Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1896, Page 32

Eimreiðin - 01.05.1896, Page 32
112 en henni, þó að jeg hafi ekki verið henni góður« — og nú rann út í fyrir honum. »Mjer stendur alveg á sama um allt annað, ef hún bara lifir. — Þjer lofið mjer kannske að vera hjá henni, þetta sem jeg á eptir, ef hún lifir? •—Haldið þjer ekki, hún lifi?« Læknirinn viknaði við að sjá, hvernig sorgin hafði breytt þessu harðlynda gamalmenni í barn. Hann klappaði blíðlega á öxlina á honum og sagði: »JÚ, jeg held það. Ef jeg hjeldi það ekki, þá væri jeg nú eins á mig kominn eins og þjer eruð, friðlaus og ekki mönnum sinnandi. Því að mjer finnst ekki heldur, jeg geti lifað án hennar. Reynið þjer nú að vera vongóður og leggjast út af og sofna.« Svo fylgdi hann Sigvalda inn að rúminu hans og breiddi ofan á hann eins og barn. Sigvalda var nú einhvern veginn orðið miklu hughægra en áður. Hræðslu- og hryggðarofsinn var um garð genginn, hafði eytt sjálfum sjer. Karlinum hafði orðið kalt, svona fáklæddum, frammi í herberginu, en þar hafði hann ekkert vitað af því. Nú varð hann þess var, og hann gat notið þægind- anna við að láta sjer hlýna undir yfirsænginni. Svo fór hann aptur að biðja guð, en með miklu meiri stilling og auðmýkt en áður um nóttina. Hann bað hann að fyrirgefa sjer syndirnar og lofa sjer að halda Margrjeti. Hann útlistaði einstaklega nákvæm- lega fyrir guði, eins og skaparanum væri það allsendis ókunnugt, hvað dæmalaust óendanlega innilega sjer þætti vænt um hana, hvað ómögulegt sjer væri, gömlum manninum, að lifa án hennar, og hvað góður hann skyldi ævinnlega vera henni. Og svo sofnaði hann vært og draumlaust. Jeg ætla ekki að þreyta menn á að orðlengja um leguna — hvernig Sigvaldi læddist fram og aptur með rúminu dag eptir dag, og þorði varla að draga andann, þegar mók rann á Margrjeti, og hvernig hann drakk í sig hverja einustu svipbreyting, sem hann þóttist sjá á andlitinu á lækninum. Nje heldur um batann •— því að Margrjeti batnaði eptir langa mæðu —, hvernig faðir hennar var stundum hálf-lamaður af fögnuði, þegar hann vissi, að hún var úr allri hættu, og gat lítið talað, en var þess á milli ofsakátur, — hvernig hann fór að elska lækninn fyrir umönnunina og heppnina — og hvernig hann spurði Margrjeti á hverjum einasta morgni, hvort hún væri nú ekki dálítið frískari en i gær. Allt þetta mun lesarinn geta gert sjer í hugarlund.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.