Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Page 152

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Page 152
158 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Að landsvenju eru algengustu bakhús gangabæjarins eldhús, búr og baðstofa. Víða sunnanlands voru þó útieldhús og búr inn af skál- um. Á Keldum t. d. aðeins eitt bakhús, eldhús, en fyrir miðja 19. öld baðstofa.24 Á teikningu Ohlsens af Breiðabólstöðum á Álftanesi eru bakhúsin hinsvegar fimm líkt og á bóndagarðinum í Reykjabók. Án þess að vilja fullyrða nokkuð er vel hægt að ímynda sér að húsin tvö næst langhúsi séu eldhús og búr og þá væri strympan baðstofan. Lík- legra þætti mér að búrið væri á vinstri hönd, þar sem húsin eru tvö, annað stærra, hitt minna. Algengt var að búr væru fleiri en eitt. Ef sú tilgáta er rétt að höfundur Reykjabókar sé að sýna aftasta húsið hornrétt á hin, þá er það vissulega ekki algengt fyrirkomulag, en þó er það þekkt, t. d. í Kúabót, rústunum sem Gísli Gestsson hefur verið að grafa upp austur í Álftaveri, í Gaulverjabæ um miðja 18. öld eftir úttekt að dæma og enn má rekast á það norðanlands. Minnsta þakið á myndinni gæti verið á húsi út úr baðstofu. 1 þennan tíma get- ur vart verið um annað að ræða en ónstofu. Um frambæjarhúsið er það að segja, að lengri hluti þess er hugsanlega skáli, en sá styttri stofa. Þannig er a.m.k. hlutfallið þar sem ég þekki til. Alveg öruggt tel ég að annað húsið sé skáli. Hitt gæti verið eldhús eða búr og þá breyttist áðurnefnd tilgáta um bakhúsin. Sé hinsvegar stofa á bæn- um þá sýnir teikningin í Reykjabók stórbýli, í öllu tilfelli engan smá- bæ eins og Aage Roussell hélt fram. Óþarfi er að orðlengja það frek- ar, bóndagarðurinn í Reykjabók er auðvitað dæmi um gamla íslenska gangabæinn, fornugerð, eins og Valtýr Guðmundsson og Aage Roussell réttilega benda á, elsti vitnisburður á mynd sem þekktur er. Tilvitnanir: 1. Magnús Már Lárusson: Maríukirk.i'a og Valþjófsstaðahurðin, Saga II, 1—2, bls. 84—154. 2. Björn M. Ólsen: Valþjófsstaðahurðin, Árhók hins ísl. fornl.fél. 1885, bls. 37. 3. Guðbrandur Jónsson: Dómkirkjan á Hólum í Hjaltadal, Safn til sögu ís- lands V, bls. 132 4. E. Salvén: Bonaden frán Skog, Stockholm 1923, bls. 57. 5. Aage Roussell: Farms and Churches in the Mediaeval Settlements of Green- land, Medd. om Gronland 89, Kbh. 1941, bls. 110. 6. Hermann Phleps: Die noi-wegischen Stabkirchen, Karlsruhe, 1958, myndatexti við 54. mynd. 7. Peter Paulsen: Drachenkampfer, Löwenritter und die Heinrichsage, Köln 1966, bls. 33—32. 8. Sama tilvitnun og í 5. 9. Sjá Voyage en Islande, ljóspr. Rvík 1967, Plan de Skálholt en 1836. 10. Sama rit bls. 55.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.