngóður og áður, og er það rjett. Yms skáld urðu að vísu fróðari um allar rímreglur og færari til þess að fylgja þeim en nokkru sinni áður; voru sum þeirra að því leyti hin mestu listaskáld, svo sem Snorri Sturluson. En hugsunin var sjaldan verulega frumleg eða ný; efnið var opt hið sama sem áður, um hemað og hreystiverk, og meðferð þess líka hin sama. þess vegna eru ýmsar drápur frá 12. og 13. öld að ýmsu leyti að eins eptirlíkingar af eldri drápum. Hin merkasta nýjung, sem kom i ljósáþessu tímabili í íslenzka skáldskapn- um, er kristilegi kveðskapurinn. Að vísu hófst hann fyr, en hjer ræðir um, og bryddi jafnvel á honum þegar er kristni var í lög tekin. Eilífr Guðrúnarson, er þá var á lífi, kvað síðastur skálda drápu um Þór, en hann varð og fyrstur manna til þess að flytja Hvíta-Krist drápu. En hjer um bil allur kristilegur kveðskap- ur frá 11. öldinni er nú farinn forgörðum fyrir löngu, enda hefur hann varla verið mikill. Er kristnin varð kunn, fengu skáldin þar nýtt yrkisefni, enda er sumt af kristilega skáldskapnum frá þessum tíma ágæt kvæði, svo sem Liknar- braut og Sólarljóö. Oðru vísi stóð hagur bókmenntanna í Noregi á 12. og 13. öldinni. Þjóð- legar bókmenntir urðu þar því nær engar. Þjóðrekur munkur (síðla á 12. öld) ritaði sögu-ágrip sitt á latínu, og Hákon gamli ljet á miðri 13. öldinni þýða latnesk og rómönsk rit á norrænu, en engar innlendar bókmenntir spruttu upp af því. Skáldin voru þar bæði fá og smá, en á Orkneyjum voru 2 skáld merk, Rögnvaldr jarl kali (J- 1158) og Bjarni biskup Kolbeinsson (1222), vinur þeirra Hrafns Sveinbjarnarsonar og Oddaverja. Hverjum þeim, sem vill fræðast ýtarlega um bókmenntir vorar, mun þykja gaman að lesa bókmenntasögu F. J. Hún er ljóst og skipulega samin, málið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.