Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Blaðsíða 136

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1977, Blaðsíða 136
142 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS og sést svo greinilega á borðinu frá Herjólfsnesi (4. mynd). 1 þriðja lagi mætti ætla að slík bolhúsklæðning yrði að fá sæti í bita, en merki þess sjást ekki á kirkjumyndinni frá Valþjófsstað. Hinsvegar getur skarsúðin hulið hann. 1 tilefni tvíbogauppdyrisins er einnig hægt að varpa fram spurn- ingu. Er það tilviljun að af þremur kirkjum norrænum sem slíkan dyraumbúnað hafa haft skuli tvær vera sænskar og sú norska aust- anfjallskirkja? Hér er ekki spurt til þess að geta svarað heldur til að vekja athygli á staðreynd sem með viðbótargögnum gæti bent til suðausturskandinavískra áhrifa. Segja má að þetta sé meira grunur en haldgóð fræðimennska, engu að síður þyrfti að athuga þetta mál betur i víðara samhengi og þá getur tvíbogauppdyrið frá Valþjófs- stað e.t.v. orðið að einhverju liði. Ljóst er að höfundur skurðverksins á Valþjófsstaðahurðinni, snill- ingurinn sá, gerði ekki kirkjumyndina með því hugarfari að skrá- setja óyggjandi staðreynd. Hún er framar öllu hlekkur í heilsteyptu og glæsilegu listaverki, formeind, sem tákna á vissan þátt í framrás sögu hans. Engu að síður varð hann að gera áhorfendum sínum kleift að lesa verk sitt. Til þess urðu myndhlutarnir að skírskota til þeirra, þeir urðu að kannast við kirkju hans þótt einfölduð væri. Þetta er auðvitað þekkt aðferð í myndlist og heraldík fyrr og síðar. Gestum á Valþjófsstað forðum hafa því verið kunnar skurðprýddar vindskeið- ar, kinkað kolli við skarsúð, samgreyptum standþiljum og tvíboga- uppdyri. I stuttu máli altimbur-stafkirkjan hefur verið svo algeng að hún þótti sjálfsögð tákngerving í sögunni af riddaranum góða. Vitanlega verður þó að hafa í huga að slíkur höfðingi var ekki lagður til hinstu hvíldar í eða við neina útkirkju. Hafi fræðimenn á réttu að standa um aldur hurðarinnar, má bæta því við undir lokin að elsta mynd af kirkju á hinu norræna menn- ingarsvæði er hvorki norsk, sænsk eða dönsk, hún er íslensk. II Vtbrotakirkja í innsigli Reynistabarklausturs. Eitt af mörgum þarfaverkum Árna Magnússonar var að láta draga upp myndir af fornum íslenskum innsiglum. Til starfans fékk hann tvo menn, þá séra Hjalta Þorsteinsson prófast og þúsundþjala- smið í Vatnsfirði og Magnús Einarsson á Jörfa og Vatnshorni í Haukadal í Dalasýslu. Handritastofnun Islands gaf út þessi handa- verk þeirra félaga, Sigilla Islandica I og II, undir ritstjórn Jónasar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.