Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1896, Síða 4

Eimreiðin - 01.05.1896, Síða 4
84 menntun hjartans og hugans, sem segði honum, að föðurást hans þyrfti að stafa einhverjum geislum inn í sál dótturinnar. Svona hafði þá Margrjet alizt upp, enda var hún föl og guggin af öllu bæjarmyrkrinu og taugaveikluð og hræðslugjörn af öllurn hryssingsskapnum. Og nú var hún orðin fullorðin stúlka, full af rómantík og ástarþrá. En allt var ljótt umhverfis hana, nema náttúran, sem hún hafði sjaldnast rænu á að gera sjer grein fyrir — og náttúran var jlíka ljót þetta haust. Og henni þótti ekki ánægja að tala við neinn, sem hún gat til náð. Svo hún byrgði sig inni í sjálfri sjer, byrgði sig næstum þvi inni fyrir sjálfri sjer, og sálarlíf hennar varð fölt og þróttlítið, gleðisnautt, hluttekningar- laust í högum annara og óstutt af annara hluttekning. Einn dag að áliðnu hausti var henni venju fremur órótt. Hún átti von á vetrarsetumanni, Sveini Sveinssyni, ungum auka- lækni, sem koma átti í sveitina og samið hafði við Sigvalda um að dvelja hjá honurn um veturinn. Hann átti að hafast við í stofunni og herberginu inn af henni. Margrjet gat ekki á heilli sjer tekið daginn, sem hans var von. Hún átti mjög örðugt með að halda kyrru fyrir við nokkurt verk. Hún gat ekki stillt sig um að koma út við og við, til þess að líta eptir mannaferðum. Hún var við og við að líta inn í stofuna og herbergið til þess að vita, hvort ekkert væri nú í ólagi. Og vinnukonurnar pískruðu um það sín á milli, að henni mundi fremur leika hugur á að vera vel til fara, þegar hann kæmi; og fyrir frarnan spegilinn þóttust þær nokkrum sinnum hafa sjeð hana. Hún hafði sjeð þennan lækni við og við í Reykjavík, en lítið tekið eptir honum, og mundi ekki glöggt, hvernig hann var í hátt. Hún hafði enga hugmynd um, hvort nokkur fengur væri í því, að fá hann á heim- ilið, hvort hann væri leiðinlegur eða skemmtilegur, daufur eða glaðlyndur. Hálfpartinn gerði hún sjer þó von um, að hann kynni að stofna til einhverrar glaðværðar á heimilinu, t. d. fara í einhverja leiki, þegar gestir kynnu að koma, eða þá dansa við hana endrum og sinnurn. En hvort sem hann nú gerði það eða gerði það ekki, þá var tilbreyting í því, að hann skyldi korna. Og tilbreytingar- leysið fannst henni alveg ætla að gera út af við sig — þessi sífellda gráa þoka lífsins, sem að eins sveiflaðist ofurlítið til, og það fyrir ekki ljúfara vindblæ en illhryssingsrokunum úr honum föður hennar.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.