Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1896, Síða 24

Eimreiðin - 01.05.1896, Síða 24
104 Margrjet fór tafarlaust í rúmið. Og eptir skanima stund leyndi það sjer ekki fyrir neinum, að hún var altekin af veikindum. Faðir hennar kom inn til hennar, var þá miklu mýkri í máli en frammi í stofunni og spurði, hvort henni væri mikið illt. Hún kvað svo vera. —- »Jeg vil, að læknirinn komi inn til mín,« sagði hún svo. »Læknirinn?«—Nei, það mátti hún ekki biðja um. Hann vildi gera allt annað fyrir hana. Hann kvaðst skyldu senda tafar- laust eptir homöopata, sem átti heima fáar bæjarleiðir þaðan. »Það er ekki til neins, pabbi,« sagði hún. »Ekki til neins? Hann hefur mörgum hjálpað, hann Sigurður. Hann hjálpaði þjer, meira að segja, í sumar, þegar þú meiddir þig í fætinum.« »Það er ekki til neins, af því að jeg ætla ekki að láta hann hjálpa mjer, þó að hann gæti. Þú getur auðvitað sótt hann, og hann getur látið þig fá meðöl, en þú skalt rnega hella þeim ofan í mig, ef þjer þykir það sæma.« Margrjet hafði aldrei á ævi sinni talað jafn-einbeittlega við föður sinn. Það var eins og nú kæmi fram í henni, þótt seint væri, nokkuð af hans þráa. Sigvalda þótti fara að vandast málið. Það var fremur óaðgengilegt að beita hörðu við dóttur sína, fár- veika í rúminu. En að fara að sækja lækninn svo sem klukkutíma eptir það, sem þeim hafði farið á milli — það var óbærilegt, það náði engri átt. Hann kvaðst vilja sækja hjeraðslækninn. Ain væri sjálfsagt lögð, og hann gæti verið kominn fyrir kveldið. »Það er ekki til neins, pabbi. Mjer stendur á sama, hvern þú sækir, ef Sveinn má ekki korna til mín. Þú veizt það, að jeg hef ekki niikið reynt að taka fram fyrir hendurnar á þjer hingað til; þú hefur getað farið þinna ferða fyrir mjer. En í þetta skipti ætla jeg að ráða yfir mjer sjálfri — ef þú leggur ekki hendur á mig.« Hvernig í ósköpunum átti hann að fara að þessu? Hann gat ekki látið einkabarnið sitt liggja svona, og kannske deyja, hjálpar- laust, jafn-auðvelt eins og var að ná í lækni. Hann gat ekki beitt við hana ofbeldi, eins og hún var á sig komin; hann hryllti við því sem hinni viðbjóðslegustu óhæfu. Og fram í stofuna gat hann ekki leitað.—Jú, þangað varð hann nú einmitt að leita. Frá því var sýnilega ekkert undanfæri. Svo hann sendi eina vinnu-

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.