Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1896, Qupperneq 71

Eimreiðin - 01.05.1896, Qupperneq 71
Reykjavik í viðbót við prestaskólann og læknaskólann og þessir þrir skólar sameinaðir i eina heild, þá væri með þvi stofnsettur háskóli á íslandi, en hinir, sem segja, að þetta væri enginn háskóli, heldur ein- göngu embattismannaskóli, komast ekki upp fyrir moðreyk. Þar sem skoðanir manna um þetta eru svo skiptar,. þykir mönnum kannske gam- an að sjá, hvernig Jón sál. Sigurðsson leit á það mál. Petta má sjá af »Nýjum fjelagsritum« XXVII, 54, þar sem hann er að skýra frá því, að dómsmálaráðgjafi Nutzhorn hafi i ræðu á þingi Dana sagt, að Islend- ingar vildu komaupphjá sjer »sjerstökum háskólai.. Við þessi orð ráð- gjafans hnýtir Jón Sigurðsson þessari athugasemd: »Ráðgjafinn snýr þetta út úr því, að alþing hefur talið nauðsyn á lagaskóla og lækna- skóla; en þetta er enginn háskóli, heldur undirbúningsskóli handa embattis- mannaefnum, eins og prestaskólinn núerhanda prestaefnum«. Utúrsnún- ing leyfir hann sjer að kalla það, að vera að tildra háskólanafni upp á þess konar undirbúningsskóla. En hann hefur kannske ekki verið eins kunnugur háskólum, maðurinn sá, eins og háskólagasprararnir íslenzku, sem þykjast geta borið saman alla háskóla i heimi og metið gildi þeirra, þótt þeir hafi engan þeirra sjeð! Bókafregn. FINNUR JÓNSSON: DEN OLDNORSKE OG OLDISLANDSKE LITTERA- TURS HISTORIE. II. b., 1. h. Khöfn 1895. Fyrir nálega tólf árum tók dr. Finnur Jónsson að undirbúa sig til þess að rita ýtarlega sögu fornbókmennta vorra og Norðmanna. Yms rit og ritgjörðir hafa síðan komið út eptir hann, og hann hefur gefið út nokkur fornrit vor vel og vandlega, en allt starf hans hefur þó stefnt að sama takmarkinu, að rannsaka fombókmenntimar og tungu vora. 1894 kom út fyrsta bindið af hinni fornnorsku og forníslenzku bókmennta- sögu hans og er hún gefin út á kostnað Carlsbergssjóðsins'. Þetta bindi er 650 bls. að stærð og nær frá upphafi kveðskaparins í Noregi og fram til ársins 1100. Fyrri hluti bókarinnar er um Eddukvæðin, en hinn síðari um skáldakvæð- in og skáldin. Ein grein er þar um heimkynni Eddukvæðanna, er menn greinir mest á um; hún er 22. bls. að lengd. Um þessa grein hefur dr. Bjöm M. Ólsen ritað rækilega. Dr. F. J. hefur með miklum lærdómi og skarpskyggni talið þar allt, sem gæti bent á, að Eddukvæðin sjeu ort i Noregi, eða geri það mögulegt og sennilegt. Þá er prófessor S. Bugge er frá talinn, hefur líklega enginn vísinda- maður, er nú er uppi, lagt meiri alúð á, að rannsaka Eddukvæðin, en dr. F. J. Margt hefur skýrzt við rannsóknir hans á kvæðunum, en að því er snertir upp- runa þeirra í Noregi, þá hefur hann sannfært oss um það, að það muni aldrei verða sannað, að flest þeirra sjeu ort þar; að öðrum kosti mundi slíkur eddu- fræðingur, eins og F. J., sem einnig er einhver hinn lærðasti maður í öllum fornum norskum og íslenzkum kveðskap, hafa getað leitt sterkari rök að því, að flest kvæðin væru ort í Noregi. Hann hefur rannsakað þetta svo nákvæmlega, 1 Saga þessi er rituð á dönsku, af því hún er samin með styrk af dönsku fje.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.