Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1896, Síða 9

Eimreiðin - 01.05.1896, Síða 9
89 í Reykjavík — sögur, sem sumar höfðu augsýnilega farið eitthvað til muna milli mála, einkurn sú síðasta. Sigvaldi kvaðst hafa skrif- að um hana til Reykjavíkur, en ekkert svar fengið. — »Þjer hafið kannske heyrt að jeg skrifaði?« Jú, læknirinn hafði heyrt einhvern ávæning af þvi. En eptir atvikum þótti honum óhultast, að fara ekki neitt út í þá sálma, svo hann eyddi því, því að hann vildi ekki lenda í neinum deilum við karlinn. Hann vjek því talinu að öðru. »Jeg skil yður rnjög vel,« sagði hann. »f*jer viljið draga sem mest úr kostnaðinum við embættisfærsluna, til þess að geta sem bezt hlynnt að alþýðu manna, menntun hennar, samgöngum og atvinnuvegum. Þjer viljið verja landsfje til að koma upp skólum fyrir alþýðu, styðja jarðabætur, sjávarútveg og gufuskipaferðir, leggja góða vegi og brýr á stórárnar -—« »Brýr? Jeg — brýr? Nei, karl minn. Jeg skal segjayður, hvað jeg vil. Jeg vil fara að öllu skynsamlega. Kannske þjer haldið, að forfeður okkar hafi haft ógrynni af skólum og gufuskip og stór- brýr?« I sama bili varð honurn litið framan í lækninn, og hann sá hann brosa. Hann sá ekki betur en hann brosti í háði. Við það harðnaði ofsinn enn meira, svo hann bætti við: »Ef þjer haldið það, þá — þá — þá — eruð þjer — eruð þjer — eruð þjer—-«. Hann gat ekki kornið orðum að því, hvað læknir- inn væri, ef hann gerði sjer slikt í hugariund, og kom aldrei með niðurlag setningarinnar. »Jeg skil þá ekki, til hvers þjer viljið nota landsfje,« sagði læknirinn. »Ekki viljið þjer láta það ganga til embættismannanna. Og nú heyri jeg, að þjer viljið ekki heldur verja því í þarfir al- þýðunnar. Hvað viljið þjer láta gera við skattana og tollana?« Og læknirinn brosti aptur. Sigvaldi sá ekki betur en hann brosti enn háðslegar en áður. Þetta bros gat hann ekki staðizt; hann gat með engu móti þolað það, að menn hentu gaman að sjer. Hann hefði auðvitað getað svarað, að hann vildi láta ljetta sköttum og tollum af þjóðinni. En hugur hans var kominn í svo mikla æsing, að honum datt það ekki í hug, heldur fór hann út í vonzku. Eptir þetta gat hann ekki litið lækninn rjettu auga. Hann þóttist skilja það og gekk að þvi alveg vísu, að læknirinn mundi ætla að fylla flokk brúarmannanna. Og honum stóð háðbrosið

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.