Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1896, Síða 66

Eimreiðin - 01.05.1896, Síða 66
146 unz augað gneistum sló; og þegar sunna seig í ós og svaf in lærða drótt, þá gat ei byrgt þin brúnaljós in blíða, þögla nótt. Hún varð að sitja og hvísla blítt og hljótt. Og er hin mæra morgundís á Mosfellsheiði reið, hún bræddi úr Hengli allan ís, en ekki af þinni leið; því þar var sífellt sama stríð við sama drauginn háð; og þá kom prófsins þrauta tið, og þar var engin náð. í stuttu máli: lítil von um »láð«. Nú var þitt sæti í bekknum breytt og bræðra þinna sveit. Þú hafðir verndað að eins eitt: þín ást var sæl og heit. Og skáld sín Island einu jók: í úlpu vasa lá í kyrru leyni lítil bók með Ijóðum mörgum á. Það var þinn koss, þín kvöl, þín ástarþrá. En nú var líka bætt þitt böl við brjef um leyndan fund. Hve skyldi’ hún launa langa kvöl, hin litla, sæla stund. En hennar fögru augum í, er ást þín hafði þráð, þjer mættu dökk og döpur ský, — þitt dýra, missta »láð«. Og þar var líka lítil von um náð. Nei. Skólinn átti einn mætan mann i minni tíð í Vík;

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.